Læknablaðið - 15.11.1988, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
355
meðferð með lóvastatín, 40 mg og 80 mg á dag.
Meðallækkun á heildarmagni kólesteróls í sermi á
80 mg af Ióvastatín varð 34% og LDL-kólesteról
lækkaði enn meira eða um 41%. Svörunin varð
heldur meiri að meðaltali (tölfræðilega
marktækur munur) á 80 mg skammti en 40 mg
skammti en í allmörgum tilfellum náðist
hámarkssvörun þegar á 40 mg skammti. Engin
marktæk breyting varð á HDL-kólesteróli á
lóvastatín 80 mg á dag en lítilsháttar en þó
marktæk hækkun varð á 40 mg skammti. Mest
varð lækkunin á hlutfalli LDL/HDL-kólesteróls,
eða um 42%. Heildarþéttni þríglyseríða lækkaði
marktækt í hópnum um 27% á 80 mg skammti af
lóvastatín.
Enginn munur varð á kólesterólsvörun þess hóps
sem hafði arfbundna hyperkólesterólemiu (FH)
samanborið við hina, í báðum hópunum lækkaði
kólesteról um 34%.
Tafla II sýnir svörun hópsins með hækkuð
fituprótín af flokki Ilb. Veruleg lækkun varð
bæði á kólesteróli og þríglyseríðum. Svipuð varð
svörun þess eina einstaklings sem hafði hækkun
fituprótíns af flokki III en kólesteról hans
lækkaði úr 361 mg/dl í 177 mg/dl, eða um 51%,
og þríglyseríðar lækkuðu úr 461 mg/dl í 315
mg/dl, eða um 32%.
Engin marktæk breyting varð á almennum
blóðrannsóknum eða meinefnarannsóknum á
meðferðartímanum. Tveir einstaklingar fengu
tímabundna hækkun á kreatínín-kínasa (CPK) og
tveir aðrir fengu tímabundna væga hækkun á
glútamýl-transferasa í sermi (S-GGT) án
einkenna. Einn einstaklingur kvartaði um
tímabundið svefnleysi við upphaf meðferðar sem
lagaðist, einn kvartaði um höfuðverk og suð fyrir
eyrum i upphafi meðferðar sem lagaðist af sjálfu
sér og einn einstaklingur kvartaði um almenna
þreytu sem einnig hvarf. Meðallíkamsþyngd
hópsins jókst marktækt (p<0,01) pm 1,1 kg eftir
sex mánaða meðferð. Blóðþrýstingur hélst
óbreyttur og engra breytinga varð vart á
hjartalínuriti. Engin breyting varð á augnskoðun,
sérstaklega varð ekki vart drerbreytinga.
Einn karlmaður á sextugsaldri tók eftir hárlosi á
sjötta mánuði meðferðar sem þegar var hætt. Að
mati húðmeinafræðings (Ellen Mooney) er hér
liklega um að ræða alopecia areata
(androgenháða) óskylda töku lyfsins þótt ekki sé
unnt að fullyrða að svo sé.
UMRÆÐA
Niðurstöður okkar eru svipaðar og nokkurra fyrri
rannsókna (11, 12, 13) og sýna að lóvastatín 40
mg tvisvar á dag lækkar heildarþéttni kólesteróls
og einkanlega LDL-kólesteróls verulega, um
34-40%. Þessi svörun nægir flestum sem byrja
með kólesterólgildi undir 400 mg/dl (10 mmol/1).
Table I. Lipoproteins before and during treatment with lovastatin.
Lovastatin therapy
Mean baseline values 40 mg/day 80 mg/day
mg/dl + SD mmol/1 mg/dl mmol/1 mg/dl mmol/1 " Max difference %
Total se-cholesterol 386 + 65 10.0 280 7.3 255 6.6 - 34 p<0.01 (range 18-55%)
LDL-cholesterol 303 + 70 7.9 196 5.2 179 4.6 - 41 p<0.01
HDL-cholesterol LDL/HDL ratio 56+18 6.0 + 2 1.45 60 3.6 1.6 57 3.5 1.5 - 42 p<0.01
Total se-triglycerides 153 + 91 1.73 119 1.34 111 1.26 - 27 p<0.01
Table II. Patients with type Ilb hyperlipoproteinemia (n = 12).
Lovastatin therapy
Mean baseline values 80 mg/day
mg/dl mmol/1 mg/dl mmol/1 Max. difference °7o
Total se-cholesterol 369 9.9 217 5.6 -41 (p<0.01)
Total se-triglycerides 254 2.6 163 1.8 - 36 (p<0.01)