Læknablaðið - 15.02.1992, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ
63
krabbameina var ábótavant. Greinilegt var þó
að meðal skxáðra með krabbamein var hlutfall
þeirra sem höfðu magakrabbamein mjög hátt.
3. Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags
íslands: Fyrsta skipulagða tilraun til
krabbameinsskráningar á Islandi var gerð
árið 1908 (4). Danska krabbameinsnefndin
ákvað að láta fara fram talningu
krabbameinssjúklinga á Islandi og í
Færeyjum á sama hátt og gert hafði verið í
Danmörku. Dagurinn 1. maí 1908 var valinn
og voru öllum læknum á Islandi sendir
fyrirspumarlistar þar sem þeir skyldu skrá
alla þekkta krabbameinssjúklinga hver í sínu
héraði. Þá störfuðu 46 læknar á landinu og
svömðu allir. Samkvæmt talningunni höfðu
þá 23 Islendingar krabbamein. Svaraði það til
2.8 sjúklinga á hverja 10.000 íbúa. Tilsvarandi
tala í Danmörku var 4.3. Landlæknir íslands,
Guðmundur Bjömsson, var í nefndinni
og taldi hann þennan mun stafa af því að
hlutfallslega færri krabbameinssjúklingar
kæmu til meðferðar á íslandi en í Danmörku.
Árið 1954 var stofnuð krabbameinsskrá á
vegum Krabbameinsfélags Islands og var
Olafur Bjamason fyrsti forstöðumaður hennar.
Þar sem skráning nýgengis æxlisins þótti ekki
fullkomin fyrsta árið var ákveðið að sleppa
því ári úr skýrslum skrárinnar og þar með
varð árið 1955 upphafsár hinnar formlegu
skráningar og skýrslugerðar sem síðan hefur
haldist.
Ut hafa komið fimm bækur um niðurstöður úr
Krabbameinsskránni.
Fyrsta bókin kom út árið 1971 og fjallaði
um niðurstöður frá krabbameinsskrám
Norðurlandanna fjögurra, Finnlands, íslands,
Noregs og Svíþjóðar og var N. Ringertz
ritstjóri en meðritstjórar frá íslandi Ólafur
Bjarnason, Helgi Sigvaldason og Halldóra
Thoroddsen (5). Tíðni magakrabbameins var
hæst á íslandi og lægst í Svíþjóð. Kynhlutfall
(karlar/konur) var hæst á íslandi eða 2.3 en í
hinum löndunum 1.8-1.9.
Önnur bókin, eftir Ólaf Bjarnason og Hrafn
Tulinius, kom út árið 1983 um niðurstöður frá
krabbameinsskránni á tímabilinu 1955-74 (6).
Greind höfðu verið 1050 ný magakrabbamein
í körlum og 549 í konum, sem svaraði til
árlegs meðaltals 52.5 í körlum og 27.5 í
konum. Nýgengi æxlanna lækkaði bæði í
körlum og konum en þó meira í körlum.
Þriðja bókin, eftir Hrafn Tulinius og Jónas
Ragnarsson, kom út 1987 með tölfræðilegum
upplýsingum um nýgengi krabbameina á
íslandi á árunum 1955-84 (7).
Fjórða bókin kom út á vegum norrænu
krabbameinsskránna árið 1986 og var um
nýgengi allra krabbameina á Norðurlöndunum
fimm (8). Hrafn Tulinius var ritstjóri fyrir
hönd Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags
Islands. Efniviður var 1.7 milljón sjúklingar
sem höfðu verið skráðir með krabbamein á
Norðurlöndum á árunum 1943-1980. Nýgengi
magakrabbameins á árunum 1958-1980
minnkaði stöðugt og nokkum veginn jafnt í
báðum kynjum í öllum löndunum. Island var
stöðugt hæst meðal karla og ásamt Finnlandi
hæst meðal kvenna.
Fimmta bókin kom út árið 1988 á vegum
Norræna krabbameinssambandsins
(Nordic Cancer Union) með skýrslum frá
krabbameinsskrám Norðurlandanna fimm
um nýgengi krabbameina á 10 ára tímabilinu
1970-1979 (9). Hrafn Tulinius var ritstjóri
fyrir hönd íslands. Á tímabilinu voru 55.892
manns skráðir með magakrabbamein í þessum
löndum og var aldursstaðlað nýgengi 19.9 á
100 þúsund íbúa meðal karla og 10.4 meðal
kvenna. Hæsta nýgengi hjá báðum kynjum
var á íslandi, 34.7 meðal karla og 15.6 meðal
kvenna og lægsta í Danmörku, 17.0 meðal
karla og 8.8 meðal kvenna. Kynjahlutfallið
var svipað allsstaðar eða um 2. Islandi var
skipt í tvö svæði, annað Reykjavík og hitt
aðrir landshlutar. Nýgengi hjá báðum kynjum
var aðeins hærra utan en innan Reykjavíkur.
Þess var getið í umræðum að lækkandi tíðni
magakrabbameins á Norðurlöndum gæti stafað
að nokkru af aukinni neyslu ferskra ávaxta og
grænmetis sem talið er að geti vemdað gegn
æxlinu.
Intemational Union Against Cancer og
síðar Intemational Agency For Research
On Cancer á vegum WHO hafa staðið að
útgáfu fimm bóka um nýgengi krabbameins
í heiminum, Cancer Incidence in Five
Continents (10-14). Hafa þær komið út með
reglulegu millibili. Vom tölur frá íslandi
birtar í fyrstu, þriðju og fimmtu bók og rituðu
forstöðumenn Krabbameinsskrárinnar, fyrst