Læknablaðið - 15.11.1988, Síða 42
382
LÆKNABLAÐIÐ
= (0,97 hámarks hjartaþræðingar þrýstingsfall -
13) = (1,03 hámarks Dopplerþrýstingsfall - 12,5 )
mmHg.
Meðal Dopplerþrýstingsföll voru á bilinu 12 til
102 (meðaltal 50 ±25) mmHg og meðal
þrýstingsföll við hjartaþræðingu mældust frá 12
til 111 (meðaltal 58 ±28) mmHg. Þótt góð fylgni
væri milli þessara þrýstingsfalla (r = 0,93) (Mynd
4), reyndust meðal Doppler þrýstingsföll að
jafnaði nokkru lægri en meðalþrýstingsföll við
hjartaþræðingu (p< 0,001). Tengsl meðal og
hámarks Doppler þrýstingsfalla voru þannig
(r = 0,93);
Meðal þrýstingsfall = 0,70 hámarks þrýstingsfall -
5 mmHg.
Tengsl þrýstingsfalla og ósœðarlokuflatarmála.
Kúrfulínulegar líkingar lýstu tengslunum milli
hámarks og meðal Doppler þrýstingsfalla
annarsvegar og ósæðarlokuflatarmála, leiðréttum
fyrir líkamsyfirborð, hinsvegar (Mynd 5 a, b).
Hið sama gegndi um sambandið milli
þrýstingsfalla frá toppi til topps og leiðréttra
ósæðarlokuflatarmála (Mynd 5 c). Mikil dreifing
fannst aftur á móti fyrir öll þrýstingsföll er
samsvöruðu marktækum ósæðarlokuþrengslum.
Fyrir leiðrétt ósæðarlokuflatarmál < 0,5 cm2/m2
fundust þannig hámarks Doppler þrýstingsföll á
bilinu 31 til 144 mmHg, meðal Doppler
þrýstingsföll frá 17 til 102 mmHg og
hjartaþræðingar þrýstingsföll frá toppi til topps
er spönnuðu frá 35 til 140 mmHg.
Mean doppler gradient, mmHg
Mynd 4. Fylgni milli meðat (mean) Doppler
þrýstingsfalla og meðal þrýstingsfalla við
hjartaþræðingu.
UMRÆÐA
Hið hefðbundna þrýstingsfall frá toppi til topps
við hjartaþræðingu hefur venjulega verið notað
til að meta þrýstingsfallið yfir
Doppler max. grad. (mmHg)
AVA ind. (cm^/m2)
Peak-to-peak grad. (mmHg)
AVA ind. (cm^/m2)
Mynd 5. Tengsl þrýstingsfalla við
ósœðarlokuflatarmál, leiðrétt fyrir likamsyfirborð
(AVA index). a)Hámarks(max.)Dopplerþrýstingsföllá
móti leiðréttum ósæðarlokuflatarmálum. b) Meðal
(mean) Doppler þrýstingsföll á móti leiðréttum
ósœðarlokuflatarmálum. c) Topp til topps
(peak-to-peak) hjartaþræðingarþrýstingsföll á móti
leiðréttum ósœðarlokuflatarmálum.