Læknablaðið - 15.11.1988, Side 40
380
LÆKNABLAÐIÐ
Kransæðaþrengsli (>50% þvermálsminnkun)
fundust hjá 9 sjúklingum (30%); 8 þeirra voru 60
ára eða eldri. Útstreymisbrot vinstri slegils við
hjartaþræðingu spannaði frá 43 til 85 (meðaltal
71 ±10)%. Mínútuútstreymi hjartans, leiðrétt
fyrir líkamsyfirborð, var á bilinu 1,8 til 4,0
(meðaltal 2,6±0,5) lítrar á mínútu/m2.
Sjúklingarnir voru með reglulegan sinus
hjartslátt, ef frá er skilinn einn með gáttaflökt.
Við aflestur Doppler og hjartaþræðingargagna
var tekið meðaltal af 3 hjartaslögum og af 10
slögum hjá sjúklingnum með gáttaflökt.
Doppler-ómun var gerð hjá öllum sjúklingunum
skemur en 48 tímum fyrir hjartaþræðingu og hjá
flestum þeirra daginn áður. Klínískt ástand
sjúklinganna var óbreytt á þeim tíma er leið milli
Doppler rannsóknar og hjartaþræðingar.
Hjartsláttarhraði sjúklinganna þegar Doppler
rannsóknin fór fram var á bilinu 50 til 107
(meðaltal 69 ±16) slög á mínútu og 48 til 105
(meðaltal 70 ± 14) slög á mínútu við
hjartaþræðingu. Enginn sjúklingur var
CW-DOPPLER
S O rpm/ s
Mynd 1. Slbylgju (continuous wave) Doppter ómróf
skráðfrá broddsláttarstað hjá sjúklingi með
ósceðarlokuþrengsli. Hámarks þrýstingsfal! 88 mmHg,
meðal þrýstingsfaU 58 mmHg.
útilokaður frá rannsóknaruppgjöri vegna
ófullnægjandi Doppler-ómunar.
Doppler-hjartaómun. Rannsókn með síbylgju
Doppler-ómun fór fram með IREX Meridian TM
hjartaómtæki. Notaðir voru 2 MHz sjálfstæður
Doppler ómbreytir og samsettur,2-3/3,5 MHz
Doppler og tvíviddar ómbreytir. Skráning
ósæðarlokubununnar var kerfisbundið gerð með
sjálfstæða ómbreytinum ofan bringubeins eða
(með sjúkling í hægri hliðarlegu), við hægri hlið
bringubeins. Ennfremur var skráð frá
broddsláttarstað undir tvivíddar innsýn með
samsetta ómbreytinum og var sjúklingurinn þá í
vinstri hliðarlegu. Leitast var við að fá góða
Doppler skráningu með því að hlusta eftir hæstu
heyranlegu hljóðtíðni er gaf skýrast Doppler
ómróf og hámarks hraðaútslag. Ekki var leiðrétt
fyrir hugsanlega hornskekkju milli stefnu
Doppler-ómunar geislans og
ósæðarlokubununnar. Bestu Doppler
skráningarnar fengust ofan bringubeins hjá 16
sjúklingum, frá broddsláttarstað hjá 12 og hægra
megin bringubeins hjá tveimur.
Hámarks hraðaútslagið var ákvarðað beint frá
Dopplerómrófinu og umbreytt í hámarks
ósæðarlokuþrýstingsfall með líkingu Bernoulli
(1): dP = 4xV2, þar sem dP = þrýstingsfallið
(mmHg) og V = hámarks hraði blóðstreymis
(m/s). Meðal þrýstingsfallið samkvæmt Doppler
var reiknað út með IREX Meridian mæli og
reikniútbúnaði sem umreiknar Doppler ómrófið á
10 ms fresti yfir í þrýstingsföll eftir fyrrnefndri
líkingu og tekur síðan meðaltal af þeim öllum
(Mynd 1).
Hjartaþrœðing. Æðaíkoma var frá nára. Vinstri
slegill var þræddur bakstreymis eða með stungu
gegnum gáttaskilvegg. Mínútuútstreymi hjartans
var ákvarðað með hitaútþynningar aðferð.
Vinstri slegill var myndaður með inndælingu
röntgenþéttiefnis í 30 gráðu hægra skásniði og
ósæðarstofninn í 45 gráðu vinstra skásniði.
Kransæðamyndataka með aðferð Judkins var
gerð hjá öllum sjúklingum er voru 40 ára og eldri.
Þrýstingsmælingar voru gerðar gegnum
vökvafyllta æðaleggi með þrýstiskynjarann á hæð
við miðlínu holhandar. Hjá 23 sjúklinganna var
ósæðarlokuþrýstingsfallið ákvarðað með því að
leggja ósæðarþrýstingskúrfuna yfir
þrýstingskúrfuna frá vinstri slegli.
Þrýstingskúrfur voru skráðar samtímis frá ósæð
og vinstri slegli hjá 7 sjúklingum þegar beitt var
gáttaskils ástungu.