Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1973, Side 59

Læknablaðið - 01.10.1973, Side 59
LÆKNABLAÐIÐ 217 menntun íslenzkra lækna. Flestir læknar, sem lagt hafa út í framhaldsnám, hafa ekki haft hugmynd um það, hverjir at- vinnumöguleikarnir yrðu að námi loknu, og það, sem verra er, ekki einu sinni hverjir þeir voru við upphaf náms. Að mínum dómi er þetta ein orsök þeirrar lausungar, sem að margra dómi ríkir í íslenzkri læknastétt. Einstaklingar, sem aflað hafa sér langr- ar menntunar með ærnu erfiði, sem svo þurfa að lúta öðru starfi en menntun þeirra gerir ráð fyrir, hljóta alltaf að verða óánægðir, þó að þeir hafi nóg að bíta og brenna. Þjóðfélag, sem vitandi eða óvitandi stuðlar að slíkri handahófskenndri mennt- un lækna, skapar sjálfu sér félagsleg vandamál, sem erfitt er að meta, og bak- ar þjóðinni í heild óútreiknanlegt fjár- hagslegt tjón. Framhaldsmenntun lækna er því vanda- mál, sem nauðsyn er að taka mun sterk- ari tökum en verið hefur og væri eðlilegt, að heilbrigðismálaráðherra skipaði nefnd til þess að fjalla um þetta mál og gera til- lögur þar lun. Brynleifur Steingrímsson

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.