Læknablaðið - 15.04.1986, Síða 14
86
LÆKNABLAÐIÐ
auk þess sem 185 separ voru fjarlægðir hjá
126 sjúklingum. í töflu II er átt við mikil-
vægustu niðurstöðu hjá hverjum sjúklingi,
þar er aðeins sú niðurstaða, sem hefur mesta
þýðingu varðandi horfur sjúklings. Ristil-
sarpar voru mikilvægasta niðurstaðan hjá
þrettán af hverjum hundrað sjúklingum, en
fundust hjá mun fleirum. Krabbamein grein-
dist hjá átján sjúklingum, separ hjá 126.
Flokkun sepa eftir vefjafræðilegri gerð þeirra
sést í töflu III. Fjögur kirtilæxli voru með
staðbundinn krabbameinsvöxt (carcinoma in
situ) og var fjarlæging þeirra endanleg
meðferð. Træplega sjö af hverjum tíu sepum
voru af þeim gerðum, sem hafa tengst við
illkynja vöxt, eins og fram kemur í töflu III.
Tafla II. Mikilvœgustu niðurstöður rannsókna
Fjöldi
Niöurstööur sjúklinga °7o
Separ................................. 126 (28)
Ekkert óeðlilegt fannst................ 87 (19)
Ristilsarpar........................... 62 (13)
Sáraristilbólga ....................... 44 (10)
Eðlilegt ástand eftir aðgerð........... 39 (9)
Engin niðurstaða vegna slæmrar
hreinsunar.......................... 21 (5)
Krabbamein ............................ 18 (4)
Svæðisiðrakvef......................... 13 (3)
Æðamisvöxtur........................... 12 (3)
Þrenging............................... 11 (3)
Ristilbólga eftir geislun .............. 3
Bólga í dausgirni....................... 3
Fjarlæging sauma........................ 3
Ristilbólga vegna blóðþurrðar......... 2
Blæðing frá ristilsörpum.............. 2 (4)
Blæðing vegna ristilbólgu .............. 1
Eitt sár ............................... 1
Ósértæk ristilbólga..................... 1
»Colitis cystica profunda«.............. 1
Samtals............................. 450 (100)
Tafla III. Gerðir sepa
Gerð sepa Fjöldi sepa °7o
A. »Illkynja separ 127 (68.6)
Títukirtilæxli (tubular) 77 (41.6)
Píplukirtilæxli (villous) 28 (15.1)
Píplu-títukirtilæxli
(tubulo-villous adenoma) 18 (9.7)
Kirtilæxli með 4 (2.2)
B. «Góðkynja» separ 58 (31.4)
Vefaukasepar (hyperplastic) 57 (30.8)
Ungæðissepar (juvenile) 1 (0.6)
Samtals 185 (100)
Dreifing sepa og krabbameina um ýmsa
hluta ristilsins reyndist svipuð, það er oftast
í endaþarmi og bugaristli og samræmist það
kenningunni um tengsl þeirra innbyrðis. Hjá
fimm af hundraði tókst speglun ekki vegna
slæmrar hreinsunar i fyrstu atrennu, en alltaf
eftir betri hreinsun.
Alvarlegir fylgikvillar voru engir við sjálfa
speglunina. Aldrei varð blæðing, sem olli
einkennum eða lækkun á blóðrauða og al-
drei götun. Hins vegar fékk einn sjúklingur
slæma ristilbólgu eftir saltvatnsstólpípu, sem
reyndist tífalt of sterk. Eftir það hefur aðeins
verið notuð tilbúin 0,9% matarsalts lausn.
Mynd 1. Ristilkrabbamein (Duke’s A).
Mynd 2. Ristilkrabbamein (Duke’s D).