Læknablaðið - 01.02.1969, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ
17
Aldursflokkur Hundraðshluti íbúa í aldursflokkum
Hvammstangahérað Konur Karlar Ails Landið allt Konur Karlar Alls
0—9 10 12 22 11 12 23
10—19 10 12 22 10 10 20
20—29 5 6 11 6.5 6.5 13
30—39 5 5 10 6 6 12
40—49 4 6 10 5.5 5.5 11
50—59 3 5 8 4.5 4.5 9
60—69 4 5 9 3.5 3.5 7
70—79 3 3 6 2 2 4
80— og eldri .... 1.3 0.7 2 0.8 0.6 1
Samtals 45.3 54.7 100 49.8 50.6 100
Eins og sjá má af þessum töflum, eru karlar tæplega 10% fleiri
en konur í héraðinu, en aðeins 1% fleiri, sé miðað við allt landið.
Sautján af hundraði héraðshúa eru 60 ára og eldri, en 12% allra
landsmanna.
Húsrými: Héraðssjúkrahús með 21 sjúkrarúmi, skurðstofu
og röntgenherhergi. Að öðru leyti hafði sjúkraþjónustan til um-
ráða þrjár stofur, og var ein notuð til lyfsölu, önnur til viðtals
og sem skrifstofa, en hin þriðja til skoðunar og smærri aðgerða.
Auk þess var lítið herbergi, er notað var sem rannsóknarstofa og
til vélritunar. Þetta liúsnæði var í nánum tengslum við sjúkra-
lnisið, þannig að auðvelt var að nýta sama starfskraft og sömu
tæki til þjónustu við ferlisjúklinga og þá, sem lágu á sjúkrahús-
inu. Biðstofa ferlisjúklinga var óhæfilega lítil, en seinna árið
komu sjúklingar nær eingöngu á fyrirfram ákveðnum tíma, og
breyttist þá ástandið mjög til hins betra. Reyndist tímapöntunar-
kerfið ágætlega og var öllum aðilum til ótvíræðra hagsbóta.
Starfsfólk: Með héraðslækni starfaði annar læknir allt árið,
ýmist læknakandídat eða læknanemi í síðasta hluta, og starfaði
liver 1—3 mán. samfleytt. Tvær hjúkrunarkonur unnu með lækn-
um, og var önnur aðallega á sjúkrahúsinu, en hin á lælmingastofu.
Bjó hún sjúklinga undir skoðun, skipti á sárum og gaf sprautur
o. s. frv. Einnig sá hún um rannsóknir á blóði, þvagi og saur (að