Læknablaðið - 15.10.1986, Page 10
248
LÆKNABLAÐIÐ
mörkin 23/24 notuð við skimleit fyrir glöpum hjá
þeim sem hafa stutta skólagöngu og eru aldraðir
þá geti hlutfallslega margir af þeim flokkast
ranglega sem skertir (6).
FRAMKVÆMD ATHUGUNARINNAR OG
EFNIVIÐUR
Prófið var lagt fyrir samtals 169 einstaklinga á
tímabilinu frá 14.10.1985 til 18.04.1986.
Athugaðir voru fimm hópar: þrír sjúklingahópar,
á öldrunarlækningadeild, á lyflækningadeild, og
á áfengisdeild og utan sjúkrahúss voru athugaðir
tveir hópar, verkamenn og aldraðir sem búa einir
(sjá töflu I). Notað var »Mini Mental State«-próf
með »Benton Visual Retention« afbrigði (BVRT).
Sjúklingar á lyflækningadeild voru einnig
prófaðir með Bender-Gestalt afbrigði (BG).
BVRT felst í því, að sjúklingurinn á að skoða
fimmhyrning í 10 sekúndur og teikna hann síðan
eftir minni. BG byggist á tveimur
fimmhyrningum, sem skerast og á sjúklingurinn
að líkja eftir þeirri mynd. BVRT gerir þennan
prófþátt væntanlega meira minnisháðan og þar
með aldursháðan, sem er mun betur afmarkanleg
breyta en menntun, sem torvelt er að meta hjá
gömlu fólki, sem alið er upp við allt aðrar
kringumstæður en yngra fólk. Auk þess má búast
við, að breytingin dragi úr áhrifum klaufsku, sem
hlýtur að vera æskilegt, ef rúmlægt fólk er
prófað. Flestir voru prófaðir milli klukkan 08 og
19, en þó voru nokkrir á áfengisdeild prófaðir á
öðrum tímum, ef þeir komu inn að kvöldi eða
næturlagi.
Á öldrunarlækningadeild voru prófaðir 37
sjúklingar. Þetta eru mikið veikir öldungar, sem
sumir liggja lengi á deildinni. Bráðainnlagnir eru
fáar, en öldungarnir eru flestir lagðir inn á
deildina með tilliti til þeirra rannsókna,
endurhæfingar og umönnunar sem deildin getur
boðið. Sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum
stjórnar meðferð á deildinni og þar starfa tveir
aðstoðarlæknar. Fyrir hvern sjúkling er til
vandamálalisti og vinnugreiningar, sem gerð eru
af aðstoðarlæknum undir umsjá sérfræðings
deildarinnar. Niðurstöður á MMS-prófinu voru
bornar saman við vinnugreiningarnar. Einni til
tveimur vikum síðar var prófið síðan lagt aftur
fyrir þá einstaklinga, sem samkvæmt gögnum
deildarinnar voru við óbreytta líðan, alls 26
einstaklinga. Lýsingar á tölvusneiðmyndum af
höfði 26 sjúklinga deildarinnar voru bornar
saman við MMS niðurstöður sömu sjúklinga.
Orðið heilarýrnun er aldrei notað í þessum 26
svörum, en hér eru svör, þar sem getið er um
»víða gyrusa, sulci og víkkun á heilahólfum«,
flokkuð sem heilarýrnun.
Sjúklingar lyflækningadeildar voru á fjórum
göngum eftir tegund eða eðli vandamála (hjarta,
lungna, innkirtla, meltingar, gigtar o.fl.). Á
hverjum gangi eru tveir aðstoðarlæknar, reyndur
aðstoðarlæknir, sem er ráðinn til eins árs í senn
og náms-aðstoðarlæknir (kandidat), sem ráðinn
er í 2-4 mánuði í senn, oftast fjóra. Á hverjum
gangi eru 2-4 hjúkrunarfræðingar á morgunvakt.
Á rannsóknardegi voru 80 sjúklingar á deildinni.
Fimmtiu og átta voru 60 ára og eldri og af þeim
þreyttu 56 prófið. Þeir tveir sem féllu út voru
annars vegar 85 ára karl með hjartadrep og 67 ára
kona, sem vildi ekki láta prófa sig. Sólarhring
síðar (20-28 klukkustundum) voru 48 sjúklingar
prófaðir aftur, fimm höfðu útskrifast og þrír
voru í öðrum rannsóknum, þannig að ekki var
hægt að prófa þá innan þessara tímamarka. Þá
voru báðir aðstoðarlæknarnir og tveir
hjúkrunarfræðingar á morgunvakt á hverjum
gangi beðnir um að meta hverjir væru með glöp
eftir skalanum »veit ekki - ekki dement - kannski
dement - dement - mjög dement«. Þeir sem voru
með óráði skyldu merkjast »kannski dement«. í
niðurstöðunum eru þeir flokkaðir sér sem
starfsfólkið telur »ekki dement« og hinir settir í
einn flokk »glöp«. Starfsfólkið var einnig beðið
um að merkja við þunglyndisskala »veit ekki -
ekki þunglynd(ur) - kannski þunglynd(ur) -
þunglynd(ur)«. Sömuleiðis var starfsfólkið beðið
um að merkja við wástand batnandi - ástand
stöðugt - ástand versnandi«. Álit starfsfólks á
þunglyndi og ástandi sjúklings var fengið til þess
að starfsfólkið hugsaði meira um hann þegar það
væri að meta hvort sjúklingurinn væri með
einhver glöp.
Þriðji hópurinn voru allir sjúklingar sem komu til
afeitrunar á áfengisdeild á hálfum mánaði alls 24
einstaklingar. Áður en sjúklingar leggjast inn á
deildina eru þeir metnir af lækni í göngudeild,
sem ákveður hvort afeitrun getur farið fram þar
eða hvort sjúklingurinn þarf að leggjast inn.
Sérfræðingur í geðsjúkdómum með reynslu á
sviði lyflækninga stjórnar meðferð sjúklinganna.
Auk hans eru á deildinni aðstoðarlæknir og
hjúkrunarfólk. Sjúklingarnir voru prófaðir innan
8 klukkustunda frá komu og aftur, þegar
sjúklingurinn lauk frá hvarfsmeðferðinni. Aðeins
tveir útskrifuðust í skyndingu án þess að hægt
væri að prófa þá aftur. Því voru 22 tvíprófaðir.
Sjúkrasaga þeirra var skoðuð með sérstöku tilliti
til áfengis-, krampa- og slysasögu og sú saga
borin saman við niðurstöður á MMS-prófinu.