Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1973, Side 60

Læknablaðið - 01.10.1973, Side 60
218 LÆKNABLAÐIÐ Sjúklingurinn spurði áhyggjufullur, hvort maður gæti vel verið án botnlang- ans. „Já, yfirleitt,“ svaraði læknirinn. „Þó eru til menn, sem væri óbætanlegt tjón að botnlangaleysi." „Haldið þér, að ég sé einn af beim, lækn- ir?“ „Nei, þeir eru allir skurðlæknar.“ Aðstoðarlæknirinn var á morgunstofu- gangi. í einu rúminu lá nýinnlögð stúlka og svaf. Læknirinn stanzaði við fótagafl- inn og tók að velta tilfellinu fyrir sér. Hann hlýtur að hafa horft skarpt á hana, því að allt í einu vaknaði hún, hentist upp í rúminu og sagði stamandi: „Það er þó ekki rúmið yðar, sem ég ligg' í?“ VÍSUKORNIÐ Glætan búin, gleðin flúin, gallsúr maginn. gæfan fúin, glötuð trúin, góðan daginn. Meinafræðiprófessorinn okkar hefur enn lent í vandræðum. Einn sólríkan sunnu- dag var hann kallaður út akút til að líta á nágranna, sem haíði hnigið niður. Hann greip gömlu stúdentahlustpípuna sína úr skúffunni og skundaði á vettvang, en gamla konan var þá augsýnilega dáin. En hinir óttaslegnu og forvitnu áhorfendur ætluðust auðsjáanlega til, að hann gerði eitthvað læknislegt. Hann bar sig því til að hlusta líkið. Því miður var hart, svart gúmmíið í hlustpípunni orðið stökkt af elli og brotnaði í ótal smábita, sem, eins og prófessorinn sagði síðar: „skoppuðu um gólfið eins og lakkrískonfekt". Hann birtist á rannsóknastofunni snemma á mánudag og bað um plast- slöngu, sem ekki gæti brotnað. Við gáfum honum spotta, en gleymdum að segja hon- um, að slangan verður afskaplega lím- kennd og ógeðsleg með aldrinu.m. (Lauslega þýtt úr Lancet) — • — Reiður faðir lét það berast um sveitina, að læknirinn hefði neitað að koma strax þegar kallað var á hann. Læknirinn laun- aði fyrir sig með því að senda föðurnum orðsendingu á opnu póstkorti og hófst hún svona: „Þegar ég eitt kvöld um daginn neitaði að koma og ganga úr skugga um, hvort dóttir yðar væri ófrísk í lausaleik, var orsökin ekki sú, sem þér látið í veðri vaka, heldur . . . “ Maður nokkur var að höggva við úti í skógi, en var svo óheppinn að öxin hrökk í fót honum. Með erfiðismunum dróst hann til læknis og tók sá strax að hreinsa sárið. Það var sárt, en maðurinn harkaði af sér. Loks var honum þó nóg boðið og hann sagði hæversklega: „Ef það er öxin, sem læknirinn er að leita að, þá liggur hún úti í skógi.“ Br. Ing.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.