Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 36
246 LÆKNABLAÐIÐ LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOUKNAL Læknaíclag Islands og Læknafclag Rcykjavikur 59. ÁRG. — NÓV.-DES. 1973 TÖLVUVINNSLA OG SAMRÆMING GAGNASÖFNUNAR í þessu tölublaði birtist hin síðasta af þremur ágætum greinum Elíasar Davíðsson- ar, kerfisfræðings, um tölvutækni í heil- brigðisþjónustunni. Fyrri greinarnar tvær hafa vakið verðskuldaða athygli. í þessari síðustu grein dregur höfundur upp mynd af hugsanlegri þróun þessara mála í náinni framtíð. í áætluninni er gert ráð fyrir, að vandanum sé sýndur fullur áhugi og greitt fyrir þróun mála eins og frekast er kostur Þó er ekki gert ráð fyrir, að þeir möguleikar tölvutækninnar, sem höfundur mælir með, verði fullnýttir, fyrr en í lok þessa áratugs. Auðsætt er, að nýtingu tölvutækninnar hefur ekki verið nægilega sinnt, hvað snert- ir heilbrigðisþjónustuna, þótt geta beri af sanngirni þeirra stórátaka, sem þegar hefur verið hrint í framkvæmd að frumkvæði for- ysíumanna heilbrigðismála. Má þar fyrst og íremst geta uppbyggingar þjóðskrárinnar. Á mörgum sviðum þjóðlífsins hafa menn gert sér Ijósa þá hagræðingu, sem er af tölvu- tækninni og reynt að nýta hana til hins ítrasta. Hér hefur heilbrigðisþjónustan aug- sýnilega dregist mjög aftur úr, t. d. ekki sinnt mannöflun til undirbúningsvinnu og þjálfunar. Flesí þau verkefni, sem Elías nefnir í grein sinni, eru greinilega til mikils hag- ræðis. Veigamesta verkefnið er heilsufars- gagnamiðstöð, er safna skal margvíslegum heilsufarslegum gögnum um einstaklinga á einn aðgengilegan stað. Er ætlazt til, að læknar jafnt utan sem innan sjúkrahúsa geti gengið í þennan upplýsingasjóð og þar með sparist óhemjumikil vinna, sem að verulegu leyti hefði verið tví- eða jafnvel margverkn- aður. Margt hefur staðið slíkri gagnamiðstöð fyrir þrifum. Ber þar fyrst að nefna rétta verkaskiptingu og samræmingu vinnu milli sjúkrahúsa. Þetta stórmál hefur lengi verið á döfinni, en virðist hafa legið í láginni að undanförnu. Því miður er ekki grunlaust um, að eiginhagsmunir og togstreita milli ein- staklinga og stofnana hafi staðið framgangi þessa mikilvæga máls fyrir þrifum. Lausn þess er þó ein meginforsenda þess, að áðurnefnd gagnamiðstöð komist á laggirnar, svo að fullt hagræði verði að. Starf eyðublaðanefndar L.í. markar þó gleðilegt spor í átt til samræmingar. í þessu tölublaði birtist einnig skýrsla um störf þess- arar nefndar. Auk þess beina sparnaðar og einföldunar vinnu, sem leiðir af stöðlun og fækkun í þeirri eyðublaðamergð, sem heil- brigðisþjónustan hefur búið við, er auðsætt, að slík stöðlun er æskileg vegna fyrirhug- aðrar allsherjar gagnamiðstöðvar. Vænta má þess, að eyðublaðanefnd hafi fullt samráð við sérfræðinga í tölvuvinnslu við hönnun hinna margvíslegu eyðublaða. Af pólitísku tilefni hefur nýverið orðið tíðrætt um hættur þær, sem leitt getur af tölvuskráningu upplýsinga um einstaklinga. Óneiíanlega mundi áðurnefnd gagnamiðstöð ógna nokkuð þeim trúnaði, sem talinn hefur verið sjálfsagður milli læknis og sjúklings. Ýmsar viðkvæmar upplýsingar hljóta óhjá- kvæmilega að slæðast með inn í gagna- sjóð miðstöðvarinnar. Sjúklingum stendur að sjálfsögðu ekki á sama um meðhöndlun slíkra upplýsinga. Viss hætta er raunar þeg- ar á misnotkun persónulegra upplýsinga í sjúkraskrám sjúkrahúsanna. Sjálfsagt er því að íhuga, áður en lengra er haldið, hvernig varðveizlu trúnaðar um viðkvæm persónuleg mál verður bezt borgið. Veruleg takmörk kunna að vera nauðsynleg á slikri gagna- söfnun, eigi hún ekki að ógna rétti einstakl- ingsins til að varðveita einkamál sín. P. Á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.