Læknablaðið - 15.04.1992, Page 12
126
LÆKNABLAÐIÐ
úr öðru nýra manna, sem látist höfðu af
slysförum eða fyrirfarið sér. Talið var, að
þeir hefðu verið heilbrigðir. Sýnin voru sett
í plastbox og fryst (-20°) til að koma í veg
fyrir rotnun. Aldur, kyn og búseta var skráð.
Því miður reyndist ekki unnt að fá vitneskju
um reykingar. Nýru voru fengin frá prófessor
Gunnlaugi Geirssyni úr réttarkrufningum.
Tæki, áhöld og efni sem notuð voru, eru
tilgreind í viðauka.
Sundrun sýna: Sundrun sýna rneð sýru í
örbylgjuofni eins og lýst er hér á eftir er alveg
ný af nálinni (7-9).
Við sundrunina er notað sýnahylki úr tefloni
(teflonhylki, mynd 1). Það er skolað vel með
acetóni, 1M saltpéturssýru og vatni áður
en sýni er sett í. Sýnin eru 0,15-0,25 g af
frosnum nýmaberki. Þau eru skorin með
álpappírsklæddum hnífi (til þess að forðast
kadmíummengun úr hnífnum). Sýni er strax
sett í teflonhylkið og það vegið. Ut í er
bætt 100 míkról af mettaðri saltpéturssýru
(65%), 1 ml af mettaðri saltsýru (30%) og 5
ml af vatni. Sýnahylkinu er að þessu loknu
komið fyrir í sérstöku vamarhylki, svokallaðri
sýrubombu (sýrubombu fyrir örbylgju; mynd
1), og látið í örbylgjuofn. Sýninu er sundrað
með mestri mögulegri orku í ofninum í tvær
mínútur (örbylgjuofn með sýrubombu; mynd
1).
Anóðustrípun: Anóðustrípun (potentiometric
stripping analysis; PSA) er aðferð, er
nota má til greiningar og ákvörðunar
á ýmsum málmum (10,14). Aðferðin
byggist á afoxun með rafspennu og leysni
málmjóna í kvikasilfri (amalgamering) á
yfirborði rafskauts og eftirfarandi oxun
með kvikasilfursjónum í lausn. Mæling á
spennubreytingu vinnuskauts við oxun gefur
upplýsingar um tegund og magn málma í
upplausn (myndir 2-4).
Mynd 2 sýnir rissmynd af þeim tækjabúnaði,
sem notaður er. Spennugjafinn leggur misháa
neikvæða spennu á vinnuskautið. Safnast
þá málmjónir að vinnuskautinu, afoxast og
amalgamerast við kvikasilfrið, sem það er
húðað með. Þegar spennan er tekin af, oxast
málmamir í amalgamsambandinu fyrir tilstilli
kvikasilfursjóna (kvikasilfurlausn II) og fara
út í lausnina sem málmjónir. Kemur það fram
sem spennubreyting í vinnuskauti miðað við
45 ml teflonhylki sýrubomba fyrir örbylgju
1 I
■ <w
<zzz>
sýrubomba
örbylgjuofn
Mynd 1. Sýrubomba, teflonhylki og örbylgjuofn.
tengist viö snúningsmótor
Mynd 2. Tækjabúnaður við anóðustrípun.
breytilegt
viöám
mótskaut. Magn málmjóna í sýnalausninni er
hlutfallslegt við spennubreytinguna.
Mynd 3 sýnir, að kopar, blýi og kadmíum er
safnað við mismunandi spennu, sem svarar til
stöðu þessara málma í spennuröðinni. Kopar
safnast við lægsta spennu (-550 mV), þá blý
(-900 mV) og loks kadmíum (-1200 mV). Ef
allir þessir málmar eru í lausn, getur því þurft
að beita mismunandi spennu til að afoxa þá.
Mynd 4 sýnir, hvemig staðsetningu tröppu,
er svarar til stöðu hlutaðeigandi málms í
spennuröðinni, má nota til þess að bera
sannkennsl á málminn, að undangenginni oxun