Læknablaðið - 15.10.1986, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ
267
konur og 7 karlar á lífi, sem ekki fengust nægar
upplýsingar um og er þeim þess vegna sleppt úr
samanburði. Einn karl reyndist hafa vinstra
greinrof og féll þess vegna úr hópnum.
Heildarfjöldi lifandi einstaklinga til marktæks
samanburðar varð þvi 62 konur (92,5%) og 82
karlar (91,1%). Upplýsingar um sjúkrasögur
hinna látnu nýtast einnig til samanburðar.
í fyrri grein (1) var lýst sams konar rannsóknum á
greinrofshópnum utan áreynsluprófs, sem gert
var á traðkmyllu eftir fyrirsögn Bruce (5), nema
sérstök frábending væri fyrir hendi. Áreynsluþol
greinrofshóps var metið eftir sjúkrasögu og
áreynsluprófi og flokkað eftir skiimerkjum New
York Heart Association. Áreynsluþolið var borið
saman við gönguþol kyrrsetufóiks á traðkmyllu í
rannsókn Bruce frá 1973 (5), af sama aldri og
kyni. Einnig var athugað, hvort fram kæmu
breytingar á hjartarafriti svo sem
hjartsláttartruflanir eða frekari leiðslurof.
Áreynslu var hætt þegar sjúklingarnir gáfust upp
vegna þreytu í fótum, mæði eða vegna
brjóstverkja. Einnig ef fram komu tíð eða
fjölþætt aukaslög frá sleglum.
Kí-kvaðrati og t-prófi stúdents var beitt við
tölulega útreikninga.
NIÐURSTÖÐUR
Hjarta- og œðasjúkdómar. Samanburður á
algengi hjarta- og æðasjúkdóma hjá
greinrofshópi og samanburðarhópi leiddi í ljós,
að ekki var marktækur munur á hjartakveisu,
hjartadrepi eða háþrýstingi (tafla II). Ein kona í
samanburðarhópi reyndist hafa
ofþykktarsjúkdóm í hjartavöðva
(cardiomyopathia hypertrophica), en sjö karlar í
greinrofshópi (p< 0,001) þar af einn með
ofþykktarsjúkdóm en sex með ofrýmissjúkdóm
(cardiomyopathia congestiva).
Einn karl og ein kona í samanburðarhópi höfðu
frumsjúkdóm í leiðslukerfinu (primary
conduction disorder). Þau höfðu bæði hægra
greinrof án annarra merkja um hjartaeða
æðasjúkdóma. Níu sjúklingar á lífi í
greinrofshópi höfðu frumsjúkdóm í
leiðslukerfinu.
Mismunandi heildarfjöldi einstaklinga í
samanburðarhópi í töflu II, auðkennt með
stjörnum, er vegna þess, að misítarlegar
upplýsingar lágu fyrir varðandi hvern og einn.
Annars vegar er eingöngu stuðst við
sjúkraskýrslur sjúkrahúsanna og Hjartaverndar
eða krufningaskýrslur. Hins vegar er um að ræða
einstaklinga sem mættu til skoðunar.
Tveir karlar og ein kona úr greinrofshópi höfðu
hjartagangráð en enginn i samanburðarhópi.
Einn karl úr greinrofshópi og fimm úr
samanburðarhópi höfðu farið í kransæðaaðgerð,
en engin kona.
Ekki er marktækur munur á fjölda látinna í
hópunum tveimur (tafla III). Þrír karlar voru
látnir vegna hjartavöðvasjúkdóms í
greinrofshópi, en enginn í samanburðarhópi
(p<0,02). Annars var ekki munur á
dánarorsökum.
Hjartaómritun. Hún reyndist möguleg hjá 35 úr
greinrofshópi og 122 úr samanburðarhópi. Af
þessum 35 höfðu 9 frumsjúkdóm í leiðslukerfinu
og af 122 í samanburðarhópi virtust 56
heilbrigðir, án merkja um sjúkdóma í hjarta- og
æðakerfi.
Þykkt sleglaskiptar (septum intervetriculare) var
að meðaltali áþekk í greinrofshópi (1,23
sentimetrar ±0,38) og í samanburðarhópi (1,19
sm±0,26), einnig þegar eingöngu eru bornir
saman þeir með frumsjúkdóm í leiðslukerfinu
(1,17 sm±0,19) og heilbrigðir (1,13 sm±0,20).
Munurinn er í hvorugu tilvikinu marktækur.
Þykknuð sleglaskipt (> 1,5 sm) fannst hjá þremur
Table II. Associated cardiovasculer diseasesfor LBBB group and controls.
Cardiovascular diagnosis LBBB M + W Controls M + W P Valuc
Angina pectoris.................................... 12(27,3%) 39*) (23,9%) N.S.
Myocardial infarction ............................. 8 (18,2%) 27*) (16,6%) N.S.
Arterial hypertension.............................. 15(34,1%) 60**) (41,4%) N.S.
Cardiomyopathy..................................... 7(15,9%) 1***) (0,8%) p<0.001
Primary conductio disorder......................... 13(29,5%) 2***) (1,5%)
Deaths.............................................. 7(15,9%) 19 (10,8%) N.S.
Total 44 163
*) A total of 163 controls, •*) A total of 145 controls, •*•) A total of 130 controls.