Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1992, Page 35

Læknablaðið - 15.10.1992, Page 35
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 341-7 341 Þorbjörn Jónsson'), Jón Þorsteinsson2), Helgi Valdimarsson') ALGENGI OG NÝGENGI IKTSÝKI í FÓLKI MEÐ HÆKKAÐA GIGTARPÆTTI ÁGRIP Árið 1987 var algengi og nýgengi iktsýki (rheumatoid arthritis, RA) kannað hjá fólki sem mælst hafði með hækkun á gigtarþáttum (rheumatoid factors, RF) í hóprannsókn Hjartavemdar fjórum til þrettán árum áður. Einstaklingar sem höfðu gigtarþáttahækkun án þess að hafa iktsýki voru yfirleitt nteð hækkun á einungis einni gerð og þá oftast igM RF. Hins vegar voru fiestir iktsýkissjúklingar með hækkun á tveimur eða þremur gerðum gigtarþátta. Hækkun á IgA RF og IgG RF var marktækt algengari í einstaklingum með iktsýki heldur en þeim sem ekki höfðu iktsýki, og fór algengi vaxandi með auknu magni og fjölda gigtarþáttagerða. Einkennalausir einstaklingar með hækkun á IgA RF eða IgG RF voru í marktækt aukinni áhættu á að fá síðar iktsýki samanborið við þá sem höfðu eðlilegt magn gigtarþátta. Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til þess að hækkun á IgA RF og IgG RF hafi sterkari tengsl við iktsýki og áhættu á þeim sjúkdómi heldur en hækkun á IgM RF. INNGANGUR Gigtarþættir (rheumatoid factors, RF) eru mótefni sem beinast gegn halahluta (Fc) mótefna af IgG gerð. Gigtarþættir finnast helst og í mestu magni í sjúklingum með iktsýki og aðra gigtarsjúkdóma og draga þeir nafn sitt af því. Gigtarþættir geta þó verið hækkaðir í tengslum við sýkingar, krabbamein og ýmsa aðra sjúkdóma og finnast stöku sinnum meðal heilbrigðra einstaklinga (1). Gigtarþættir hafa allt til þessa dags aðallega verið mældir með kekkjunarprófum, til dæmis Rose-Waaler og latex (2-4). Með slíkum prófum er ekki hægt að mæla sérstaklega einstakar gerðir gigtarþátta. Nú er hins vegar Frá 1) Rannsóknastofu í ónæmisfræöi og 2) lyflækningadeild Landspítalans 2). Fyrirspurnir, bréfaskipti: Þorbjörn Jónsson Rannsóknastofu í ónæmisfræöi, Landspítalanum, 101 Reykjavík. hægt að mæla sérstaklega IgM, IgG, IgA og jafnvel IgE RF (5-7) annaðhvort með geisla- eða ensímmótefnamælingum (RIA, ELISA). Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á liðnum árum til að kanna tengsl einstakra gigtarþáttagerða við horfur, sjúkdómsvirkni og sjúkdómseinkenni sjúklinga með iktsýki, en niðurstöður hafa ekki verið alveg samhljóða. Þrátt fyrir það má fullyrða að flest bendi til að hækkun á IgA RF hafi náin tengsl við myndun á beinúrátum (8-11). Vitað er að hækkun getur orðið á gigtarþáttum mörgum árum áður en liðbólgur gera vart við sig (12,13) og í einni rannsókn var áætlað að um 5,0% einkennalausra einstaklinga með jákvætt latex próf fengju síðar iktsýki (14). Það er einnig vitað að einungis lítill hluti fólks með jákvætt latex próf er með iktsýki (15). Hér verða kynntar niðurstöður um algengi og nýgengi iktsýki í einstaklingum með hækkun á IgM, IgG og IgA RF. Höfundum er ekki kunnugt um að slík rannsókn hafi áður verið gerð. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Hóprannsókn Hjartaverndar hófst í Reykjavík í nóvember árið 1967. Ári síðar hófst gagnasöfnun um iktsýki og aðra gigtarsjúkdóma. Á árabilinu 1974 til 1983 var safnað 16.299 blóðsýnum úr 13.858 einstaklingum sem mættu í þriðja og fjórða áfanga hóprannsóknar Hjartaverndar. Blóðsýni voru fleiri en fjöldi þátttakenda vegna þess að hluti fólksins var boðaður í bæði þriðja og fjórða áfanga rannsóknarinnar. Þátttakendur voru af báðum kynjum og fæddir á árunum 1907 til 1935. Allir fylltu út staðlaðan spumingalista um heilsufar sitt, þar á meðal verki frá liðamótum og stoðkerfi, þeir voru skoðaðir af lækni með sérstöku tilliti til hjartasjúkdóma og áhættuþátta auk þess sem blóðsýni voru tekin. Blóðsýni frá öllum þessum einstaklingum voru síðar mæld fyrir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.