Læknablaðið - 01.08.1974, Blaðsíða 84
154
LÆKNABLAÐIÐ
við hjónin búin að ákveða að afhenda rík-
inu tvær milljónir króna til lagfæringa á
Nesstofu. Þessu framlagi myndi ég vilja
haga svo, að helminginn afhenti ég á
þessu ári og hinn helminginn á næsta ári.
Og hef ég þá í huga, að undirbúnings-
vinna gæti hafist sem allra fyrst, svo unnt
væri að hefja vinnu við sjálft húsið, þeg-
ar er það losnaði.
Síðar meir, er línurnar tækju að skýr-
ast og sýnt væri, að þær vonir, er ég bind
við framtíð rannsóknarstofnunar sögu
læknisfræðinnar ætla að rætast, hefi ég
hugsað mér, að það af bókasafni mínu,
sem hefur gildi fyrir sögu læknisfræð-
innar, en meginstofn þess hefur sérstakt
gildi fyrir sögu íslenzkra heilbrigðismála,
renni til stofnunarinnar.
Reykjavík, 23. september 1972.
Virðingarfyllst,
Jón Steffensen
(sign.)
Til menntamálaráðherra".
Hinn 4. marz 1974 afhenti svo prófessor
Jón Steffensen menntamálaráðherra form-
legt gjafabréf fyrir fjárupphæð þeirri, sem
greinir í ofanrituðu bréfi. Við afhendingu
bréfsins var helmingur fjárupphæðarinn-
ar, þ. e. a. s. krónur 1 milljón, lagður
fram, en afhending þess, sem eftir stend-
ur, skyldi fara fram á næsta ári, en eigi
síðar en 1. febrúar 1975.
Stjórn Félags áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar væntir þess, að hæstvirt
ríkisstjórn hlutist til um að gengið verði
frá kaupum á Nesstofu hið allra fyrsta.
Yrði síðan hafist handa um að endurbæta
húsið og undirbúa það til að gegna því
hlutverki, sem í bréfi prófessors Jóns
Steffensens er lýst.
Stjórn Félags áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar hefur nú útvegað hús-
næði, þar sem koma má fyrir munum til
varðveizlu, er hafa gildi fyrir sögu heil-
brigðismála á íslandi. Gert er ráð fyrir,
að slíkum munum verði safnað í þetta
húsnæði þangað til unnt verður að koma
þeim fyrir á skipulegan hátt í væntanlegt
safn í Nesstofu. Það eru einlæg tilmæli
stjórnarinnar, að þeir, sem hafa undir
höndum slíka muni eða vita af þeim, geri
einhverjum úr stjórn félagsins viðvart,
svo að unnt sé að koma þeim í trygga
vörzlu. í stjórn Félags áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar eiga nú sæti eftir-
taldir menn: Formaður, prófessor Jón
Steffensen, gjaldkeri, apótekari Birgir
Einarsson og ritari, prófessor Olafur
Bjarnason.