Læknablaðið - 01.09.1976, Blaðsíða 66
164
LÆKNABLAÐIÐ
þótt með góðum vilja, réttu mati og að-
ferðum mætti minnka þann hóp mikið,
því orsakir eins og minnkað líkamsþol,
óraunhæfur kvíði og brjóstverkir, áhuga-
leysi vinnuveitanda og skortur á þjálfun
til annarra starfa, skipa efstu sætin á list-
anum.
5. stig: Lokastig endurhæfingar hefst,
þegar sjúkl. virðist hafa náð sér að fullu
og hafið fyrri störf og iðju án verulegra
óþæginda. í flestum tilvikum er það 10-14
vikum eftir kransæðastíflu. Nú eru hafn-
ar æfingar, sem miða að því að auka þrek
og þol sjúklings, jafnvel fram yfir það,
sem áður var. Áhrif þolæfinga á líkams-
starfsemi kransæðasjúklinga eru í flestu
eins og í heilbrigðum (tafla I), þótt þær
krefjist meiri varkárni í framkvæmd vegna
aukinnar áhættu. Áður en þær eru hafnar,
er enn nauðsynlegt að meta líkamlegt
atgervi sjúklings og pathologiskar tak-
markanir hjarta- og æðakerfis með ná-
kvæmri læknisskoðun og þrekprófi. Ef
óhætt er, eru æfingar hafnar, venjulega
með öðrum kransæðasjúklingum á endur-
hæfingardeild sjúkrahúss, þar sem hægt
er að kalla skjótt til hjálp, ef eitthvað ber
út af. Æfingunum er stjórnað af hjúkrun-
arkonu eða sjúkraþjálfa, sem kunna vel
til endurlífgunar og þekkja hættumerki
hjartasjúkdóma. í byrjun eru framkvæmd-
ar staðæfingar og hjólað á æfingarhjóli
með orkunotkun í samræmi við mælt þol,
og er venjulega miðað við, að hjartsláttur
fari ekki fram úr 60-70% af áætluðu há-
marki. Á þriggja mánaða fresti er sjúkl-
ingur þrekprófaður, til að kanna framfarir
og breyta æfingum í samræmi við þær.
Á meðan þrek sjúklings eykst með þess-
um æfingum, er þeim haldið áfram reglu-
lega, en í flestum tilvikum munu annars
konar og nokkuð erfiðari æfingar hent-
ugri 10-14 mánuðum eftir kransæðastífl-
una. Þær æfingar eru háðar áhuga hvers
og eins og geta verið: rösk ganga, skokk,
sund, róður, léttir knattleikir o. s. frv.
Körfuknattleikur, blak og badminton er
heppilegt fyrir þá, sem þurfa samkeppni.
en þeir skyldu þó vera áminntir um að
gæta hófs. Alltaf skal miðað við að fara
ekki fram úr leyfilegri orkuneyzlu og
telja reglulega púls til viðmiðunar. Stjórn-
andi æfinganna þarf að kunna til lífgunar
og hafa nauðsynleg áhöld og lyf tiltæk,
en ekki er hagkvæmt eða nauðsynlegt að
hafa æfingarnar á sjúkrahúsi. Hins vegar
ætti að vera hægt að kalla til lækni strax,
og væri reyndar æskilegt, að læknar, sem
standa að þessum æfingum, tækju þátt í
þeim sjálfir til að efla áhuga sjúklinga og
sjálfum sér til góðs. Tvisvar á ári ætti
að skoða sjúkling nákvæmlega og mæla
þrek.
Á þessu lokastigi endurhæfingar eftir
kransæðastíflu er mikilvægt að gleyma
ekki geðrænum og félagslegum vanda-
málum sjúklings. Þótt aukið þrek minnki
vissulega þunglyndi, kvíða og alls kyns
kvartanir, þá eiga margir við geðræn
vandamál að stríða, sem lyf og hjálp geð-
læknis ná ekki að leysa. Hópfundir hjarta-
sjúklinga með sálfræðingi eða geðlækni,
þar sem þeir ræða vandamál sin hver við
annan, hafa verið mörgum til góðs og
gefið þeim betri og raunhæfari innsýn
við lausn vandans. Félagsráðgjafar eru
sjúklingum tiltækir við lausn vandamála
heima fyrir, í vinnu eða gagnvart trygg-
ingafélögum og ríki. Matarfræðingar halda
áfram að veita nauðsynlegar upplýsingar
um æskilegar breytingar á mataræði í
samræmi við læknisráð.
LOKAORÐ
Þetta síðasta stig endurhæfingar krans-
æðasjúklinga gæti allt eins verið fyrsta
stig líkamsæfinga fyrir óþjálfað fólk, sem
vill auka þrek sitt og e. t. v. minnka líkur
sínar fyrir að fá kransæðastíflu. í þann
hóp falla líklega flestir kyrrsetumenn, sem
komnir eru yfir þrítugt. Klúbbar, eins og
Frímúrarar, Oddfellowar, Lions, Rotary,
Kiwanis og fleiri ættu að nota aðstöðu
sína og áhrif, til að stuðla að bættri heilsu
félaga sinna með reglulegum líkamsæfing-
um. íþróttafélögin ættu ekki eingöngu
að hugsa um að vinna mót og setja
met heldur stuðla að því, að félagar
þeirra hætti ekki líkamsæfingum þótt
þeir eldist og kcmist ekki lengur i
kapplið. Atvinnurekendur mættu athuga
möguleika á að koma upp aðstöðu til eða
skipuleggja reglulegar líkamsæfingar fyr-
ir starfsfólk sitt. Bæjarfélögin gætu auð-
veldlega greitt götu samtaka áhugafólks
með því að opna íþróttahús skólanna fyrir