Læknablaðið - 15.10.1986, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ
277
Table II. Anatomical extent of thyroid cancer.
Prctrcatment clinical classification (TNM) Postsurgical histopathological classification (pTNM)
T Nl-3 M1 pT pNl-3 pMl
T0 41 32 5 pTO 2 2 _
T1 189 13 4 pTl 57 7 4
T2 26 3 - pT2 150 13 1
T3 73 3 1 pT3 98 29 6
T4 76 33 15 pT4 77 32 7
Tx 23 5 6 pTx 54 21 7
Total 428 89 31 Total 428 104 25
totumyndandi vefjagerð við greiningu (24%) og
fjarmeinvörp 11 (4%). Meðal sjúklinga með
skildilsbús-krabbamein höfðu 16 (21%)
eitlameinvörp og 8 (12%) fjarmeinvörp við
greiningu. Meðalstærð æxlis við greiningu var
mest fyrstu tvö fimm ára tímabilin, en hefur síðan
farið minnkandi, sem sést t.d. á því að aðeins einn
sjúklingur reyndist hafa æxli innan við einn
sentimetra við vefjarannsókn fyrstu tíu árin, en
28 sjúklingar næstu tíu ár og sami fjöldi þriðja tíu
ára tímabilið.
í hópi B reyndist æxlið innan við einn og hálfur
sentimetri hjá 74 sjúklingum (þar af þrír
sjúklingar með eitlameinvörp), stærð óviss hjá
þrem sjúklingum en 21 reyndist hafa stærra æxli,
þar af þrír með eitla-meinvörp.
Athugunartímabilinu var skipt niður í sex fimm
ára tímabil og kom í ljós, að fyrstu 10 árin var
greining við krufningu fátíð eða sex sjúklingar.
Næstu tvö fimm ára tímabil 1965-1974 greindust
53 sjúklingar og síðustu 10 árin 39. Krufningar
voru að meðaltali 335 á ári fyrstu 10 árin eða 28%
af dauðsföllum. Næstu tvö 5 ára tímabil
1965-1974 voru þær 500 á ári að meðaltali og 35%
af dauðsföllum fyrir þetta tíu ára tímabil.
Einkenni: í töflu III eru skráð algengustu
einkenni sjúklinganna við greiningu. Algengast
var að sjúklingar hefðu einkennalausa fyrirferð
eða 203 (47%). Tvö hundruð og tuttugu (51%)
sjúklingar höfðu eitt eða fleiri önnur einkenni
(flestir einnig fyrirferð á hálsi). í þessari rannsókn
voru aðeins skráð tvö einkenni hjá hverjum
sjúklingi og voru valin þau einkenni, sem voru
mest áberandi, ef um fleiri en tvö einkenni var að
ræða. Þessi einkenni skiptust á eftirfarandi hátt:
Þrýstingseinkenni í hálsinum (þrengsli við öndun)
56, hæsi 51, kyngingarörðugleikar 39, verkir 30
og 14 höfðu ofstarfsemi á skjaldkirtli. Flestir
þeirra síðasttöldu gengust undir aðgerð vegna
ofstarfsemi á skjaldkirtli (Graves’-sjúkdóms,
adenoma toxica) og fannst lítið krabbamein af
tilviljun við vefjarannsókn. Hjá tveimur þessara
sjúklinga hafði upptaka skjaldkirtils á geislajoði
sýnt heitan hnút á skanni, sem síðar við
vefjarannsókn reyndist innihalda krabbamein.
Áttatíu og fimm sjúklingar höfðu ýmis önnur
almenn einkenni og ekki fengust neinar
upplýsingar um fimm (1%) sjúklinga.
Meðal 118 sjúklinga af 428 (28%) fannst fyrirferð
á hálsinum við almenna læknisskoðun, án þess að
þeir hefðu tekið eftir slíku. Meðal 11 sjúklinga
var engin fyrirferð, en ekki fengust upplýsingar
um 15 sjúklinga. í töflu IV sést skipting í fimm
ára tímabil og kemur þar í ljós að fyrstu tvö fimm
ára tímabilin var óalgengt að æxlið fyndist fyrst
við skoðun en síðan hefur þessum einstaklingum
farið fjölgandi þar til á síðasta tímabili.
Skurðaðgerðir og geislameðferð: Skurðaðgerðir á
þessum sjúklingum sjást í töflu V. Algengasta
aðgerðin var að skera burt annað
skjaldkirtilsblaðið með eða án eiðisbrottnáms
Table III. Initial symptoms and signs in 428patients.
1. A palpable tumor only..................... 203
2. Symptoms ................................. 275
a. Pressure symptoms (difficulty in breathing) 56
b. Hoarseness............................. 51
c. Dysphagia.............................. 39
d. Pain................................... 30
e. Thyrotoxicosis......................... 14
f. Other symptoms......................... 85
3. Unknown..................................... 5
Total number of symptoms and signs 483
Table IV. Tumor in thyroid gland found on rutine
clinical examination.
1955-1959 ............................... 5 patients
1960-1964................................ 8 patients
1965-1969............................... 14 patients
1970-1974............................... 29 patients
1975-1979 .............................. 39 patients
1980-1984............................... 28 patients
Total 118patients
Table V. Extent of surgery in 428 patients.
Total thyroidectiomy.................. 94 patients
Subtotal thyroidectomy............... 101 patients
Lobectomy (and isthmus).............. 122 patients
Nodulectomy........................... 48 patients
Biopsy................................ 37 patients
Tracheotomy............................ 3 patients
No operation.......................... 23 patients
Total 428 patients