Læknablaðið - 15.04.1992, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ
143
ár. Eftirtektarvert er að fáir læknar kjósa að
snúa ekki heim að loknu sérnámi.
Ekkert atvinnuleysi er nú meðal íslenskra
lækna en það segir þó ekki nema hálfa
söguna.
Ef gert er ráð fyrir að um 80% þeirra tæplega
400 lækna sem nú eru við nám og störf
erlendis kæmu skyndilega heim án þess að
aðrir færu utan er ekki óvarlegt að áætla að
20-25% atvinnuleysi yrði meðal íslenskra
lækna. Atvinnuleysi íslenskra lækna er þannig
falið erlendis.
íslenskum læknum mun halda áfram að fjölga
næstu áratugi. Hlutfall kvenna í læknastétt
mun hækka í 28% um aldamót. Framboð á
læknum verður talsvert meira en eftirspurn
og um aldamót má búast við að 60 læknum
verði ofaukið hér á landi. Þessu valda stórir
árgangar lækna sem útskrifuðust á árunum
1975-1988 og mikill fjöldi lækna sem mun
útskrifast á næstu árum. Búist er við að
offramboð á íslenskum læknum nái hámarki
árið 2010 (70 læknar) og ekki náist jafnvægi
milli framboðs og eftirspurnar fyrr en í fyrsta
lagi á tímabilinu 2015-2020. Þannig virðist
Island vera að minnsta kosti 10-15 árum á
eftir þróuninni í V-Evrópu.
A núverandi áratugi er talið að eftirspum eftir
læknum á íslandi þurfi að vera um 2.5% á
ári að meðaltali umfram eðlilega endumýjun
svo að framboð og eftirspum haldist í
hendur. Þetta krefst að meðaltali um 20 nýrra
stöðugilda á ári umfram eðlilega endumýjun
sem er að meðaltali um 14 stöðugildi. Af
þessu má ráða að of mikið er að útskrifa 36
læknanema á ári miðað við núverandi
aðstæður og mætti að ósekju draga verulega
úr þeim fjölda.
LOKAORÐ
Eftir offramboð lækna í flestum ríkjum
V-Evrópu um langt árabil bendir ýmislegt til
þess að jafnvægi muni ríkja á vinnumarkaði
lækna fljótlega upp úr næstu aldamótum.
Það að jafnvægi er að komast á má þakka
markvissum aðgerðum stjómvalda og
læknasamtaka við að takmarka fjölda
útskrifaðra lækna. Jafnframt munu stórir
árgangar lækna sem útskrifuðust á sjöunda
áratugnum nálgast eftirlaunaaldur.
A íslandi er raunin önnur. Þó að íslenskir
læknar búi í raun við dulið atvinnuleysi er
ekki ráðgert að fækka útskrifuðum læknum
frá Háskóla Islands á næstu árum. Framboð
á íslenskum læknum mun því halda áfram
að aukast að minnsta kosti næstu tvo áratugi
verði ekkert að gert.
Spumingin er hvort þessara áhrifa muni
gæta hér heima og valda atvinnuleysi eða
hvort fjöldi íslenskra lækna erlendis muni
stóraukast. Þetta þýðir með öðrum orðum að
annað hvort verður fjöldi íslenskra lækna í
framtíðinni dæmdur í faglega útlegð eða til að
þiggja atvinnuleysisbætur úr ríkissjóði.
HEIMILDIR
1. Saugmann P. Medical Manpower in West Europe:
Towards a balance between supply and demand by
the year 2000. In: Medical Manpower in Europe.
Saugmann P, ed. Permanent Working Group of
European Junior Hospital Doctors. Copenhagen, 1991:
5-14.
2. Andersen K, Amar DO, Oddsson K, Friðriksson
JH, Saugmann P. Medical Manpower in Iceland:
The conditions for equilibrium between supply and
demand by the year 2000. In: Medical Manpower in
Europe. Saugmann P, ed. Permanent Working Group
of European Junior Hospital Doctors. Copenhagen,
1991: 23-6.
3. Den fremtida lakararbetsmarknaden i Norden.
Samnordisk Arbetsgrupp för Prognos- och
Specialistutbildningsfrágor 1990.