Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 49

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 49
LÆKNABLAÐIÐ 255 Snorri Páll Snorrason, formaður L.I. ÝMIS VIÐHORF í HEILBRIGÐISMÁLUM FLUTT Á AÐALFUNDI L.í. 1973 (Lítið eitt breytt og stytt) Gagnlegt getur verið að viðra nokkur sjónarmið og viðhorf í heilbrigðismálum, drepa á nokkur verkefni, sem framundan eru, og vandamál, sem við er að glíma. Ekki verður betur séð, en að það vefjist fyrir flestum þjóðum að finna hagkvæma lausn á þeim mörgu vandamálum, sem leysa þarf til að tryggja þegnunum sem bezta heilbrigðisþjónustu. Ennþá flóknara vandamál er þó að tryggja þegnunum full- komna heilbrigði og velhðan. Raunar er ein- ungis hægt að stefna að því marki, sem virð- ist óra langt undan. Rétt er að hafa í huga, að heilbrigði og vellíðan er ekki eingöngu afrakstur góðrar heilbrigðisþjónustu. Velferðarþjóðfélagið er miklu flóknara en svo. Góð fjárhagsleg af- koma og félagslegt öryggi er ekki síður ein- kenni velferðarríkisins og er talið stuðla að almennri heilbrigði. Að því tilskildu, að fyrir þessu sé sæmi- lega séð, hygg ég, að flestir læknar séu sam- mála um, að bætt heilbrigðisþjónusta stuðli að aukinni heilbrigði þegna. Svo mikið er víst, að allar menningarþjóðir verja síaukn- um fjármunum til heilbrigðisþjónustunnar í þeirri trú, væntanlega, að eitthvað fáist i staðinn. Hér hjá okkur gengur þróunin í sömu átt, en er meir hægfara en meðal ríkari þjóða og þróaðri. Þótt erfitt sé með samanburð er Ijóst, að íslendingar verja minni hluta af þjóðartekjum til heilbrigðismála en ýmsar aðrar þjóðir, t. d. norðurlandaþjóðirnar. Á sama tíma blasa við mörg og margvísleg óleyst vandamál í heilbrigðismálum hér hjá okkur, jafnvel svo, að talað er um neyðar- ástand á einstökum sviðum. Má því ætla að fjárveitingarvaldið sé nú reiðubúið að auka hlutfallsleg útgjöld til heilbrigðismála. Það er alveg ljóst, að almenningur ætlast til þess af læknastéttinni, að hún beiti sér fyrir því og tryggi, að læknisþjónustan sé jafnan viðunandi. Það er mín skoðun, að læknastéttin fái meira ámæli en stjórnvöld, þegar eitthvað fer úrskeiðis í heilbrigðis- málum. Svo virðist sem stjórnmálamönn- um, með hjálp fjölmiðla, sé í lófa lagið að snúa almenningsálitinu í þessum efnum gegn læknum, þegar svo ber undir. Þess eru dæmi að alþingismaður hafi á opinberum vettvangi lýst því yfir að læknar hafi brugð- izt skyldum sínum í heilbrigðiskerfinu. Vafalaust á læknastéttin nokkra sök á því, að aðstöðu til lækninga utan sjúkrahúsa er jafnt ábótavant og raun er á. Einnig hefði stéttin eflaust getað haft áhrif á hinn ákaflega hæga byggingarhraða sjúkrahúsa, sem hér hefur legið í landi, með þeim af- leiðingum, að nú er talið, að vanti mörg hundruð sjúkrarúm í landinu. En stjórnvöld og þar á meðal alþingis- menn geta ekki með réttu skotið sér undan ábyrgð í þessu efni, og mér virðist vera tímabært að læknasamtökin taki upp harð- ari stefnu en hingað til gagnvart fjárveit- ingavaldinu um f jármögnun og framkvæmd á sviði heilbrigðismála. Samtökin þurfa þá jafnframt að gera sér grein fyrir, hvaða framkvæmdir skuli hafa forgang hverju sinni. í þessu efni er áreiðanlega fyllilega tímabært, að læknasamtökin leysi af ein- staka lækna, sem jafnan hafa barizt árang- urslítilli baráttu í ráðuneytunum fyrir fram- gangi sinna stofnana eða áhugamála. Læknastéttin á ekki að sætta sig við svo hægfara framkvæmdir í heilbrigðismálum, að hún liggi undir almennum ámælum um, að hún geri of litlar kröfur á þessu sviði fyrir hönd þegnanna. Víkjum nú að öðrum sviðum heilbrigðis- þjónustunnar: Heilsuvernd. í heilbrigðisþjónustunni er í vaxandi mæli keppt að því að koma í veg fyrir sjúkdóma og finna sjúkdóma á byrj- unarstigi, meðan þeir eru auðlæknanlegri. Á síðustu árum hafa skapazt ný viðhorf á þessu sviði. Lögð er vaxandi áherzla á sjúk-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.