Læknablaðið - 15.10.1986, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 243-5
243
Már Kristjánsson, Sigurður Ingvarsson, Valgarður Egilsson, Egill Jacobsen
SJÚKLINGUR MEÐ KRABBAMEIN í
BLÖÐRUHÁLSKIRTLI OG HÆGFARA EITLA-
FRUMUHVÍTBLÆÐI: FÆKKUN EITILFRUMNA í
BLÓÐI EFTIR ESTRÓGEN-MEÐFERÐ
Af eftirfarandi sjúkrasögu má ráða, að
estrógen-meðferð getur fækkað eitilfrumum í
blóði sjúklings með hægfara
eitlafrumuhvítblæði. Estrógen og skyld efni (t.d.
díetylstilbestról (DES), tamoxífen) hafa verið
notuð i meðferð gegn krabbameini í brjósti og
blöðruhálskirtli (hvekk).
í lok 19. aldar benti Beatson (1) á, að við
brottnám eggjastokka úr sjúklingi með
brjóstakrabbamein rénuðu sjúkdómseinkenni.
Árið 1941 sýndu Huggins og Hodges (2) fram á
verulegan klíniskan bata og lengingu lífs eftir
brottnám á eistum sjúklings með krabbamein í
hvekk. Fljótt varð ljóst, að estrógen hafði svipuð
áhrif.
Um miðjan sjötta áratuginn uppgötvast sértækir
estrógen viðtakar (estrogen receptorac (ER)) í
brjóstaæxlisfrumun (3) og hafa þeir síðan fundist
í mörgum æxlum, m.a. í hvekk. Ekki er til fulls
vitað á hvern hátt estrógen og skyld efni hægja á
æxlisvexti (4, 5). Þáttur sérhæfðra ónæmissvara
við æxlum í brjósti eða hvekk er lítt kannaður (6).
Sjúkrasagan lýsir eitilfrumufækkun eftir
estradiol-meðferð í blóði sjúklins með
krabbamein í hvekk og langvarandi
eitilfrumu-hvítblæði (chronic lymphocytic
leukemia, CLL). Einnig verður greint frá
mælingu á estrógen-viðtökum (ER) í hvítum
blóðkornum (HBK) sjúkling með CLL.
SJÚKRASAGA
Karlmaður, hálfníræður ára, greindist með hægfara
eitlafrumuhvítblæði (chronic lymphocytic leucemia,
CLL) í júlí 1978. Sjúkdómurinn þá talinn á 1. stigi
(Rai-stigun) (7). í september sama ár greindist hjá
honum krabbamein í hvekk. Hvít blóðkorn í blóði voru
þá óeðlilega mörg eða 70x 10’/1 (sjá mynd). Gerð var
beinmergsástunga, og sýndi hún íferð eitilfruma:
Rúmlega 90% þeirra reyndust »litlar eitilfrumur«.
Blóðhagur var a.ö.l. eðlilegur. Röntgenmyndir af
Frá Rannsóknarstofu Háskólans í veirufræði,
frumulíffræðideild Rannsóknarstofu Háskólans við Barónstig
og skurðdeild Landspítalans. Barst ritstjórn 15/03/1986.
Samþykkt til birtingar 05/04/1986.
lungum og beinum sýndu ekki meinvörp og beinaskann
með ísotópum ekki heldur. Krabbameinið í hvekknum
var fjarlægt með skurðaðgerð um þvagrás, og síðan
fékk sjúklingurinn estrógen-meðferð (E2) (sjá mynd). Á
einni viku féll fjöldi hvíta blóðkorna um 60% og var
kominn í 10% af upphafsgildi eftir þriggja vikna
meðferð. Hlutur eitilfrumna í deilitalningu lækkaði á
sama tíma úr 90% í 62%. E2-meðferð varð að stöðva í
febrúar 1979 vegna djúpbólgu (bláæða) í fótum, en hún
var hafin á ný í maí 1979 vegna vaxandi þvagteppu.
Fyrst á eftir var líðan sjúklings þolanleg, en svæsnir
brjóstverkir og þvagteppa leiddu til sjúkrahúsvistunar í
ágúst 1979. Beitt var estramústíni (Estracyt®),
frumueyðandi lyfjum og geislun (sjá mynd), en
sjúklingur lést í nóvember 1979. Krufning sýndi
krabbamein í hvekk (adenocarcinoma) með útbreiðslu í
lifur, hægri hjartagátt, í báðum lungum, auk merkja um
blóðrek (í lungum) og bláæðabólgur; einnig flákar
»lítilla eitilfrumna« í merg og lifur.
Peripheral blood leukocyte count, drugs adrninistered,
cobolt irradiation. A patient with concurrent chronic
lymphocytic leukemia and carcinoma of the prostate.
1. Cyclophosphamide (Endoxan) 500 mg iv,
administered only once. 2. Chlorambucil (Leukeran)
2 mg/day orally. 3. Prednisolon 60 mg/day orally.
4. X-ray irradiation, initially 150 kv, 400 rad 3 times
against nipples. Terminally cobalt (4.000 rad)
administered to the pelvis. 5. Estramustin (Estracyt*)
300 mg/day (half the time as injections, then orally).
6. Polyestradiol (Estradurin) 80 mg monthly (initially
160 mg). 7. Ethynil estradiol 150 microg/day orally.