Læknablaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 40
62
LÆKNABLAÐIÐ
"liili i' l' -•il Iljllj jgjj
•'l I? Imiin FRÁ HEILBRIGÐISSTJÓRN
Umsjón og ábyrgð:
Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri
Verkefni, sem unnið hefur verið að í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
á þessu ári og þau verkefni, sem fram-
undan eru.
I. LÖGGJÖF Á SVIÐI HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLA, SEM í FRAMKVÆMD
HEFUR KOMIST Á ÁRINU.
Frenn lög hafa tekið gildi á árinu, sem
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hef-
ur haft forgöngu um að gengu fram.
1. Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kyn-
líf og barneignir og fóstureyðingar og
ófrjósemisaðgerðir.
2. Lög um breytingar á hjúkrunarlögum nr.
8 frá 13. mars 1974.
3. Lög um félagsráðgjöf.
Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kyn-
líf og barneignir og fóstureyðingar og ófrjó-
semisaðgerðir höfðu verið alllengi á döfinni
og kom fram í byrjun grundvallar skoðana-
munur á hve langt lagasetning af þessu
tagi skyldi ganga í frjálsræðisátt, hvað snerti
ákvörðunarrétt konunnar. Full samstaða náð-
ist í Alþíngi um málið á lokastigi og lögin
eru komin til framkvæmda.
Talsvert undirbúningsstarf hefur þurft að
vinna af ráðuneytinu og embætti landlæknis
í sambandi við framkvæmd laganna og er
þessa dagana að fara út til lækna og sjúkra-
húsa ný gerð eyðublaðs, þar sem gert er
ráð fyrir, að fylgst sé mjög vandlega með
framkvæmd laganna.
Feir þættir, sem snúa að fræðslu og ráð-
gjöf, eru í undirbúningi, en þar er um mikið
starf að ræða, er krefst vafalaust mjög auk-
ins fjármagns frá því, sem gert er ráð fyrir
í núgildandi fjárlögum.
Lög þau um breytingar á hjúkrunarlögum,
sem samþykkt voru á árinu, voru fyrst og
fremst gerð í þeim tilgangi að tryggja hjúkr-
unarkonum og hjúkrunarmönnum starfsheitið
hjúkrunarfræðingur þar eð vilji félagsins
hafði ótvírætt komið fram um að svo yrði.
Fern lög á sviði tryggingamála hafa verið
samþykkt á árinu, þar af tvenn lög um
breytingar á lögum um almannatryggingar.
1. Lög um bætur almannatrygginga nr. 13
frá 1975.
2. Lög um breytingar á lögum nr. 67 frá
20. apríl 1971 um almannatryggingar nr
39/1975.
í lagabreytingum um almannatryggingar
var annars vegar um að ræða lagaákvæði
um breytingar á bótaupphæðum í samræmi
við verðlags- og kaupgjaldsbreytingar, hins
vegar voru lagaákvæði um niðurfellingu fjöl
skyldubóta í sambandi við breytingu skatta-
laga um barnabætur.
Af reglugerðum hafa alls 28 reglugerðir
á sviði heilbrigðismála verið staðfestar og
8 reglugerðir á sviði tryggingamála.
II. LAGAFRUMVÖRP EÐA BREYTINGAR VIÐ
LÖG, SEM í UNDIRBÚNINGI ERU, OG
VÆNTANLEGA VERÐA LÖGÐ FYRIR
NÆSTA ALPINGI.
1. Lög um breytingu á lögum um sjúkra-
þjálfun frá 1962.
2. Lög um breyting á lögum um heilbrigðis-
þjónustu.
Fyrir skömmu hefur ráðherra skipað nefnd,
sem hefur fengið það hlutverk að endur-
skoða gildandi lög um heilbrigðisþjónustu,
sérstaklega með það fyrir augum að gera
tillögur um með hverjum hætti bráðabirgða-
ákvæði laganna geti fallið niður þannig, að
2. kafli laganna og önnur lagaákvæði, sem
frestað hefur verið að taki gildi, geti tekið
gildi hið bráðasta. Auk þess hefur nefndin það
hiutverk að kanna tillögur, sem komið hafa