Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1973, Side 16

Læknablaðið - 01.12.1973, Side 16
hálf-syntetíska fúkkalyfiö MINOCYKLIN Minocyclin hydrochlorid Lederle er mjög fjölvirkt. Styrkleiki í blóðvökva. Styrkleikinn, sem hefur beztan lækningamátt, er frá 1-3 mcg/ml og næst mjög auðveldlega með þeim skammti, sem mælt er með. Dreifing í vefjum. Með MINOCYKLIN meðferð næst hár styrkleiki í vefjum og likamsvökvum, sérstaklega í gallblöðru og lifur, einnig lungum, kynfærum, húð og heilavökva. Styrkleikinn er almennt hærri í vefjum en blóðvökva. Isog. MINOCYKLIN ísogast fljótt eftir að það er tekið inn. Það nær þanning svipaðri verkun eftir 1 klst. eins og hefði það verið gefið í æð. Samtímis neyzlu fæðu og vökva hefur mjög óveruleg áhrif á ísog lyfsins, aftur á móti geta sýrueyðandi lyf, sem innihalda aluminium og magnium og kalcium sambönd dregið úr ísogi MINOCYKLINS. Útskilnaður. MINOCYKLIN skilst hægt út með þvagi og saur. Meðalhelmingatími í blóðvökva er nálægt 18 klst. Jafnvel 36 klst. eftir síðasta skammt er enn nægilegur styrkleiki eftir til að ná lækningamætti. 96 klst. eftir að hætt er meðhöndlun, má enn finna vott af MINOCYKLINI í blóðvökva. Varúð. Ekki er rétt að gefa lyfið þegar vitað er um ofnæmi gegn tetracyklin-lyfjum. Aukaverkanir. Lítil hætta er á aukaverkunum, þegar MINOCYKLIN er tekið inn í ráðlögðum skömmtum. Þó geta stundum komið meltingartruflanir, líkt og við önnur tetracyklin-lyf. í nokkrum tilfellum hefur borið á lítils háttar svima, en ekki hefur þurft að hætta við meðferð af þeim sökum. Varúðarreglur. Varast ber að gefa vanfærum konum tetracyklin-lyf. Ekki er hægt að útiloka hættuna á að tennur litist svo sem á sér stað við notkun allra tetracyklin-lyfja, þótt áhættan við MINOCYKLIN sé enn óstaðfest. Reynslan bendir til að MINOCYKLIN valdi ekki ljósofnæmi (photosensitivity). Gætni er ráðlögð, þar sem fyrir er alvarlegur skaði á lifur eða nýrum. Að öðru leiti vísast til greinagóðra upplýsinga í bæklingi. Skammtar handa fuUorðnum. Skammturinn er sá sami, hvort sem um er að ræða alvarlegra eða mildara tilfelli. Gefnar eru 2 töflur (200 mg) í byrjun, síðan 1 tafla (100 mg) á 12 tíma fresti. Umbúðir. MINOCYKLIN töflur 100 mg 9 stk. (4 daga meðhöndlun) MINOCYKLIN töflur 100 mg 15 stk. (7 daga meðhöndlun) LEDERLE LABORATORIES. CYANAMID INTERNATIONAL Stefán Thorarensen h. /., P. O. BOX 897, Reykjavik J0ROEN JCNSeNS BOQTHYKKEBI 77331 X maj 73

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.