Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1973, Page 67

Læknablaðið - 01.12.1973, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ 265 FRÁ FÉLAGI ÍSLENZKRA LÆKNA í BRETLANDI VSSTUNARRÝMI SJÚKRAHÚSA Á íslandi er nú varið til heilbrigðisþjón- ustu nálægt 6% af heildartekjum þjóðar- innar, og hefur þetta kostnaðarhlutfall far- ið jafnt og þétt hækkandi undanfarin ár. Eyðsla okkar til heilbrigðismála hlýtur þannig að vera að nálgast það hámark, sem þjóðarbúið þolir. Þetta þarf þó ekki að þýða, að heilbrigðisþjónusta okkar geti ekki hald- ið áfram að batna. Núverandi rekstrarkerfi heilbrigðisþjónustunnar er óhagkvæmt, og virðist mega spara mikið fé með tiltölulega einföldum skipulagsaðgerðum. Markmið þessara skrifa er að vekja athygli á sparn- aðaraðgerðum, sem við teljum aðkallandi á þessu sviði. Einn stærsti útgjaldaliður heilbrigðis- þjónustunnar er rekstur sjúkrahúsa, og þar vega þyngst launagreiðslur til starfsfólks. Sjúklingar, sem eru vistaðir á sjúkrahúsum, fá umönnun, sem miðast við, að þeir séu nánast ósjálfbjarga. Kannanir hafa þó leitt í ljós, að verulegur hluti þeirra sjúklinga, sem nú eru vistaðir á sjúkrahúsum (u. þ. b. þriðjungur á sumum deildum), þurfa ekki á slíkri umönnun að halda. Er hér um að ræða sjúklinga, sem eru lagðir inn á sjúkra- hús til rannsókna. Rannsóknastofur sjúkra- húsanna annast ekki nema að takmörkuðu leyti rannsóknir á sjúklingum, sem hafa ból- setu utan sjúkrahúsveggjanna. Eins og mál- um er háttað, geta sjúklingar þess vegna yfirleitt ekki notið þeirrar aðstöðu, sem sjúkrahúsin bjóða upp á, nema þeir hafi fyrst verið vistaðir þar sem legusjúklingar. Víkkun á starfssviði göngudeilda sjúkra- húsanna þannig, að þær annist alla sjúkl- inga, sem að dómi heimilislækna og ann- arra sérfræðinga þurfa á sjúkrahúsrann- sókn að halda, er einföld skipulagsaðgerð, sem mundi sennilega útrýma biðlistum og fækka verulega sjúklingum á sumum sjúkradeildum, sem nú eru yfirfullar. Göngudeildir eru mun ódýrari í rekstri en legudeildir og krefjast margfalt minna hús- rýmis. Auk hagræðis fyrir sjúklinga mundi þessi skipulagsbreyting þannig draga mikið úr rekstrar- og byggingarkostnaði sjúkra- húsanna. Hins vegar yrði nauðsynlegt að efla rannsóknardeildir, svo að þær geti mætt því aukna álagi, sem opnun göngudeilöa mundi hafa i för með sér. Uppbygging heilsugæzlustöðva er önnur brýn aðgerð, sem ekki mun einvörðungu bæta gæði heilbrigðisþjónustunnar, heldur trúlega einnig minnka legurýmisþöi'f sjúkrahúsanna að mun. Við núverandi skipulag eru allmörg rúm á dýrustu sjúkra- húsunum notuð fyrir langlegusjúklinga. Truflar þetta eðlilega nýtingu þessara sjúkrahúsa og hefur verið ráðgert að byggja sérstök hæli fyrir slíka sjúklinga. Hins vegar virðist mega leysa vandarnál margra langlegusjúklinga á ódýrari og mannúðlegri hátt með því að sjá þeim fyr- ir heimahjúkrun og margvíslegri annarri heimilisaðstoð. Þessa þjónustu virðist vera eðlilegast að skipuleggja og reka frá heilsu- gæzlustöðvum í samvinnu við sjúkrahúsin. Bygging heilsugæzlustöðva er dýr fram- kvæmd, sem mun krefjast þess, að fjárfram- lög til heilbrigðismála verði talsvert aukin í bili. Sú fjárfesting ætti þó fljótlega að skila hagnaði, sem byggist á lækkun rekstrar- og byggingarkostnaði sjúkrahúsa og hagkvæm- ari nýtingu á þjónustu heilbrigðisstarfs- fólks, er vinnur utan sjúkrahúsanna. Nýlega birti heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið skýrslu um vistunarþörf sjúkrahúsa, þar sem áætlun er gerð um æskilegan fjölda sjúkrarúma fyrir hinar ýmsu greinar sjúkrahúslækninga. í áætlun þessari er gert ráð fyrir svipuðu fyrirkomu- lagi læknisþjónustu og nú tíðkast. Þannig er ekki tekið tillit til þeirra áhrifa, sem efling heilsugæzlustöðva og almenn opnun göngudeilda mun hafa á vistunarþörf

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.