Læknablaðið - 01.09.1976, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ
151
þolæfingar. Ef kyrrsetumaður er rannsak-
aður fyrir og eftir reglulega þátttöku i
þolæfingum, fást ýmsar athyglisverðar
niðurstöður. Við framkvæmd ákveðinnar
vinnu eyðir hann nákvæmlega jafnmiklu
súrefni, því sama vinnumagn, t. d. ganga
1 km á jafnsléttu, þarfnast ávallt ákveðins
orku- eða súrefnismagns, sem er hið sama
fyrir alla einstaklinga, ef þeir hafa sömu
líkamsþyngd og vinnutækni. Hins vegar
er blóðstreymi til vöðva í hvíld eða við
sömu vinnu mun minna en áður, svo
vöðvar hljóta að geta dregið meira súrefni
úr blóðinu, eins og sannast með auknum
mismun á súrefnisþrýstingi í slagæða- og
bláæðablóði. Þess vegna þarf hjartað að
dæla minna blóðmagni út í æðakerfið, þ. e
álag á því minnkar og hjartsláttur hægist.
hlutfall framleidds koldíoxíðs og neytts
súrefnis (öndunarstuðull = C02/02) er
lægra en áður, þ. e. meira súrefni binzt í
líkamanum. Þetta bendir til aukins bruna
kolvatna, eins og hefur verið sannað með
mælingum á umsetningarhraða 14C
merktra fitusýra í 14Oa í þjálfuðum og
óþjálfuðum mönnum.1415 Hærra magn
frírra fitusýra í serum þjálfaðra manná16 13
bendir til þess, að myndun fitusýra úr fitu-
vef sé auðveldari. í þjálfuðum mönnum
finnst lægra magn mjólkursýru í vöðvum
og blóði við ákveðna vinnu. Eins og lengi
var haldið, er það ekki aukið aðstreymi
súrefnis til vöðvans, sem veldur, he'ldur
betri nýting þess með auknum ærobiskum
bruna,18 svo vöðvinn er fær um að brenna
meira af fitu, fitusýrum og mjólkursýru,
í stað þess að brenna giycogeni anærobiskt
með myndun mjólkursýru.
Sú aðlögun, sem á sér stað í vöðvunum
til að auka súrefnisumsetningu, er að því
bezt er vitað, tvíþætt. Myoglobinmagn er
aukið, allt upp í 80%, t. d. í fótavöðvum
langhlaupara.11 Vitað er frá in vitro rann-
sóknum, að myoglobin eykur súrefnis-
flutning um vökva17 og þá líklega um
cytoplasma in vivo,18 svo nýting súrefnis
batnar. í öðru lagi verða mikilvægar breyt-
ingar á öndunarenzymum (mitochondria),
sem auka eggj ahvítumagn sitt og stækka
verulega, fjölgar í frumunum og auka
starfsemi sína.10 Við þessar breytingar
svipar þjálfuðum vöðva meira til hjarta-
VÖðva.
Súrefnisneyzla vöðva stjórnast að
mestu leyti af magni ADP, AMP og P, í
öndunarenzymum frá niðurbroti ATP.-°
Við líkamsáreynslu eykst magn ADP, AMP
og Px með vaxandi súrefnisskuld vöðvans,
en magn ATP og CP (creatin phosphate)
minnkar að sama skapi, unz ákveðnu
marki. er náð. Þá er hleypt af sitað efna-
breytingum með aukinni súrefnisupptöku
og fosforiseringu (oxidative phosphoryla-
tion) til nýmyndunar ATP og myndunar
jafnvægis. í þjálfuðum vöðvum byrja þess-
ar efnabreytingar við miklu lægra magn
ADP, AMP og Pj, og þess vegna við lægri
súrefnisskuld vöðvans, svo jafnvægi kemst
á miklu fyrr. Hraði niðurbrots á glycogeni
eykst í hlutfalli við vaxandi magn ADP,
AMP og Pj, en minnkar með vaxandi
magni ATP og CP.21 Þar eð þjálfaðir vöðv-
ar ná jafnvægi við miklu lægra magn
ADP, AMP og P1( brotnar glycogen hæg-
ar niður við sömu vinnu,18 en bruni fitu-
sýra og mjólkursýru eykst að sama skapi.
Hins vegar er ekki kunnugt um neinar
rannsóknir, sem sýna auknar birgðir
glycogens í vöðvum eða að glycolytisk
hæfni þeirra sé aukin við þjálfun.
Síðast en ekki sízt er rétt að benda á,
að aukinn ærobiskur bruni er mun hag-
nýtari en anærobiskur, þar eð hver eining
kolvetna gefur á þann hátt 8-9 sinnum
fleiri hitaeiningar.
Allt þetta miðar að því, að vöðvar geti
unnið meira starf með minna álagi á
hjarta, svo augljóslega væru hjartasjúkl-
ingar mun bættari með þjálfaða vöðva-
starfsemi.
GEÐ
Áhrif líkamsæfinga á geðheilsu manna
eru venjulega til góðs, þó'tt erfitt sé að
mæla þau nákvæmlega. Má helzt til nefna
aukið þol gegn andlegri streitu, áhyggju-
lausara líferni og meiri lífsgleði, bætta
sjálfsímynd, bætta lífshætti, svo sem reglu-
legri svefn og oft hófsamari reykingar og
vínneyzlu. Sumir álíta jafnvel, að líkams-
æfingar valdi skarpari hugsun, og leiða
að því þau rök, að blóðstreymi til allra
líkamshluta batni, þar með til heilans,
sem á þann hátt fær meira súrefni og
skerpist að hugsun.22