Læknablaðið - 01.10.1973, Síða 56
214
LÆKNABLAÐIÐ
þann hátt kynnast þeir því starfi, sem unnið
er í sjúkrahúsinu, umgengni við sjúklinginn,
og störfum þeirra heilbrigðisstétta, er með
þeim vinna.
Að fyrstu 6 mánuðum loknum hefst bók-
leg kennsla að nýju og síðan verknám á
röntgendeildum. Aðalbóknámsgreinarnar eru
líffæra- og lífeðlisfræði, eðlisfræði, meina-
fræði, röntgentækni, geislavarnir og geisla-
lífíræði, Ijósmyndatækni og starfsfræðsla.
Að námi og prófum loknum hlýtur nem-
andi prófskírteini og starfsheitið röntgeri-
tæknir með þeim réttindum og skyldum, er
því fylgja lögum samkvæmt.
Áður en röntgentæknaskólinn tók til starfa
höfðu nokkrar konur verið við nám í röntgen-
deildum sjúkrahúsanna. Nám þeirra var met-
ið miðað við kröfur skólans. Þær, sem lok-
ið höfðu jafngildu námi, fengu þegar viður-
kenningu á því, öðrum var gert að bæta við
sig því, sem á skorti, og fengu að því Ioknu
viðurkenningu.
Nú hafa 10 röntgentæknar hlotið viður-
kenningu frá ráðuneytinu og stofnað með
sér félag, Röntgentæknafélag íslands.
Hjúkrunarnám ljósmæðra
Haustið 1971 gerði ég samanburð á námi
í Hjúkrunarskóla íslands og Ljósmæðraskóla
íslands. Þessir skólar eru báðir sérskólar og
brautskrá konur í tvær starfsgreinar. Hjúkr-
unarskólinn er þriggja ára skóli, en Ijós-
mæðraskólinn tveggja ára, og er þá átt við
almanaksár, en ekki venjulegt skólaár.
Mikill skortur var á hjúkrunarkonum, en
Ijósmæður kvörtuðu um atvinnuleysi. Því var
talið rétt að athuga, hvort veita mætti Ijós-
mæðrum hjúkrunarnám á styttri tíma en
þremur árum, ef lagt yrði til grundvallar
nám þeirra og samin sérstök námsskrá yfir
þær greinar, er þær þyrftu að leggja stund á.
Kröfur um undirbúningsmenntun inn í
þessa skóla eru ekki þær sömu. Inntöku-
skilyrði í hjúkrunarskólann eru gagnfræða-
próf eða landspróf miðskóla, en umsækj-
endur, sem hlotið hafa frekari menntun,
skulu ganga fyrir að öðru jöfnu. Aðsókn að
skólanum hefur verið mikil. Stúdentar, sem
nú eru um fimmti hluti og jafnvel fjórði
hluti hvers nemendahóps, ganga fyrir svo
og nemendur, er lokið hafa námi í fram-
haldsdeildum gagnfræðaskólannna.
F>að eru því sárafáir gagnfræðingar, sem
komast inn í skólann, hafi þeir ekki bætt
við sig einhverju námi eða dvöl erlendis.
Ljósmæðraskólinn hefur starfað sem
tveggja ára skóli frá árinu 1964, og fyrstu
Ijósmæðurnar með það nám brautskráðust
frá skólanum árið 1966. Á þessum árum
hafði skólinn brautskráð 56 Ijósmæður. Af
þeim hafði 1 lokið stúdentsprófi, 2 lands-
prófi, 33 gagnfræðaprófi, 9 miðskólaprófi og
11 unglingaprófi. Auk þessarar menntunar
höfðu nokkrar gengið í húsmæðraskóla eða
hlotið aðra menntun, sótt kvöldnámskeið eða
verið við nám erlendis.
Bóknám hjúkrunarnema fer að mestu fram
í námskeiðum, fjórum alls, og er það um
1500 kennslustundir. Aðalnámsgreinar eru:
hjúkrunarfræði, heilsufræði og heilsuvernd,
líffæra- og lífeðlisfræði, sjúkdóma- og sýkla-
fræði, lyfjafræði, lyflæknisfræði, handlækn-
isfræði, sálarfræði og geðsjúkdómafræði.
Aðrar námsgreinar eru margar. Rað eru
eðlis- og efnafræði, barnasjúkdómafræði,
kvensjúkdómafræði, fæðingarhjálp, hjúkrun-
arsaga, hjúkrunarsiðfræði, næringarefna-
fræði og sjúkrafæði, félagsfræði, spítala-
stjórn, rannsóknir, hjálp í viðlögum og nokkr-
ar fleiri. Verknám fer fram í Landspítala,
Borgarspítala, Kleppsspítala, Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur og í Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri.
Bóknám Ijósmæðranema er tæplega 700
kennslustundir og spannar nokkuð jafnt yfir
tvo vetur. Þeir eru að vísu fyrstu tvær vik-
urnar við bóknám, er svarar til um 70 stunda.
Síðan eru þeir í verknámi og í bóknámi jafn-
framt eða um 2 stundir á dag 5 daga í viku
og sækja kennslustundir, þótt þeir séu á
næturvöktum, kvöldvöktum eða eigi frídag.
Aðalnámsgreinar eru: fæðingarfræði og
fæðingarhjálp, líffæra- og lífeðlisfræði og
barnasjúkdómar. Aðrar námsgreinar eru:
lyfjafræði, svæfingar og deyfingar, sálar-
fræði, hjúkrunarfræði, hjálp í viðlögum og
starfsstellingar.
Þessi samanburður á námsgreinum leiddi
í Ijós, að nokkrar sömu greinar voru kennd-
ar í báðum skólunum og í sumum tilfellum
notaðar sömu kennslubækur. Þetta nam
um 260 stundum í bóknámi. Ef gera mátti
ráð fyrir sömu gæðum af sama magni, mátti
ætla, að þetta nám þyrftu Ijósmæður ekki