Læknablaðið - 15.04.1986, Qupperneq 20
90
LÆKNABLAÐIÐ
voru innlagðir á gjörgæsludeild. Ef litið var á
meðvitundarástand sjúklinga við komu, kom
í ljós, að um 80% voru annað hvort djúpt
meðvitundarlausir (coma) eða með skerta
meðvitund (semicoma). Langflestir sjúkling-
anna, eða 389, komu aðeins einu sinni inn á
spítala á þessu tímabili, 39 sjúklingar lágu
tvisvar og aðeins átta sjúklingar voru lagðir
inn oftar en tvisvar. Mikill meirihluti sjúkling-
anna hafði annað hvort tekið fleiri en eitt lyf
Fjöldi
Mynd 3. Fjöldi innlagna eftir mánuðum.
Óvíst
Mynd 4. Hvenœr sólarhrings.
Lyf
Mynd 5. Algengi helstu lyfja. Meðaltalper ár.
eða lyf og áfengi saman, (tafla II). Þegar litið
var á einstaka lyfjaflokka (tafla III) kom í
ljós, að benzodiazepine voru langalgengust en
geðdeyfðar- og sterk geðlyf voru einnig mjög
algeng í lyfjaeitrunum. Algengasta lyfið var
diazepam og tóku það 154 sjúklingar (31%).
Næstalgengasta lyfið var amitryptilin, 74
sjúklingar (15%). f rannsókninni 1971-1975
kom fram að notkun mebumals fór minnk-
andi, en notkun diazepams og amitryptilins
jókst að sama skapi og hefur sú þróun
greinilega haldið áfram (mynd 5). Þegar farið
var yfir sjúkraskrár var reynt að gera sér grein
fyrir ástæðu innlagnar eftir bestu getu (tafla
IV), en slíkt var í mörgum tilfellum mjög
erfitt. Niðurstöður þessarar könnunar, sam-
anborið við fyrri rannsókn, sýnir að tíðni
lyfjamisnotkunar og ölvunar voru svipaðar,
en það voru þeir tveir flokkar, sem auðveldast
var að greina við lestur sjúkraskráa. Erfitt var
hins vegar að draga skýrar línur milli hinna
þriggja flokkanna og því erfitt að bera saman
niðurstöður milli þessara tveggja rannsókna.
í hópnum þar sem um misnotkun lyfja og
áfengis (abusus medicamentorum og ebrietas)
er að ræða eru karlar í áberandi meirihluta,
130/59. í hinum hópnum (tentamen suicidi,
tentamen suicidi obs. og demonstration) voru
konur í miklum meirihluta, 201/106. Með
demonstration er átt við þegar sjúklingur
tekur lyf í því skyni að ögra eða hóta sínum
nánustu fremur en að um ákveðna
sjálfsvígstilraun sé að ræða. Geðlæknisálit
var fengið í 53% tilfella (45% í fyrri rann-
sókn). Flestir fóru heim eða 77%, en 23%
þeirra var fylgt eftir af geðlækni eftir útskrift.
Tuttugu og tvö prósent sjúklinga voru inn-
lagðir á geðdeild, en sjö sjúklingar (1.4%)
létust. Eins og sést í töflu V tóku flestir
sjúklinganna sem létust fleiri en eitt lyf og
voru tricyclisk lyf algengust (i fjórum tilfella).
Einn sjúklingur lést eftir paracetamoleitrun.
UMRÆÐA
Niðurstöður þessarar athugunar sýndu, að
85% sjúklinga komu beint á slysadeild og
voru síðan lagðir þaðan inn á lyflækninga-
deild Borgarspítalans. Til að kanna hversu
stór hlutdeild Borgarspítalans er í lyfjaeitrun-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu var athugað-
ur fjöldi innlagna á Landspítala og Landakot
eftir því sem kostur var og kom í Ijós að
meðalfjöldi innlagna var mjög svipaður á
\