Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1992, Blaðsíða 10

Læknablaðið - 15.10.1992, Blaðsíða 10
318 LÆKNABLAÐIÐ % Hemolysis AU Mynd 1. Breytingar í CH50 og IIP sem verða við plasmagjöf. Breytingarnar vara stutt og hvetfa aftur fljótlega þegar plasmagjöf er hœtt. Efst á myndinni eru sýndar hreytingar er verða á líðan og einkennum sjúklings. Skástrikaðir reitir tákna plasmagjafir. (AU=arbitrary units, IIP=inhibition of immune precipitation, CH50=komplímentháð 50% frumurof.) breytingar á líðan sjúklings (subjective) og skráð einkenni við skoðun (objective). A myndinni sést, að gildi CH50 og IIP rísa að normal mörkum meðan á plasmagjöf stendur sem samrýmist endurreisn klassíska ferilsins. Samtímis fer líðan sjúklings batnandi og sjúkdómseinkenni minnkandi. Engar ákveðnar breytingar verða á mælingum á SOL enda er sú virkni háð starfsemi styttri ferilsins. Starfsemi klassíska ferilsins leggst þó fijótt af að plasmagjöf lokinni. Það samrýmist helmingunartíma C2, sem er 12- 18 klukkustundir. Breytingar á C2 magni: A mynd 2 má sjá aukningu á C2 í sermi og tengsl við breytingar á CH50. A myndinni sést að þéttni C2 vex við plasmagjöf á degi hverjum, en fellur síðan nokkuð yfir nótt. Heildarstyrkur fer þó smátt og smátt vaxandi eftir framgangi gjafar. Magn mótefnafléttna: Á mynd 3 má sjá að mótefnafléttur falla við plasmagjöf. Það er þó mikil hreyfing á mótefnafléttumagni í báðar áttir meðan á gjöf stendur og magn þeirra nær fyrri gildum fljótlega eftir að plasmagjöf er hætt. Rœsing komplímentkerfisins: Breytingar á magni C3d eru mælikvarði á ræsingu komplímentkerfisins (mynd 4). Við upphaf plasmagjafar er C3d lágt enda ekki um virka ræsingu að ræða vegna skorts á C2. C3d eykst % /ig/ml Mynd 2. Breytingar sem verða í C2 magni við plasmagjöf. Myndin sýnir að CH50 (•) helst uppi meðan C2 <\yI þéttni er há enfellur síðan. Kvarði fyrir CH50 er til vinstri, en kvurði fyrir C2 til liœgri. Brotalínur tákna viðmiðunargildi normal einstakiinga. við plasmagjöf í nánu samræmi við aukningu í magni C2. Minnkuð þéttni mótefnafléttna fylgir nákvæmlega aukningu á C3d. C3d hefur verið mælt í plasma því sem gefið er og alltaf reynst lágt. Breytingamar, sem hér er lýst, skýrast því ekki af beinni gjöf C3d, heldur af ræsingu á komplímentkerfi sjúklingsins. UMRÆÐA Mótefnafléttusjúkdómar, svo sem rauðir úlfar, finnast í auknum mæli hjá sjúklingum með skort á þáttum klassíska ferils komplímentkerfisins (6-8). Rannsóknir hafa staðfest að klassíski ferillinn á mikilvægan

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.