Læknablaðið - 15.09.1980, Page 33
LÆKNABLADID
215
11. í greinargerð rannsóknarinnar er, að
miklu leyti, stuðst við svokallaða »df in-
dex« fyrir barnatennur og »DMF index«
fyrir fullorðinstennur. DMF index eða
DMF talan, er fengin með pví að leggja
saman fjölda tanna með tannskemmdir
(D), fjölda tanna, sem hafa verið fjarlægð-
ar sökum tannskemmda (M) og fjölda
viðgerðra tanna (F). T.d.: Barn, sem hefur
prjár skemmdar tennur, tvær fjarlægðar
tennur og fimm viðgerðar tennur, hefur
DMF töluna 10, p.e. í þessu barni hafa 10
tennur orðið fyrir árás tannskemmda, að
minnsta kosti einu sinni. Við athugun á
barnatönnunum er stuðst við (df) tölu, eða
fjölda skemmdra (d) og viðgerðra (f)
tanna. Fjarverandi barnatennur eru ekki
taldar með, pví erfitt er að staðhæfa, í
sumum aldursflokkum, hvort fjarverandi
barnatennur hafi verið fjarlægðar vegna
tannskemmda eða fallið á eðlilegan hátt
vegna komu fullorðinstannanna.
NIÐURSTÖÐUR
Þessum lið greinargerðarinnar er skipt í prjú
megin atriði: 1. Heildaryfirlit yfir tannheil-
brigði 6-14 ára íslendinga, 2. Magn viðgerðra
tanna (»viðgerðarstig«), og 3. Tíðni tann-
skemmda eftir búsetu barnanna.
1. Heildaryfirlit yfir tannheilbrigdi 6-14 ára
Islendinga
Börnin, sem þátt tóku í rannsókninni, voru
búsett ýmist í kaupstöðum eða í sveit, og var
hlutfallstala pessara tveggja rannsóknarhópa,
p.e. kaupstaðabörn og sveitabörn, sambærileg
hlutfallstölunni, sem fæst við flokkun allra 6-14
ára íslenskra barna eftir búsetu peirra. Má því
fá nokkuð haldgóða heildarmynd af tannheil-
brigði 6-14 ára íslenskra barna með því að
sameina gögnin úr rannsóknarsvæðunum
þremur.
Barnatennur
í töflu II má sjá meðalfjölda barnatanna, sem
til staðar eru, og meðaltölur skemmdra, við-
gerðra og skemmdra + viðgerðra (df) barna-
tanna eftir aldri og kyni. Hæstu meðaltölur
skemmdra barnatanna voru 6.41 í sex ára
stúlkum og 4.96 í sjö ára drengjum. Mismunur
eftir kyni reyndist ekki tölfræðilega raunhæf-
ur. Ef miðað er við fjölda barnatanna, sem til
staðar eru hverju sinni, var tíðni skemmdra
barnatanna í íslenskum börnum mjög há, en
nær helmingur allra barnatannanna í 6-11 ára
börnum voru skemmdar. Meðaltölur vid-
gerdra barnatanna í sex, sjö, átta og níu ára
íslenskum börnum voru 0.55, 0.51, 0.40 og 0.26
á barn. í sömu aldursflokkum í norskum
börnum (13) voru meðaltölur viðgerðra barna-
tanna 1.2, 2.0, 1.4 og 1.3 á barn, eða liðlega
tvöfaldar íslensku meðaltölurnar. Hinar lágu
meðaltölur viðgerðra barnatanna gefa í skyn
áhugaleysi fyrir viðhaldi barnatannanna í
íslenskum börnum.
Mynd 1 sýnir hlutföll skemmdra, viðgerðra
og heilbrigðra tanna af öllum barnatönnum,
sem til staðar eru, eftir aldri barnanna. Upplýs-
ingum um 12-14 ára börn er sleppt vegna
mjög takmarkaðs fjölda barnatanna í þessum
aldursflokki. Hlutfall skemmdra og viðgerðra
barnatanna hækkar úr 40.8 % í sex ára börn-
um upp í 66.7 % í 11 ára börnum. Ennfremur
má sjá hversu smár hlutur viðgerðra barna-
tanna er í öllum aldursflokkum.
Athugun á tíðni tannskemmda samkvæmt
fjölda tannflata, sem orðið hafa fyrir árás
tannátu, leiddi í ljós, að hæstu meðaltölur
Mean number
of teeth
Age in years
Fig. 1. Mean numner of primary teeth present,
decayed, filled and sound per child, by age.