Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 40

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 40
250 LÆKNABLAÐIÐ lyfseðla og leitaði nefndin álits lækna á þeim. Tvær athugasemdir bárust, önnur frá Þorkeli Jóhannessyni prófessor, þ. 19- janúar, 1973, og hin frá Ólafi Ólafssyni landlækni, þ. 9. maí, 1973. í bréfi sínu tók prófessor Þorkell fram, að í væntanlegri útgáfu á reglugerð um gerð lyfseðla og afgreiðslu lyfja segi m. a. svo' í F-lið 3ju greinar: „Ef ávísað er lyfi, sem ætiað er barni yngra en 12 ára, skal stíla lyfseðil á for- eldri eða forráðamann, en láta samtímis getið nafns barnsins og aldurs“. Fór bréfritari þess á leit, að tillit yrði tekið til þessa við gerð lyfseðilsins. Landlæknir tók fram í bréfi sínu, að línu vantaði fyrir nafn barns og að hon- um fyndist eðlilegt að gera lyfseðilinn þannig úr garði, að auðveldara væri að vinna úr þeim upplýsingum, sem á hann væru skráðar, en verið hefði og vildi í því sambandi benda á, að rétt væri að hafa samband við kunnáttumann um gagnavinnslu (datatekniker) áður en gengið væri frá gerð lyfseðilsins að fullu. Nefndin hefur síðan haldið fundi með landlækni og var samþykkt, að eigi bæri nauðsyn til þess að hafa sérstaka línu fyr- ir nafn barnsins, en að eftirfarandi við- aukar yrðu við fyrri gerð lyfseðilsins: 1. Raðnúmer yrði á lyfseðlinum. 2. Reitir til þess að skrá í tákntölur fyrir skýrsluvélaúrvinnslu lyfseðla. Sýnishorn af nýjum lyfseðli með þess- um breytingum hefur nú verið gert og samþykkt af stjóm Læknafélags íslands. Stærð lyfseðilsins er A65. Eflaust má sitthvað út á lyfseðilinn setja. Sumum mun finnast rými það, sem ætlað er fyrir lyfjaútskriftina fulllítið, en kleift mun þó að koma þar fyrir 3 lyfjum. Lyfseðillinn mun og sumum finnast full- mjór, en þess ber að geta, að margir heim- ilislæknar æsktu þess að hafa lyfseðilinn af þessari stærð, þar sem hann færi þá mjög vel í vasa. Annað Var og það, að ef hann hefði orðið breiðari, hefði slíkt vald- ið því, að flestum lyfseðlahirslum apóteka landsins hefði orðið að breyta, þar sem þær hafa hingað til aðeins getað rúmað þessa. breidd lyfseðla. Hvað varðar einstök atriði lyfseðilsins má geta eftirfarandi: Merki Læknafélags íslands álítum við of klunnalegt á lyfseðilinn og gerðum það því einfaldara- Reitir eru fyrir nafnnúmer, aldur barns og fæðingarnúmer, nafn sjúklings og heimili. Ætlast er til, að tilgreint sé nafnnúmer foreldra, ef sjúklingur er bam, og mun því óþarfi að hafa sérstakan reit fyrir nafn barnsins. Fæðingarnúmer mun í framtíðinni fá aukið gildi og er því reitur fyrir það á seðlinum. Reitur fyrir nafnnúmer er enn nauðsynlegur, þar sem það er víðast hvar einnig notað sem sjúkrasamlagsnúmer. Reiturinn: nafn læknis, aðsetur og sími (prentað eða stimplað) skýrir sig sjálfur. í þennan reit má eðlilega einnig skrá nafn stofnunar þeirrar, er læknirinn vinnur við, en þess mun krafizt að læknirinn stimpli þarna nafn sitt, sé það ekki prentað eða hann skrifi það greinilega með prentstöf- um. Hægra megin í þessum reit er númer lyfseðilsins, og er það til þess haft, að auðvelt sé að sjá frá hvaða lækni eða stofnun lyfseðillinn er, sé nafn læknisins ekki prentað í reitinn. Skrásett verða hjá Læknafélagi íslands eða þeim aðila, sem annast afgreiðslu lyf- seðlanna, númer þeirra lyfseðla, er fara til sérhverrar stofnunar og læknis. Reitina þar neðan við eiga læknar ekki að fylla í. í reitina, sem eru vinstra megin og nefn- ast flokkur, tegund, innlent, form og styrkleiki, mun verða fært hjá land- læknisembættinu við gagnaúrvinnslu. Reitina neðan til og hægra megin með heitunum verð, hluti sjúklings og hluti samlags mun starfsfólk apótekanna fylla út. Lyíseðlarnir verða prentaðir í blokkum, með 50 seðlum í hverri, og geta læknar nú pantað þá frá Læknafélagi íslands, Domus Medica, Reykjavík. Verða lyfseðlarnir tvenns konar: 1. Lyfseðill með auðum reit fyrir nafn- stimpil stofnunar eða læknis, sem að framan greinir. Þessa gerð lyfseðla mun læknafélagið jafnan hafa handbæra á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.