Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 201-5 201 Adolf Þráinsson1), ReynirTómas Geirsson2), María Hreinsdóttir2), Sigrún Arnardóttir2), Sæmundur Guðmundsson2 3) ÓMSKOÐUN LEGS OG BLÆÐINGAR í SÆNGURLEGU ÁGRIP Tilgangur: I sængurlegu er ómskoðun notuð til að athuga hvort fylgjuleifar eða merki unt blóðhlaup sjáist í leginu. Til að fá vitneskju urn eðlilega stærð og útlit legs hjá sængurkonum var gerð framsýn athugun á legi með ómskoðun, en algengi og einkenni blæðingavandamála í sængurlegu voru metin með aftursýnni athugun á innlögnum eftir fæðingu. Efniviður: Af konum sem fæddu á árinu 1991 á Kvennadeildinni voru 1,6% með grun um fylgjuleifar eða blóðhlaup í legi. Tíðni aðgerða, ómskoðana og einkenni í þessum tilvikum voru athuguð. Framsýna rannsóknin var gerð á fimmta og 14. degi eftir fæðingu hjá 40 heilbrigðum konum. Leg var mælt í þremur víddunt og rúmmál legs og rúmmálsbreyting reiknuð. Niðurstöður: Flestar þeirra kvenna þar sem grunur vaknaði um óeðlilegt innihald í legi fóru í útskaf (79%). Vefjagreining var gerð hjá 17 konum og 14 reyndust vera með fylgjuleifar. Hjá heilbrigðu konunum varð marktæk minnkun á stærð legs frá fyrri að seinni mælingu (p<0,0001). Breyting á rúmmáli nam að meðaltali 443 ml (bil 154- 833 ntl). Ekki var munur á legstærð hjá frum- og fjölbyrjum. I 34 tilvikum virtist leghol vera tómt á fimmta degi, en hjá fjórum konum var ómsnautt innihald í legi og í tveimur ómþétt. Hjá 12 konunt sást ómsnautt innihald á 14. degi en ekki við fyrri skoðunina. Ekki var marktækur munur á rúmmáli legs á 14. degi hjá þeim konum, þar sem innihald var í legi (M 330 ml, SF 84,5 ml) og þar sem það var ekki (M 296 ml, SF 84,5 ml). Ályktun: Blæðing frá legi í sængurlegu er algengt vandamál, en þó innihald sjáist í Frá ') Háskóla íslands, 2) Kvennadeild Landspítalans, 3) All- mánna Sjukhuset, Malmö, Svíþjóð. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Reynir T. Geirsson, dr.med., MRCOG, Kvennadeild Land- spítalans, 101 Reykjavík. legi við ómskoðun þarf sjúkdómsástand ekki að vera til staðar. Ákvörðun unt það hvort kona fer í aðgerð eða ekki á að byggjast á klínísku mati, en ómskoðun getur veitt viðbótarupplýsingar. INNGANGUR Stærð og útlit legs í sængurlegu hefur aðeins verið athugað í takmörkuðum mæli með ómskoðun. Omskoðunartækni hefur tekið örum framförum á undanförnum árum og ætti að geta veitt betri þekkingu á eðlilegu og óeðlilegu útliti legs á sængurlegutíma og aukið öryggi við greiningu sjúkdóma í sængurlegu. Algengt er nú að konur séu sendar í ómskoðun ef grunur leikur á að fylgja eða belgir hafi ekki skilað sér að öllu leyti við fæðingu eða ef blæðing verður á sængurlegutíma. Oljóst getur verið hvernig túlka eigi niðurstöður ómskoðunar, til dæmis hvort konur með merki um blóðhlaup (coagula) í legi þurfi að fara í aðgerð eða ekki. Því virtist þörf á viðmiðunargildum fyrir stærð legs og einnig útlit og þykkt innra borðs legsins. Til að fá betri vitneskju um eðlilega stærð, útlit og innihald legs hjá heilbrigðum konum í sængurlegu var gerð framsýn athugun á legi með ómskoðun. Viðmiðunargildi voru reiknuð. Jafnframt voru breytingar á stærð legs athugaðar hjá frumbyrjum og fjölbyrjum, en aftursýn athugun notuð til að meta algengi og einkenni blæðinga í sængurlegu. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Samkvæmt sjúkdómsgreiningaskrám og skrám aðgerðarstofa Kvennadeildar Landspítalans voru fundnar allar konur með greiningarnar »Retentio post partum« eða »Haemorrhagia post partum« á árinu 1991 (n=48). Leitað var upplýsinga um einkenni eftir fæðingu, ómskoðanir, svo og ástæður innlagnar eða útskafs í innlögn og vefjagreiningarniðurstöðu. Jafnhliða var með ómskoðun gerð framsýn

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.