Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1993, Page 9

Læknablaðið - 15.05.1993, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ 179 BÖRNIN ÞARFNAST SÉRSTAKRAR UMÖNNUNAR Hér á endurhæfingarstöðinni höfum við talsvert reynt að sinna börnum. Böm þjást þegar foreldrar eru pyntaðir. Hafi faðirinn verið pyntaður og komið aftur heim til fjölskyldunnar og þjáðst, þá hefur það áhrif á alla fjölskyldumeðlimi. Það myndast óstöðugleiki innan fjölskyldunnar. Börnin þurfa þá oft að taka að sér hlutverk fullorðinna sent er slæmt fyrir þau, sérstaklega ef fjölskyldan neyðist til að fiýja. Um þessar mundir tökum við þátt í miklu alþjóðlegu rannsóknarverkefni, forstöðumaður þess er filippínskur sálfræðingur, Elisabet Marcellino. Þar er beitt leiksmiðjuaðferðum og leikrænni tjáningu með börnin, þannig reynist unnt að hjálpa þeim. Þau eru að sjálfsögðu einnig rannsökuð af barnalæknum, en lögð er áhersla á sérstök verkefni með börnunum til að hjálpa þeim í kjölfar þess sem þau hafa upplifað. Það er mjög mikilvægt því að pyntingar skilja eftir sig ótrúleg spor. PYNTINGUM ER ÆTLAÐ AÐ HALDA ÞEGNUNUM í HELJARGREIPUM Við verðum stöðugt að hamra á markmiði böðlanna. Pyntingum er ekki einungis ætlað að eyðileggja viðkomandi einstaklinga, heldur allt samfélagið, að halda öllu samfélaginu í heljargreipum. Gegn því er hægt að berjast og ber að berjast. Við byrjuðum sem ósköp venjulegir læknar og erunt það enn, en sem »Pyntingar eru glcepur þar sem athyglin beinist meira að fórnarlambinu heldur en í öðrum glœpum; þar af leiðandi tel ég gerandann fá minni athygli... Við verðum (þess vegna) að krefjast þess að pyntingar séu rannsakaðar, og verði ákcerði fundinn sekur sé honum refsað - ekki vegna lagalegra eða starfslegra reglna heldur til þess að sýna samstöðu með fórnarlömbunum.« Ole Espersen, þingmaður á danska þinginu og fyrrum dómsmálaráðherra Sektarkennd, vanmáttur og magnleysi verða oft hið »nýja fangelsi« fórnarlamba pyntinga, eftir að þau sleppa úr fangelsi. óbreyttir læknar höfum við sagt að við viljum hjálpa fórnarlömbunum og smám saman höfum við orðið herskárri. Pyntingar eru pólitískt og efnahagslegt vandamál, en afleiðingarnar eru læknisfræðilegar og læknislærðir geta ekki lokað augunum fyrir því. Við verðum að opna augun fyrir því að pyntingum er ætlað að brjóta niður fullkomlega heilbrigða og sterka einstaklinga. Það er ætlun einræðisherranna og slíkt hvorki geta né mega læknar líða. EN ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÚTRÝMA PYNTINGUM Pyntingar eru sagðar hættulegasta vopn gegn lýðræði. Allt alræði byggir á pyntingum. Vegna þessa höfum við farið til stjómmálamannanna og sagt: Það er hægt að útrýma ríkisstjómarpyntingum fyrir árið 2000 - en það kostar peninga. Sé það vilji Evrópubúa, þá verður einnig að láta peninga af höndum til endurhæfingarstöðvanna, til lækna, til hjúkrunarfræðinga, til sálfræðinga

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.