Læknablaðið - 15.10.1986, Side 54
274
LÆKNABLAÐIÐ
Age specific incidence rate per 100.000 for cancer of thyroid,
incidental cases
| males
females
Age in years at diagnosis
Fig. 4. Incidentally found cases of thyroid cancer. Age specific incidence rates: Numberper 100.000population per
annum.
kringum 1965 á að verulegu leyti rætur að rekja til
aukins fjölda totumyndandi krabbameinstilfella
(mynd 9). Á öðru fimm ára tímabilinu 1960-1964
var nýgengi á ári fyrir konur með totumyndandi
krabbamein 4,1 en hækkaði i 12,2 á árunum
19651969. Nýgengi fyrir karla hækkaði úr 0,7 í
4,0. Þessi aukning reyndist marktæk fyrir bæði
kynin (p«0,05). Sömuleiðis var fækkun á
greindum tilfellum síðustu fimm árin tengd sömu
vefjagerð. Frá tímabilinu 1975-1979 lækkaði
nýgengi á ári hjá konum úr 11,3 í 6,9 1980-1984,
en hjá körlum úr 6,2 í 3,6. Reyndist lækkunin
meðal kvenna marktæk (p«0,05) en ekki meðal
karla. Fjöldi tilfella með villivaxtarkrabbamein
var tiltölulega stöðugur á þessum timabilum eða
frá fjórum i níu tilfelli á hverjum fimm árum.
Sama var að segja um skildilsbúskrabbamein,
þótt breytingin þar milli hverra fimm ára sé
heldur meiri eða frá sjö i 21 greint tilfelli á fimm
árum.