Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 50

Læknablaðið - 01.12.1973, Síða 50
256 LÆKNABLAÐIÐ dómaleit og fræðslu fyrir almenning um hollustu og heilbrigða lifnaðarhætti. Vafa- laust er rétt stefna að auka þessa starfsemi, þótt hvergi nærri sé auðvelt að ná góðum árangri á þessu sviði. Fólkið sjálft, sem á að njóta góðs af þessari starfsemi, þarf oft- ast að vera aðalþátttakandinn og er þar við ramman reip að draga að fá það til sam- vinnu. Fræðsla og leiðbeiningar um heil- brigðismál bera oft takmarkaðan árangur, eins og dæmin sanna, samanber áróður gegn reykingum, ofneyzlu áfengis, ofneyzlu mat- ar, kyrrsetu, áróður gegn of hröðum akstri, svo dæmi séu nefnd. Samt sem áður hlýtur það að vera verkefni lækna að fræða al- menning um allt, sem stuðlar að bættri heilbrigði. Þrátt fyrir takmarkaðan árangur verða læknar því að halda áfram og herða róðurinn á þessu sviði. I þessu efni verður læknastéttin jafnframt að gera þær kröfur, að aðrir aðilar liggi ekki á liði sínu og vinni ekki gegn tilraun- um lækna til að efla heilbrigði: Það er t. d. meira en tímabært að framleiðendur hvers konar neyzluvöru taki meira tillit til holl- ustu vörunnar við framleiðslu og dreifingu en nú er gert. í raun þarf að taka matar- æði þjóðarinnar til rækilegrar endurskoð- unar m. t. t. hollustu. Vissar grundvallar- rannsóknir á mataræði íslendinga þarf þó að framkvæma til að byggja á. Þar eru heil- brigðisyfirvöld bezti aðilinn til forgöngu. Ber að fagna því, að við Raunvísindastofn- un Háskólans er þegar hafið nokkurt starf á þessu sviði. Sjúkdómsleit, hóprannsóknir: Einn sá þáttur heilsuverndarstarfs, sem nú ryður sér til rúms, er sjúkdómsleit í því skyni að uppgötva sjúkdóma á byrjunarstigi. Þetta er m. a. gert með hóprannsóknum. Hóp- rannsóknir Hj artaverndar og Krabbameins- félagsins eru ágæt dæmi um merkilega starfsemi á þessu sviði, sem á vafalaust eft- ir að eflast. En ekki er nóg að finna sjúk- dóma eins og t. d. sykursýki, háþrýsting, krabbamein, hjartasjúkdóma, gláku o. s. frv. Tryggja þarf meðferð þeirra, sem finn- ast með slíka sjúkdóma. Nauðsynlegt er, að komið verði á stofn lækningastöðvum (klinik) fyrir einstaka sjúkdómsflokka svo sem gláku, sykursýki, háþrýsting og ef til vill fleiri sjúkdóma. Þar til vel útbúnar heilsugæzlustöðvar rísa, mun vera heppi- legast, að slíkar lækningastöðvar verði á göngudeildum sjúkrahúsanna, eða á annan hátt í nánum tengslum við sjúkrahúsin. Taka þarf upp ákveðna stefnu og áætlun um, hve víðtæk starfsemi af þessu tagi þarf að vera í næstu framtíð hér á landi, að hvaða sjúkdómaflokkum ber að leita með hóprannsóknum. Hversu miklum fjármun- um er ráðlegt að veita til slíkrar starfsemi. Hvaða aðilar séu hæfastir til að taka starf- ið að sér og hvernig það skuli skipulagt. Hafa ber í huga, að við sjúkdómsleit með hóprannsóknum fást mjög gagnlegar upp- lýsingar um tíðni og tilveru (incidens, pre- valens) viðkomandi sjúkdóma. Gera verður ráð fyrir, að vaxandi tækniþróun geri sjúk- dómaleit í stórum stíl auðveldari og árang- ursríkari eftir því sem tímar líða. Færi vel á því, að læknafélögin ynnu að þessum málum með heilbrigðisyfirvöldum og þeim einkaaðilum, sem sýnt hafa fram- tak á þessu sviði. Vel búnar heilsugæzlu- stöðvar ættu að geta annast slíka starfsemi í framtíðinni og raunar ráð fyrir því gert. Lækning sjúkra: Það er eðlilegt, að aðal- starf flestra lækna verði enn um sinn, eins og ávallt áður, að greina og lækna sjúkdóma hjá þeim, sem leita læknis. Þrátt fyrir all- ar þjóðfélagslegar framfarir, sem ótvírætt hafa stuðlað að heilbrigði og auknu langlífi meðal svokallaðra menningarþjóða, kemst læknir framtíðarinnar ekki hjá því að læra áfram háskólalæknisfræðina og beita þeirri þekkingu, sem hann með því öðlast við sjúk- dómsgreiningu og lækningar. En nákvæm og rétt sjúkdómsgreining verður áfram und- irstaða undir árangursríkari meðferð. Menntun lækna: Vegna síaukinnar þekk- ingar í læknisfræði verður stöðugt erfiðara fyrir lækna að afla sér fullnægjandi þekk- ingar og nám lækna verður því sífellt að taka til endurskoðunar. Námið í læknaskólunum er einungis grundvallarnám, sem í öllum tilfellum verð- ur að byggja ofan á með framhaldsmennt- un. Gildir það engu síður um heimilislækn- ingar en aðrar greinar lækninga. Því næst verður að sjá fyrir fullnægjandi viðhalds- menntun vegna hinna öru breytinga læknis- þjónustunnar, sem óhjákvæmilega verður að fylgja í kjölfar nýrrar þekkingar. Læknafélögin undir forystu fræðslu- nefndanna, hafa þegar unnið gott starf á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.