Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 9

Læknablaðið - 15.10.1986, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ 247 Status Questionary (SPMSQ) (1). Notkun þeirra tekur 3-30 mínútur. MSQ á sér lengsta forsögu og hefur verið rannsakað töluvert. Það reynir fyrst og fremst á áttun og minni og er mjög einfalt. Fundvísi þess og sértækni hefur hins vegar þótt vera í lægsta lagi. SPMSQ er svipað en reynir einnig á athygli og reiknigetu. CCSE er ítarlegra og bætir við á sviði næmi og málskilnings en form- og verkskilningi er minna sinnt. MMS er svipað og CCSE en tekur meira til form- og verkskilnings. Þessi próf taka um 3-10 mínútur. MDRS er Iengra, um 30 mínútur, og hentar því illa sem skimpróf hjá mikið veiku fólki eða til að fylgja eftir sjúklingum með óráð. Með þetta að leiðarljósi var ákveðið að skoða eitt af styttri prófunum frekar. MMS varð fyrir valinu þar sem það tekur til form- og verkskilnings, sem er æskilegt vegna þess að próf, sem ekki taka til slíks, eru ekki eins næm til að meta hæfni einstaklingsins til sjálfshjálpar (2). Um Mini-Mental State Examination (MMS); Prófið var hannað af Folstein og félögum (3), þar sem þeim fannst vanta próf fyrir vitrænt hugarstarf sem væri fljótlegt. Þær aðferðir sem voru í notkun væru seinlegar og sjúklingar með óráð (delerium) eða með glöp (dementia) þreyttust of fljótt til þess að hægt væri að slá mati á þá. í ljósi þessa hönnuðu þeir MMS, sem stutt próf er liti að vitrænu hugarstarfi (cognitive function), en snerti lítið eða ekki á lundarfari, ranghugmyndum eða formi hugsunar. Fræðilega skiptist prófið í tvo hluta. Sá fyrri gefur 21 stig fyrir svör við stöðluðum spurningum um áttun, næmi, athygli eða reiknigetu og minni. Seinni hlutinn metur hæfni til að nefna hluti, fylgja leiðbeiningum, skrifa eigin hugmyndir og líkja eftir Bender-Gestaltmynd og gefur 9 stig. Hæsta einkunn á prófinu er þannig 30 stig (sjá viðbæti). Prófið hefur verið rannsakað allnokkuð. Fyrsta athugunin (3) laut að sjúklingum með elliglöp (dementia senilis), þunglyndisglöp (pseudodementia) og þunglyndi í samanburði við heilbrigða. Helstu niðurstöður voru þær að elliglapasjúklingar fengu 9,7 stig að meðaltali, þeir sem hrjáðust af þunglyndisglöpum 19,0, þunglyndir 25,1 og heilbrigðir 27,6. Einkunn fyrir neðan 21 benti á einhver glöp. Einnig voru athuguð tengsl við greindarpróf Wechslers fyrir fullorðna, sem er mjög mikið notað og er samsett úr munnlegum og verklegum hluta. Tengslin virtust góð við munnlega hlutann (R = 0,776) og sömuleiðis við þann verklega. Prófið reyndist mjög stöðugt og óháð því hverjir lögðu það fyrir. Hins vegar var ekki hægt að greina orsakir glapa með því. Reynt hefur verið að kanna með hjálp tölvusneiðmynda af höfði tengsl sjáanlegra skemmda með þessari tækni við árangur samkvæmt MMS. Niðurstöður bentu á að prófið væri hjálplegt við mat á heilaskemmdum (4). Einstaklingar með eðlilega tölvusneiðmynd hafa hærri einkunn en þeir sem eru með óeðlilega mynd. Heilarýrnun með eða án staðbundinna skemmda tengdist lægri einkunn á prófinu frekar en staðbundnar skemmdir einvörðungu. í annarri rannsókn á 126 sjúklingum á taugasjúkdómadeild reyndist prófið ekki gagnlegt til að greina einstaklinga með dreifðar heilaskemmdir frá þeim, sem hafa staðbundnar skemmdir (5). Þó fengu sjúklingar með skemmdir í báðum heilahvelum eða aðeins í því vinstra færri stig en einstaklingar með eðlilega tölvusneiðmynd eða eingöngu skemmdir í hægra heilahveli. Sjúklingar með sjáanlega skemmd í heila gátu haft upp undir 27 stig. í þessari athugun var prófið likt og þau fyrrnefndu mjög stöðugt og fengu einstaklingar, í óbreyttu ástandi sama stigafjölda frá einum tíma til annars en prófstöðugleikinn hefur ekki farið niður fyrir 0,89 hjá sama prófanda og ekki niður fyrir 0,82 milli prófenda (6). Einkunn fyrir neðan 21 stig virðist glögg vísbending um að glöp væru á ferðinni. Þetta gaf því tilefni til að athuga hversu áreiðanlegt prófið er til skimleitar. Við leit að glöpum á lyflækningadeild var fundvísi (næmi) prófins 87.0% og sértækni 82,4% ef miðað er við 23/24 mörkin. Falsk jákvæðir voru um 39% og falsk neikvæðir 4,7%. Þeir sem voru falsk jákvæðir höfðu stutt skólanám að baki («9ár) og voru flestir eldri en 60 ára. Minni virtist einkum versna með hækkandi aldri en menntun hafði áhrif á tímaáttun, athygli, minni og færni til að afrita Bender-Gestalt mynd (BG). BG færni var mjög tengd menntun en það jók sértækni prófsins aðeins lítilega að sleppa því hjá þeim sem höfðu stutta skólagöngu að baki. Því var lagt til að reynt yrði að einfalda verkefnið og aðgæta hvaða áhrif það hefði. Önnur atriði voru ekki eins tengd menntun en vegna þess að vægi þeirra í prófinu er meira jókst sértæknin hlutfallslega meira við að sleppa þeim en það var á kostnað næmis. Samkvæmt framansögðu má gera ráð fyrir að séu

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.