Læknablaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 46
132
LÆKNABLAÐIÐ
Innfluttur sykur
Kg — mann - ári
Kg.
Línurit II.
dóma, er ekki beinskeytt og ætti því að
vera fyrirbyggjandi, ef verulegs árangurs
á að vænta við að ráða niðurlögum þeirra.
Þess ber þó að gæta, að umbun og virðing
fyrir haldlitlum lækningaaðgerðum við af-
leiðingum farsóttarinnar er meiri í þjóð-
félagi okkar, en fyrir fyrirbyggjandi störf-
um. Með öðrum orðum er betur borgað
fyrir að þurrka pollinn á gólfinu, en að
skrúfa fyrir hinn leka krana.
Áhugi manna í tæknimenningarþjóðfé-
lögum er nú vakinn, og má vænta frekari
vísindaafreka á þessu sviði á næstu árum.
Það urðu faraldsfræðilegar rannsóknir frá
Afríku, sem hrundu þessari skriðu af stað,
en íslendingum ætti að vera það ánægju-
efni að minnast brautryðjendastarfs Nátt-
úrulækningamanna og annara íslenzkra
heimilda.
MATARKLÍÐ TIL LÆKNINGA
Sé matarklíð notað, eru hægðalyf óþörf
þorra manna, sem nota þau. Nægjanlegt
er að menn neyti brauðmetis, sem bakað
er úr góðu heilhveiti, en margir bæta við
mat sinn 2 kúfuðum matskeiðum af hveiti-
klíði tvisvar sinnum á dag. Hveitiklíðið
er bragðlaust og fer bezt á því að blanda
það saman við annan mat, svo sem hafra-
graut, pakkamjöl (t. d. corn flakes), súp-
ur, grauta eða súrmjólk.
Sjúklingar með pokamyndanir í ristli
fá oft verki í kvið af svo litlu sem 1-2 te-
skeiðum af hveitiklíði og ber því að