Læknablaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 49
Asýran ber áiangur!
Asýmn (ranitidín) gegn sármyndun í maga og skeifugöm
TÖFLUR; A 02 B A 02 Hvcr tafla inniheldur: Ranitidinum INN, klóriö, sam-
svarandi Ranitidinum INN 150 mg. Eiginlcikar: Lyfiö blokkar histamínviötæki (H:)
og dregur þannig úr myndun saltsýru í maga. Eftir inntöku vara áhrif lyfsins a.m.k.
8 klst. Helmingunartími í blóði er 2-3 klst. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn
og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (reflux oesophagitis). Zollinger-Ellison
syndrome. Æskilegt er, aö þessar greiningar séu staöfestar meö speglun. Varnandi
meöferð viö endurteknu sári í skeifugörn. Til að hindra sármyndun í maga og
skeifugörn vegna streitu hjá mikiö veikum sjúklingum. Varnandi meöferö viö
cndurteknum blæöingum frá maga eöa skcifugörn. Frábendingar: Ekki er ráölegt
að gefa lyfið vanfærum eöa mjólkandi konum nema brýn ástæða sé til. Ofnæmi fyrir
lyfinu. Aukaverkanir: Þreyta, höfuöverkur, svimi, niöurgangur eöa hægðatregöa.
Ofnæmisviðbrögö (ofnæmislost, útbrot, angioncurotiskt ödem, samdráttur í
berkjum) koma fyrir cinstaka sinnum. Fækkun á hvítum blóökornum cöa blóöflög-
um hafa sést nokkrum sinnum. Tímabundnar breytingar á lifrarstarfsemi. Eitur-
verkanir: Mjög lítil reynsla er enn komin af eiturverkunum ranitidíns. Einkenni:
Hægur hjartsláttur og andþrcngsli. Meðferö: Magatæming, lyfjakol. Reyna má
atrópín viö hægum hjartslætti. Að ööru leyti symtómatísk meöferö. Milliverkanir:
Ekki þekktar. Varúö: Við nýrnabilun gctur þurft aö gefa lægri skammta lyfsins.
Skammtastæröir handa fullorðnum: Við sársjúkdómi í skeifugörn og maga: 150 mg
tvisvar á dag eöa 300 mg að kvöldi. Meðferðin á aö standa í a.m.k. 4 vikur, jafnvel
þótt einkenni hverfí fyrr. Við reflux oesophagitis: 150 mg tvisvar á dag í 8 vikur. Við
Zollinger-Ellison syndrome: í upphafi 150 mg þrisvar á dag. Ekki er mælt með
stærri dagskömmtum en 900 mg. Varnandi meðferð við sári i skeifugörn: 150 mg
fyrir svefn. Lyfið er ekki cetlað börnum.
Pakkningar: Töflur 150 mg:
18 stk.; 60 stk.;
120 stk. (þynnup.
A1
REYKJAVÍKURVEGI 78
222 HAFNARFJÖRÐUR