Læknablaðið - 01.09.1976, Page 24
136
LÆKNABLAÐID
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknafclag Islands- og LlR
Ladcnafclag Reykjavikur
62. ÁRG. — JÚLÍ-SEPTEMBER 1976
gang að bóluefni, ef svo ólíklega vildi til að
grípa þyrfti til þess.
Meðan yfirlýsing frá WHO liggur ekki fyrir
hafa menn ekki treyst sér til að leggja kúa-
bólusetningu niður með öllu, en þess er að
vænta að afstaðan skýrist á næstu mánuð-
um.
Á ráðstefnunni komu fram ýmsar nýjar og
fróðlegar upplýsingar og verður væntanlega
hægt að skýra nánar frá þeim, þegar skýrsla
um ráðstefnuna liggur fyrir.
öb
MINNINGARGREINAR
Á undanförnum árum hafa öðru hvoru birzt
greinar í Læknablaðinu, þar sem minnst hefir
verið stéttarbræðra, sem fallið hafa frá. Ró
eru hinir mun fleiri, sem ekki hefir verið get-
ið í blaðinu. Ritstjórar vilja stuðla að því, að
helzt allra, sem deyja í stétt okkar, verði
minnst á viðeigandi hátt. Er því beint til
þeirra, sem vildu rita um þá lækna, sem
undanfarið hafa horfið héðan, að slíkar grein-
ar yrðu birtar í næsta tölublaði eftir að þær
berast og mun sú regla gilda áfram.
öb
NORRÆN RÁÐSTEFNA UM ÓNÆMIS-
AÐGERÐIR
var haldin í Reykjavík í októberbyrjun.
Par kom fram, að mikill munur er á fram-
kvæmd ýmissa ónæmisaðgerða á Norður-
löndum. Stafar sá munur m.a. af því, að mis-
mikið er framleitt af bóluefni í hinum ýmsu
löndum og innflutningur því mismikill. ís-
lendingum er mikilsvert að taka þátt í nor-
rænu samstarfi á þessu sviði og kom í Ijós,
að fulltrúar hinna landanna voru mjög vel-
viljaðir í garð íslendinga og má í þessu sam-
bandi minnast á gjöf Finna á bóluefni gegn
mengisbólgu af völdum meningococca fyrr á
þessu ári.
Flestar þjóðanna hafa dregið verulega úr
kúabólusetningum gegn bólusótt, enda er
þess vænzt, að WHO lýsi því yfir þá og þeg-
ar, að bólusótt hafi verið útrýmt. Bendir allt
til, að manninum sé í þann veginn að takast
í fyrsta sinn að útrýma smitnæmri sótt úr
heiminum.
Eigi að síður hefir þótt ástæða til allrar
varkárni og hefir landlæknir gert ráðstafarn-
ir til, að íslendingar geti enn um sinn átt að-
HEILSUGÆZLA I' REYKJAVÍK
hefir verið ofarlega á baugi undanfarið.
Á síðasta ári gekkst L.R. í samvinnu við
Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar fyrir
ráðstefnu um þessi mál, eins og sagt var frá
í 3.-4. tölublaði.
Fyrsti almennur fundur L.R. á þessu hausti
fjallaði um heilsugæziu og heilsugæzlu-
stöðvar. Er verðugt, að félagið hefir enn á
ný tekið þessi mál til umfjöllunar.
Ýmislegt bendir til að töluverður skriður
sé að komast á þessi mál á höfuðborgar-
svæðinu.
Húsnæði að Hraunbæ 102 í Árbæ er að
verða tilbúið og HeiIbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið hefir auglýst lausar til um-
sókna tvær stöður heilsugæzlulækna við
stöðina.
Samningar standa yfir um leigu Reykja-
víkurborgar á húsnæði fyrir heilsugæzlu í
Breiðholti III, en þar hefir þegar verið komið
upp heilsuvernd ungbarna í tengslum við
félagsráðgjafarþjónustu. Unnið er að bygg-
ingarlýsingu fyrir heilsugæzlustöð í Breið-
holti I, sem ætlaður er staður í svonefndri
Mjódd, neðst í hverfinu.
Búið er að steypa upp fyrsta áfanga Rjón-
ustudeildar Borgarspítalans. Er þess vænst,
að Slysavarðstofan, sem verður á fyrstu
hæð, geti orðið tilbúin jafnvel seint á árinu
1977 og verður næsti áfangi að Ijúka annarri
hæð, þar sem ætlunin er að almenn og sér-
hæfð læknisþjónusta verði til húsa.
Á Seltjarnarnesi er unnið að undirbúningi
heilsugæzlustöðvar, sem einnig mun þjóna
Vesturbænum, enda hefir tekizt samvinna
Seltirninga og Reykvíkinga um byggingu
hennar.
í Kópavogi er að hefjast innrétting hús-
næðis fyrir heilsugæzlu í hinum nýja miðbæ