Læknablaðið - 01.09.1976, Side 22
134
LÆKNABLAÐIÐ
í september 1970 innlagður vegna
skyndihita, 39,5 og því nær meðvitundar-
laus. Talið vera cholangitis, en einnig
spurning um heilastofnsblóðtappa. Ein-
kenni hurfu við fúkalyfjameðferð. Eftir
heimferð stöðug óþægindi frá epigastrium.
Innlagður í 3ja skipti vegna þessa í nóv-
ember 1970. Árið 19ð9 hdfði verið gerð
alhliða rannsókn í leit að illkynja æxli,
þá án árangurs. Endurtekin nú, en einnig
árangurslaus. Talið að einkenni hans geti
verið functionel dyspepsi. Meðhöndiaður
með panpeptal með sæmilegum árangri.
Innlagður í 4. skipti í apríl 1971. Liðverkir
í hnjám, öxlum, hnúum og efri fingur-
liðum höfðu heldur ágerst. Bólgur litlar
sem engar. Kraftleysi svipað. Var nú hai-
in gullmeðferð. Árangur þó enginn.
í júlí 1971 vaxandi verkir í herðum,
hrygg og brjóstkassavöðvum í 6-8 vikur.
Eftir það vaxandi áreyslumæði og kraft-
leysi í ganglimum, almennur slappleiki. Til
viðbótar voru vaxandi einkenni frá stækk-
uðum blöðruhálskirtli, væg uræmia, gláka.
Innlagður á ný í sept. 1971. Kraftar voru
nú greinilega minnkaðir í nærlægum út-
limavöðvum, sérlega á ganglimum, auk
þess einnig í tárétfivöðvum. Aðeips njinnk-
að sársaukahúðskýn, fyrir neðan hné báð-
um megin og upphafið titringsskyn. Öll
viðbrögð eðlileg nema ökklaviðbrögð,
sem ekki fundust.
Á sýni frá kálfavöðva fannst myositis
og væg staðbundin rýrnun í trapezius. Sýnt
þótti, að mæðin mundi stafa frá lömun önö-
unarvöðva, enda bentu hjarta- og lungna-
próf til þess, að þeim líffærum yrði ekki
eingöngu um kennt.
Þar eð sjúklingur hafði tekið stera þótt
með hvíldum væri frá 1967, var ekki hægt
að útiloka steramyositis. Hann var því
meðhöndlaður með primbolan innspýting-
um auk acetylsalicylsýru og vöðvaþjálf-
unar. Einkenni löguðust nokkuð. Hann var
verkjalaus, kraftar jukust og mæði minnk-
aði. Stóð svo nokkuð óbreytt ástand þar
til í mars 1973 að snögglega komu slæmir
verkir í glutealsvæði og hægra læri. Glute-
alvöðvar aumir. Almennur slappleiki og
vaxandi öndunarerfiðleikar. CPK 54-110
ein. Sökk 24 mm/klst. Innlagður á Landa-
kotsspítala 5.4.1973. Meðferð corticosterar
og verður verkjalaus á 3 vikum. Þvagfæra-
sýking og vaxandi einkenni frá blöðruháls-
kirtilsstækkun. Aðgerð var því fyrirhuguð,
er hann fær lungnabólgu og andast í maí
1973.
3.
67 ára gömul kona, innlögð á Landakots-
spítala í apríl 1972. VeikList 11 ára gömul
með bólgu og stirðleika í hnúum, efri fing-
urliðum, sem stóð að meira eða minna leyti
í 4 ár. Síðan væg krepping þessara liða.
Einstaka sinnum eymsli við álag, annars
einkennalaus þar til vorið 1971, að þroti
kom í efri fingurliði, hnúa, úlnliði, verkir,
eymsli, stirðleiki. Álagseymsli í axlarliðum,
vinstri olnbogalið, kjálkaliðum. í nóvember
sama ár þroti í kringum augu og síðan
bjúgur í hendur. Húð varð blá-rauð, þurr,
flagnandi með telangiectasium á höndum
og í kringum augu. Sprungur á fingrum.
Um miðjan desember kyngingarörðugleik-
ar, matur gúlpaðist upp í nefkok og það
fór að bera á vaxandi nefmælgi. Þessi ein-
kenni ágerðust og um það leyti sem hún
kom, gat hún vart kyngt maukfæðu lengur
og hafði megrast mjög.
Blóðhagur góður, Hg b, 14,9%. Sökk 23
mm/klst., hv.blk. 6.800, þar af 12% eosinp-
filar frumur. CPK mjög hækkað, 415 ein-
ingar GPT hækkað, 35 ein. (eðlileg minna
en 12 ein.). Immunoglobulin eðlileg, svo
og sölt, lifrarpróf og urea. Serum comple-
ment eðlilegt og rheuma eða antinuclear
faktorar fundust ekki. í vöðvasýni sást
dermatomyositis. Rtg.mynd af lungum
sýndi lamellera atelectasis í báðum lungum
og peribronchial infiltröt. Ösophagus mynd
er dæmigerð fyrir polymyositis með cri-
copharyngeal achalasia. Ekki fannst ill-
kynja sjúkdómur. Sjúkl. fær corticostera
og anaboliska stera. CPK lækkar í 73 ein.
á 18 dögum og einkenni öll fara hratt batn-
andi. Infiltröt í lungum minnka og hiti,
sem í byrjun liggur milli 37,5 og 38, verður
eðlilegur. Hún er innlögð aftur 5 vikum
síðar vegna sennilegs primbolan ofnæmis.
Jafnar sig á 2 vikum og er CPK nú innan
eðlilegra marka 14 ein. Ástand óbreytt, hör-
und sprungu- og bjúglaust, en bláleitur roði
og einstaka telangiectasiur í kringum augu
og naglrætur. Etur mjúka fæðu óþæginda-
laust. Verkjalaus. í ársbyrjun 1975 vaxandi
magnleysi í ganglimum, svo sjúklingur get-