Læknablaðið - 15.10.1986, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ
281
UMRÆÐA
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að nýgengi
skjaldkirtils- krabbameins er hátt á íslandi
samanborið við flest önnur Iönd (2, 3), en þessi
rannsókn staðfestir, að svo er einnig, þótt tilfelli
greind af tilviljun við krufningu, séu ekki talin
með (hópur B). Nýgengi á íslandi 1955-1984
miðað við 100.000 íbúa á ári fyrir hóp A + B og
hóp A er sýnt í töflu VII í samanburði við önnur
lönd. í Svíþjóð greindust 368 tilfelli af
skjaldkirtilskrabbameini 1980 (8). Af þessum
fjölda greindust 24 fyrst við krufningu eða 6%,
sem er lægra hlutfall en á íslandi (tafla VII).
Svipað nýgengi og í Svíþjóð er í Noregi og
Finnlandi en aftur lægra í Danmörku (2).
Nýgengi á vissum stöðum í Japan var nokkru
hærra en á Norðurlöndum, en hæst var það
meðal innfæddra á Hawaii (2). Allar þessar tölur
eru staðlaðar við heimsstaðal (World
Population).
Athyglisverð er sú hækkun, sem varð í nýgengi á
íslandi á árunum 1965-69, bæði í hóp A og B.
Eins og fram kemur mátti rekja þessa aukningu
að verulegu leyti til totumyndandi vefjagerðar,
sömuleiðis fækkunina síðustu fimm árin. Erfitt er
að gera sér grein fyrir orsökum þeirrar hækkuðu
tíðni sem varð kringum 1965. Á sama tíma batna
lífslíkur þessara sjúklinga verulega (mynd 13 og
14). Eftir þennan tíma greinast æxlin einnig minni
en áður og fleiri finnast við almenna
læknisskoðun. Þrátt fyrir þessa aukningu í fjölda
greindra tilfella skjaldkirtilskrabbameins, var
ekki um að ræða fleiri dauðsföll af völdum þessa
sjúkdóms. Því er hugsanlegt að eftir 1965 hafi
greinst fleiri einstaklingar með meira hægfara
krabbamein en áður. Hækkandi meðalaldur
íslendinga á þessum 30 árum gæti út af fyrir sig
haft áhrif á nýgengi. Meðalaldur karla hækkkaði
um nálægt þrjú og hálft ár og kvenna um tæp
fimm ár, en skjaldkirtilskrabbamein er algengast í
Table VII. Comparition of incidence rates of thyroid
cancer in different countries: Number of patients per
100.000 population per annum. Adjusted to World
Population.
Country/pcriod Females Males
Iceland 1955-1984 ..................... 12.0 4.6
Clinical group...................... 10.0 3.5
Sweden 1980.............................. 4.4 1.8
Clinical group........................ 4.3 1.6
Denmark 1973-1976....................... 1.4 0.9
USA (Connecticut) 1973-1977 ............. 4.2 1.9
USA (Hawaii) 1973-1977 ................ 17.6 6.0
Japan (Nagasaki City) 1973-1977 ......... 7.3 2.2
elstu aldurshópunum. Einnig var mikill áhugi
fyrir rannsóknum á skjaldkirtilskrabbameini hér
á landi kringum 1965 (9,10) og gæti það hafa
stuðlað að bættri greiningu á þessum sjúkdómi.
Ólíklegt verður að teljast að fjölgun nýrra tilfella
sé vegna geislaáhrifa, þó geislar séu vel þekktur
orsakaþáttur (11). í rannsókn sem gerð var á
sjúklingum með skjaldkirtilskrabbamein á íslandi
1940-60 (9) fannst enginn undir 30 ára aldri við
greiningu sem fengið hafði geislameðferð vegna
góðkynja sjúkdóms áður. Bent hefur verið á, að
hátt joðinnihald í fæðu íslendinga gæti átt þátt í
þessari háu tíðni á totumyndandi krabbameini hér
á landi, sem og í Japan (9). Breyting á kynhlutfalli
krabbameins í skjaldkirtli hefur orðið á þessum
þremur áratugum, lækkun úr 2,9:1 niður í 1,7:1.
Sams konar breyting á kynhlutfalli hefur verið
lýst í öðrum rannsóknum (12).
Fjöldi sjúklinga sem greinist fyrst við krufningu
er mjög breytilegur í birtum rannsóknum. Þar
sem sérstaklega hefur verið leitað eftir
krabbameini við krufningu er tíðnin gefin upp frá
3,6% í Chile (13) upp í 35,6% í Finnlandi (14).
Hér voru framkvæmdar að meðaltali 4-500
krufningar árlega þetta tímabil og greindust að
meðaltali nálægt 3 sjúklingar árlega með
skjaldkirtilskrabbamein við krufningu, sem er
innan við 1 % af heildarkrufningum á þessu
tímabili. Þess ber þó að geta að hér hefur ekki
verið leitað eftir þessu sérstaklega og
framkvæmdin verið eins og lýst er að framan.
í rannsóknum sem gerðar hafa verið ásjúklingum
með skjaldkirtilskrabbamein áíslandi 1940-1962
(9, 10) var skipting ívefjaflokka svipuð og á þessu
athugunartímabili (1955-1984). Þó var hlutfall
totumyndandi vefjagerðar nokkru minna þá en
nú. Við samanburð kemur einnig fram, að
nýgengi hefur aukist jafnt og þétt frá 1940 fram
til 1980. í rannsóknum frá USA (15, 16), er
hlutfall milli vefjaflokka einnig svipað. í
rannsóknum frá Norðurlöndum (3, 17) og víðar í
Evrópu (18, 19) er hlutfall totumyndandi
vefjagerðar aftur á móti lægra.
Meðal sjúklinga með merggerðarkrabba-mein
hafa rannsóknir sýnt ættgengi (auto-somal
dominance) hjá í kringum 20%greindra tilfella
(11) og hafa þessi ættgengu tilfelli betri lífslíkur
en hin (20). Á íslandi hefur ekki verið lýst ætt
með háa tíðni af merggerðarkrabbameini, svo
höfundi sé kunnugt um. Óvíst er, að sá skyldleiki,
sem kom í ljós í rannsókninni, sé meiri en vænta
má meðal íslendinga. Það mælir einnig gegn því,
að um ættgengt form af merggerðarkrabbameini