Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1987, Page 34

Læknablaðið - 15.01.1987, Page 34
20 1987; 73: 20-2 LÆKNABLAÐIÐ Sveinn Magnússon SPÁ UM ATVINNUHORFUR FYRIR ÍSLENSKA LÆKNA FRAM TIL ÁRSINS 2010 Erindi flutt á aðalfundi Læknafélags íslands á Sauðárkróki 22.-23. ágúst 1986 Á vegum læknafélaga Norðurlandanna hefur frá 1976 starfað vinnuhópur undir heitinu SNAPS-hópurinn (Samnordisk arbetsgrupp för prognos och specialist utbildningsfrágor). Vinnuhóp þessum hefur meðal annars verið ætlað að vinna að reglulegum framtíðarspám um fjölda lækna og atvinnuhorfur. Hafa nýjar spár verið lagðar fyrir sameiginlega stjórnarfundi læknafélaga Norðurlandanna sem haldnir eru annað hvert ár. Síðasta skýrsla hópsins var lögð fyrir samnorrænan stjórnarfund sem haldinn var á Álandseyjum 16.-19. júní 1986 og voru þar með í fyrsta skipti tölur fyrir ísland. Spáin nær 25 ár fram í tímann eða fram til ársins 2010. Samkvæmt læknatali voru í árslok 1985 starfandi 983 íslenskir læknar, þar af 693 starfandi á íslandi og 290 erlendis. Skipting hópsins í kyn- og aldursflokka sést á töflu I. Út frá þessum fjölda var síðan áætluð fjölgun í læknastétt. Eftirfarandi forsendur voru notaðar við gerð þeirrar spár: 1. Áætlaður fjöldi útskrifaðra var 60 læknar 1986, 50 árin 1987 og 1988 en frá 1989 hafi numerus clausus áhrif og upp frá því verði 36 útskrifaðir. 2. Áætlaður aldur við upphaf náms er 20 ár og grunnmenntunin taki sex ár. 3. Eftirlaunaaldur verði óbreyttur við 70 ár. 4. Hlutur kvenna aukist í heildarfjölda og verði 30% af viðbótinni. 5. íslenskir læknanemar við nám erlendis verði 1-2 á ári. 6. 99,5% íslenskra lækna starfi áfram við störf þar sem læknismenntunar er krafist. 7. Samnorrænar dánartölur voru notaðar, en þær gera ráð fyrir að í þessum hópi látist fjórir læknar árlega yngri en 70 ára. Einnig var gert ráð fyrir að um svipaðan hóp verði að ræða erlendis áfram, þ.e.a.s. um 300 læknar, umtalsverð stytting vinnutíma verði ekki fram til ársins 2010. Að gefnum þessum forsendum má sjá fjölda lækna fram til ársins 2010 á töflu II. Erfitt er að áætla eftirspurn, þ.e.a.s. stöðuaukningu á ári. í spánni er gert ráð fyrir að stöðum fjölgi um 2,5% árlega sem telja verður nokkuð bjartsýna áætlun. Samkvæmt því yrði um talsvert offramboð að ræða á læknum, mest um árið 1995 eða 150 læknar. Sjá töflu III. Tafla I. fslenskir lœknar 31/12 1985. Aldur Karlar Konur Alls Konur °7o 65-69 ................ 25 - 25 60-64 ................ 43 5 48 (10) 55-59 ................ 73 7 80 (9) 50-54 ................ 88 4 92 (4) 45-49................. 63 7 70 (10) 40-44 ................ 96 15 111 (14) 35-39 ............... 183 16 199 (8) 30-34................ 179 30 209 (14) -29............... 109 40 149 (27) Samtals 859 124 983 (13) Tafla II. Spá fram til 2010. Starfandi lœknar á íslandi yngri en 70 ára. Ár Karlar Konur Alls Konur % 1985 ................. 610 75 685 (11) 1990 ................. 740 150 890 (17) 1995 ................. 820 205 1.025 (20) 2000 ................. 875 255 1.130 (23) 2005 ................. 910 305 1.215 (25) 2010 ................. 975 355 1.330 (27) Gert er ráð fyrir 290 erlendis. Allir vinni fulla vinnu. Meiri háttar stytting vinnu verði ekki. Tafla III. Framboð á og eftirspurn eftir læknum á fslandi fram til 2010. Ár Framboð Eftirspurn Atvinnulausir 1985................. 685 685 1990................. 890 775 115 1995............... 1.025 875 150 2000............... 1.130 990 140 2005............... 1.215 1.120 95 2010............... 1.330 1.270 60

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.