Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1993, Qupperneq 28

Læknablaðið - 15.05.1993, Qupperneq 28
198 LÆKNABLAÐIÐ vísbendingu þess, að hjartastarfsemi þeina sjúklinga sem skomir em upp eftir eins árs sé skert. Slagbilsþrýstingur: Erlendar rannsóknir hafa sýnt að sjúklingar með CoA fá óeðlilega mikla blóðþrýstingshækkun við áreynslu (6,10-12,22-24). Okkar niðurstöður reynast mjög svipaðar þeim erlendu. Blóðþrýstingur í hvíld var lítillega hækkaður hjá sjúklingunum miðað við þá heilbrigðu, þótt ekki sé sá munur marktækur. Þessi munur jókst svo strax við að standa upp og enn meir við áreynslu. Marktækur munur mældist milli sjúklinga og heilbrigðra á öllum þrepum áreynsluprófsins. Sjúklingarnir voru mjög fljótir að ná sér og var munurinn horfinn þegar þeir höfðu lagst út af eftir að áreynslunni lauk. Sést vel gildi þess að mæla slagbilsþrýsting meðan á áreynslu stendur. Er það í samræmi við birtar erlendar niðurstöður um að mælingar meðan á áreynslu stendur séu nauðsynlegar (4). Þegar litið er á sjúklingana, eftir því hvenær þeir fóru í aðgerð, kemur í ljós að hópur B hefur marktækt hærri slagbilsþrýsting en samanburðarhópurinn, jafnvel í hvíld. Hópur A er hins vegar með eðlilegan blóðþrýsting þar til á öðru þrepi áreynsluprófsins. Þetta styður okkar álit að þeir sjúklingar sem fara seint í aðgerð hafi ineiri líkur á viðvarandi háþrýstingi og séu því í meiri hættu að fá einhvern þeirra síðbúnu fylgikvilla ósæðarþrengsla sem sjást jafnvel eftir vel heppnaða aðgerð. Við athuguðum einnig fylgni milli jákvæðs blóðþrýstingsstiguls og mikillar blóðþrýstingshækkunar við áreynslu. Reyndist þar um góða fylgni að ræða (r=0,75 og p=0,02). Virðist því mikil blóðþrýstingshækkun við áreynslu tengjast jákvæðum blóðþrýstingsstigli sem aftur tengist endurþrengslum. Álítum við að þessi tengsl séu það sterk að þeir sjúklingar sem hækka mest í blóðþrýstingi ættu að fara í hjartaþræðingu til að athuga hvort um endurþrengsli sé að ræða, sem þá mætti víkka. Fjórir sjúklingar fengu mikla blóðþrýstingshækkun við áreynslu og fóru allir yfir 200 mmHg í slagbili við hámarksáreynslu (210-265mmHg). Þar af er einn úr hópi A en þrír úr hópi B. Er tíðnin þannig 23% hjá þeim sem fara í aðgerð eftir eins árs aldur en einungis 7% hjá þeim sem skornir eru fyrir eins árs aldur. Við tökum því ekki undir með Williams et al sem fær 27% tíðni háþrýstings hjá þeim hópi sjúklinga sem skornir hafa verið upp sem ungabörn (21). Þeir eru líka margir sem fá niðurstöður samsvarandi okkar. Barratt-Boyes birti árið 1985 niðurstöður rannsóknar þar sem farið er yfir 318 tilfelli af CoA 10-28 árum eftir aðgerð (13). Þar koma fram tengsl milli aldurs við aðgerð og síðari tíma háþrýstingi, þannig að því eldri sem einstaklingarnir eru við uppskurð þeim mun meiri líkur eru á háum blóðþrýstingi síðar. Tuttugu árum eftir aðgerðina eru 50% af þeim sjúklingum, sem skornir voru fimm til 19 ára, komnir með háþrýsting. Heildarniðurstaða Barratt-Boyes er sú að aðgerðina eigi að gera sem allra fyrst (13). Blóðþrýstingsstigullinn eykst marktækt við áreynslu. Ef við skoðum það nánar kemur í ljós að þessi aukning er samsett úr tveimur þáttum: a) hækkun á slagbilsþrýstingi í efri útlim og b) lækkun á slagbilsþrýstingi í þeim neðri. Trúlegt verður að teljast að þessi blóðþrýstingslækkun stafi að verulegu leyti af rennslishindrun blóðs til neðri útlima. Þó er rétt að benda á að æðavíkkun (vasodilatation), sem verður hjá heilbrigðum við áreynslu, verður ef til vill ekki með eðlilegum hætti hjá sjúklingum með ósæðarþrengsli. Háþrýstingur framan við þrengslin gæti leitt til skertrar sjálfstýringar (autoregulation) þótt æðavíkkun sé eðlileg handan þeirra. LOKAORÐ Rannsókn okkar sýnir að hinum íslenska CoA sjúklingahópi hefur reitt þokkalega af. Þó er talsvert há tíðni á jákvæðum blóðþrýstingsstigli milli efri og neðri útlima og einnig hafa þeir talsvert mikla blóðþrýstingshækkun við áreynslu. Teljum við því nauðsynlegt að fylgja þessum sjúklingum eftir með áreynsluprófi þar sem blóðþrýstingur verði mældur ineðan á áreynslu stendur og einnig verði mælt hvort munur sé á blóðþrýstingi milli efri og neðri útlima hjá viðkomandi. Má með þessu móti greina sjúkdómseinkenni hjá einkennalausum sjúklingum og þannig finna þá sem eru í aukinni hættu á síðbúnum fylgikvillum ósæðarþrengsla. Einnig er það niðurstaða okkar að þeir einstaklingar, sem fara í aðgerð eftir eins árs aldur, hafi oftar háþrýsting en hinir sem fara í aðgerð fyrir eins árs aldur. Því er álit

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.