Læknablaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
147
8,2 dagar og dauðsföll voru engin. Þegar
um eftirköst var að ræða er þeirra getið
sérstaklega. Þess má geta, að verkefnin
1959 dreifast raunar ekki yfir nema rúm-
lega níu mánaða tímabil, þar sem ég hóf
ekki störf á spítalanum fyrr en í febrúar
1959 og svo kom mánaðarlangt sumarleyfi
á árinu. Að lokum er svo tveggja tilfella
getið sérstaklega, þar sem þau verða að
teljast óvenjuleg og sjaldgæf hér á landi.
Athugasemdir við töfl,u
1) Um botnlangana má bæta því við, að
um fjórðungur þeirra reyndist við
histologiska rannsókn vera án sjúk-
legra breytinga, sumpart vegna
rangrar greiningar og sumpart vegna
þess að foreldrar, og þá einkum
mæður barna, eru oft búnar að bíta
það fast í sig, að barnið sé með botn-
langabólgu og getur þá verið erfitt
að komast hjá aðgerð. Botnlanga-
tökur ,,en passant“ laporotomiu af
öðrum ástæðum eru ekki taldar með
þessum 36.
2) Einn af gallsteinasjúklingunum, 49
ára karlmaður, hafði einnig stein í
ductus choledochus, sem var fjar-
lægður. Postoperativt fékk hann
lungnabólgu, sem hafði næstum rið-
ið honum að fullu.
3) Recidiv eftir fyrri aðgerðir fram-
kvæmdar annars staðar.
4) Áður gerð hernioraphia annars stað-
ar.
5) Fertugur karlmaður, sem reyndist
hafa ca. ventriculi á útbreiddu stigi
og dó úr meinvörpum mánuði eftir
aðgerð.
6) í öllum tilfellum var gerð há undir-
binding á v. saphena magna og þræð-
ing (stripping) þar sem því varð
við komið.
7) Fimmtugur karlmaður, aukalega
með diverticulitis Meckeli, sem var
fjarlægt. Kom inn ári seinna með
óstöðvandi blóðnasir, sem ekki lag-
aðist fyrr en eftir undirbindingu í
staðdeyfingu á a. carotis externa og
hafði hann þá fengið 5 lítra af blóði.
8) Barnið var vart með lífsmarki þeg-
ar það náðist og tókst ekki að lífga
það við.
9) Allt karlmenn á aldrinum 30-49 ára.
Alls staðar var gerð Billroth II re-
section með Hofmeister-Polya með-
ferð á magastúfnum. Einn þessara
manna fékk ca. ventriculi í stúfinn
5 árum seinna og lézt úr því, hinir
allir við góða heilsu.
10) Vafasöm aðgerð á ungri konu vegna
dysmenorrhea með miklu neurotísku
ívafi og árangur eftir því lélegur
quo ad sanitatem.
11) 18 ára piltur á minkaskytteríi með
haglabyssu. Hvernig hann fór að því
að skjóta sig í penis án þess að særa
nokkra aðra líkamshluta er ráðgáta
enn í dag.
12) Ástæðurnar fyrir keisaraskurðunum
voru sem hér segir: a) Placenta
previa 1, b) Sectio caesarea antea -j-
eclampsia (barn dáið) 1, c) Situs
transversus, d) „Locked twins“, e)
Bandl hringur in partu.
13) Hér er um að ræða 4 konur á aldr-
inum 32-60 ára. Ein með non-
toxiskt adenoma, ein með Hashimoto
struma, ein með diffust struma og
hyperthyroidismus og loks tilfellið
með intrathoracal strauma, sem vó
510 g og nánar er gerð grein fyrir
ásamt mynd.
TILFELLI NR. 579/59
3ja ára telpa, f. 12.5. ’56, lögð inn á
S. K. vegna hematuria. Að sögn móður
var fæðin.g eðlileg, 2. í röð 4ra systkina,
ávallt verið hraust og dafnað eðlilega.
Tveim dögum fyrir komu á spítalann tók
móðirin eftir miklu blóði við þvaglát hjá
telpunni og við smásjárskoðun var það
allt morandi í R. blk. og líkara blóði en
þvagi. Önnur einkenni voru engin, enginn
hiti eða uppköst.
Við skcðun var um að ræða fremur
hraustlega telpu, útlit svarandi til aldurs,
ekkert athugavert við höfuð, háls eða
thorax. Við þreifingu á kviðarholi finnst
stór tumor, sem fyllir svo til alveg út
kviðarhol v. megin, en nær þó ekki alveg
niður í pelvis. Á nýmamynd með skugga-
efni (diodrast 4 cc) sést góður útskilnaður