Læknablaðið - 15.02.1992, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ
71
þess að greina sjúkdóminn snemma og gera
síðan gagngera aðgerð.
Halldór Hansen ritaði grein árið 1956 um
afturskyggna rannsókn á 601 sjúklingi með
krabbamein í maga er lifðu af gagngera
skurðaðgerð í Landakotsspítala á tímabilinu
1904-1954 (57). Hann benti á að yfirlitið
væri að vísu um tiltölulega fáa sjúklinga en
næði yfir óvenjulega langt tímabil eða rúma
hálfa öld. Fyrsti sjúklingurinn sem gerð var á
resectio ventriculi var skorinn af Guðmundi
Magnússyni árið 1906. Önnur slík aðgerð var
gerð árið 1908 af Guðmundi Hannessyni og
sú þriðja árið 1910 af Matthíasi Einarssyni.
Árangur lækninganna taldi Halldór furðu
góðan miðað við hinn langa tíma sem yfirlitið
náði yfir og útkoma frá hans eigin aðgerðum á
árunum 1939-1954, 44 með subtotal resection,
ótrúlega hagstæð.
Ólafur Jóhannsson ritaði grein árið 1959
um röntgengreiningu á magakrabbameini
(58). Frá 1.1. 1950 til 31.12. 1958 voru
gerðar 5974 röntgenrannsóknir á maga á
St. Jósefsspítalanum Landakoti og voru 140
sjúklinganna taldir hafa magakrabbamein,
107 karlar og 33 konur. Skýrt var frá meðferð
og síðan röntgengreiningu magakrabbameins
frá ýmsum tæknilegum hliðum með tilliti til
staðsetningar æxlisins í maga og aðferða við
greininguna.
Ásmundur Brekkan ritaði grein árið 1966
um afdrif sjúklinga með magakrabbamein
ári eftir röntgengreiningu (59). Árið 1964
voru greindir 74 sjúklingar á röntgendeild
Landspítalans með »tumor ventriculi« og var
síðar staðfest með skurðaðgerð eða krufningu
að 47 þeirra höfðu magakrabbamein. Hjá
körlum voru 19% æxlanna í cardia en í
öllum hópnum voru 15% æxlanna í cardia.
Cardia-æxli í íslendingum virtust hlutfallslega
algengari en fundist hafði í sambærilegum
rannsóknum í Noregi, Bandaríkjunum og
Bretlandi. Rætt var um afdrif sjúklinganna
eftir aðgerðir en aðeins 33.3% þeirra voru
taldir skurðtækir þannig að æxlið væri vel
afmarkað í maganum og meinvörp fyndust
ekki. Að lokum var greint frá helstu aðferðum
við klíníska greiningu magakrabbameins.
Bjarni Bjarnason ritaði grein árið 1968 um
magakrabbamein og meðferð þess (60).
Greinin var almenns eðlis um greiningu og
meðferð æxlisins og var fyrst og fremst ætluð
læknanemum.
Tómas A. Jónasson ritaði grein árið 1974 um
krabbamein í maga (61). Greinin var fyrst
og fremst fræðslugrein fyrir almenning þar
sem skýrt var frá einkennum, rannsóknum
og meðferð magakrabbameins. Sagt var frá
skipulagðri leit að magakrabbameini. Vegna
hugsanlegra tengsla bólgu í magaslímhúð og
magakrabbameins var fólki bent á að gæta vel
maga síns.
Tómas A. Jónasson, Asmundur Brekkan og
Haukur Jónasson rituðu grein árið 1975 um
samræmi milli röntgengreiningar og greiningar
með magaspeglun hjá sjúklingum ýmist
með góðkynja eða illkynja magasjúkdóma
(62). Magaspeglun var gerð á 417 manns
en röntgenmynd af maga þeirra hafði annað
hvort verið talin eðlileg eða með óvissum
breytingum. Fundust 11 magakrabbamein við
speglunina. Niðurstaða var sú að magaspeglun
væri mikilsverð viðbótarrannsókn við
röntgenrannsókn, sérstaklega þegar um er að
ræða magakrabbamein.
Ingvar J. Karlsson, Ólafur Gunnlaugsson,
Bjarki Olafsson og Ulfur Agnarsson rituðu
grein árið 1981 um athugun á 128 sjúklingum
með krabbamein í maga á Landakotsspítala
árin 1970-1979 (63). Athuganir voru um
faraldsfræði og sjúkdómseinkenni, greiningu,
meðferð og horfur. Tveir sjúklinganna höfðu
magakrabbamein á byrjunarstigi (early
cancer). Æxlið var fjarlægt með magaskurði
hjá 41% sjúklinganna. Fimm ára lifun alls
hópsins, 128, var 12.2%.
Gauti Arnþórsson, Jóhannes Björnsson,
Bjarki Magnússon, Sólrún Sveinsdóttir og
Þorgeir Þorgeirsson rituðu kafla í bók árið
1980 um greiningu magakrabbameins og
meðferð á fyrstu stigum æxlisins (64). Skýrt
var frá reynslu af slíkri greiningu og meðferð
á íslandi. Á árunum 1971-78 voru 1047
manns skoðaðir með gastroscopi og fundust
64 magakrabbamein. Af þeim voru 48 langt
gengin og átta sár með æxlisvexti niður í
vöðvalög en átta æxli voru á byrjunarstigi
(early cancer). Allt frá nokkrum mánuðum að
fimm árum eftir aðgerð voru sjö sjúklinganna
með byrjandi krabbamein lifandi en einn
hafði dáið með meinvörp eftir 4l/2 ár. Ræddir
voru kostir og góður árangur meðferðar
magakrabbameins á byrjunarstigi.