Læknablaðið - 15.11.1988, Qupperneq 26
368
LÆKNABLAÐIÐ
hlutföllunum 2:1. Öndunartíðni var valin
18-20/mínútur og öndunarrúmmál (tidal volume)
10 ml/kg. Eftir byrjunarskammt af alfentaníli 20
Hg/kg í æð fengu börnin 20 ng/kg eftir þörfum
þar til 10-15 mínútum fyrir áætluð aðgerðarlok
(Tafla II). Við lok aðgerðar var skipt yfir á 100%
súrefni og barkaslanga fjarlægð þegar sjálfkrafa
öndun var talin fullnægjandi.
Vöðvaslökun var metin með taugaáreiti (train of
four, mat á vöðvaslökun á bilinu 0/4-4/4),
þrýstingur í öndunarvegi mældur í barkaslöngu
með þrýstinema (Statham-Transducer) og
öndunarmagn með Siemens öndunarmæli.
Blóðþrýstingur var mældur »oscillometriskt«
með sjálfvirkum blóðþrýstingsmæli af gerðinni
Dinamap. Tíminn þar til börnin voru fullvöknuð
var tekinn og öndun og loftskipti mæld. Einnig
var hegðun þeirra við vöknun metin. Borinn var
saman blóðþrýstingur, hjartsláttur, þrýstingur í
öndunarvegum, vöðvaslökun fyrir (I) og eftir (II)
gjöf alfentaníls meðan á vöðvaslökun stóð og
eftir gjöf alfentaníls þegar vöðvaslökun var
horfin (III). Niðurstöður voru metnar
tölfræðilega með pöruðu »student t-test«.
NIÐURSTÖÐUR
Innleiðsla og svæfing var vandkvæðalaus hjá
öllum börnunum. Meðallengd svæfingar var
75,1 ±41,9 mínútur. Meðal alfentanílgjöf var
1,15 ±0,15 pg/kg/mín, (SEM). Við útleiðslu leið
að meðaltali 1,8 ±1,27 mín. þar til greindar urðu
fyrstu sjálfkrafa hreyfingar og 4,1 ±2,64 mínútur
þar til börnin opnuðu augun, en þá var
barkaslanga fjarlægð (Tafla III).
Eftir innleiðslu við mælipunkt 1 (TOF 0/4) voru
efri blóðþrýstingsmörk 108 ±13,6, neðri mörk
64 ± 10,2 og hjartsláttartíðni 163 ±24,7 slög/mín.
Við mælipunkt II eftir að alfentaníl hafði verið
gefið og TOF 0/4 voru efri mörk 100
mmHg±16,7, neðri mörk 58 mmHg±13,6 og
hjartsláttartíðni 148±25,7 slög/mín. Við
mælipunkt III þar sem TOF var 4/4 og eftir
alfentanílgjöf voru ofangreind gildi 106
mmHg±16,9, 63 mmHg±ll,5 og 148±24,9
slög/mín. (Tafla IV).
Meðalöndunarmagn á mínútu hélst nánast
óbreytt milli mælipunkta eða 2,27 1/mín.,
meðalþrýstingur í öndunarkerfinu hækkaði
lítilega milli mælipunkta I og II, hækkaði hins
vegar marktækt milli mælipunkta I og III (Tafla
V).
Þegar sjálfkrafa öndun var talin nægileg og
börnin höfðu opnað augun var barkaslanga
Tafla II. Undirbúningur og svœfing meö alfentanil.
Lyfjaforgjöf......... Klorprothixen 1 mg/kg i.m.
Innleiðsla........... Tiopental 5 mg/kg i.v.
Vöðvaslökun.......... Vecuronium 0,1 mg/kg i.v.
Öndunarform ......... Stjórnað. N20:02 = 2:l
VT= 10 ml/kg
f= 18-20/min.
Svæfingalyf.......... Alfentanil 0,02 mg/kg
Tafla III. Mœligildi l og eftir svœfingu.
Svæfingarlengd ............. 75.1 ±41.9 mín.
Alfentanilþörf.............. 1.15 ±0.15 g/kg/mín.
Fyrstu sjálfkrafa hreyfingar .. 1,8 ± 1,2 mín.
Barkaslanga fjarlægð........ 4,12,6 mín.
Ópíatmótefni................ 0/30
Uppköst..................... 0/30
Lyfjaþörf eftir aðgerð...... 0/30
PcCÓ2 eftir svæfingu ....... 41,3 ±5,3 mmHg
Pcó2 eftir svæfingu......... 57,0 ± 11,9 mmHg
Tafla IV. Hjartsláttur og blóðþrýstingur fyrir og eftir
alfentanilgjöf með og án vöðvaslökunar.
I. (TOF 0/4) . Blþr. 108 ±13,6/64±10,2 mmHg Hs. 163 ±24,7 min-1
II. (TOF 0/4) . Blþr. 100±16,7/58 ±13,6
+ Alfentanil .... mmHg . Hs. 148 ±24,9 mín-1
III. (TOF4/4) . Blþr. 106 ±16,9/63 ±11,5
+ Alfentanil .... mmHg . Hs. 148±24,9 mín'1
Blþr. I vs. II p<0,01... Blþr. II vs. III p< 0,01 . . Hs. I vs. II p< 0,01 . Hs. II vs. III ns.
Tafla V. öndunarþrýstingur og öndunarmagn fyrir og
eftir aifentanil með og án vöðvaslökunar.
öndunarmagn á mínútu Meöalþrýstingur í öndunarvegum
I. (TOFO/4) .. . 2,27 ±0,46 1/mín 18,5 ±4,5 mbar
II. (TOFO/4) .. + Alfentanil . 2,25 ±0,45 1/mín 19,1 ±4,7 mbar
III. (TOF4/4) .. + Alfentanil . 2,26 ±0,46 1/mín 20,1 ±5,1 mbar
Mþr. í öndunarf. I vs II:ns.
Mþr. í öndunarf. II vs III: p£0,01.
fjarlægð og þau síðan flutt á gæsluskála. Innan
fimm mínútna frá komu á gæsluskála voru í
blóðgös mæld. Meðalgildi PcC02
(koltvísýringsþrýstingur í háræðablóði) var
41,3 ±5,3 mmHg og Pc02 (súrefnisþrýstingur í
háræðablóði) 57 ±11,9 mmHg.