Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 4
Gynera Nýja getnaðarvarnartaflan frá SCHERING semvertvar að bíða eftir JÉLHíl. Gynera (Schering, 870100) TÖFLUR; G 03 A A 10 R O Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 30 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Eiginleikar: Hormónablanda til getnaðarvarna með lágum östrógenskammti. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Þau umbrotna í lifur að hluta til við fyrstu umferð. Aðgengi etinýlöstradíóls er um 45%, en gestodens um 80%. Útskiljast með þvagi og saur. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos, hindrar festingu eggs við legslímhúð og breyta eiginleikum slíms í leghálsopi. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa lyfið konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, migrene, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja, er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvamatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvamataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niöurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga, og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag samfleytt á sama tíma sólarhringsins. Síðan er 7 daga hlé áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Fyrstu 14 dagana, sem töflurnar eru teknar, veita þær ekki örugga getnaðarvöm og þarf því að nota aðra getnaðarvöm þann tíma. Þetta gildir aðeins um fyrsta mánuð meðferðarinnar. Pakkningar: 21 stk. x 1 (þynnupakkaö); 21 stk. x 3 (þynnupakkað). Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. SCHERING Stefán Thorarensen Sídumúla 32 108 Reykjavík Sími 91-686044

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.