Læknablaðið - 15.06.1996, Side 7
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
435
lítið um atvinnusjúkdóma í almennri umræðu
og gerir erfiðara að beita forvörnum. Við fáum
því ekki upplýsingar um atvinnusjúkdóma frá
almannatryggingunum, sjúklingar hafa ekki
hag af því að atvinnusjúkdómar séu rétt
greindir og læknar þurfa ekki að leggja sig eins
fram við greiningu þeirra. Ekki ber að skilja
þessi skrif svo að á hinum Norðurlöndunum
komi öll kurl til grafar um atvinnusjúkdóma.
Danir hafa til dæmis tvívegis gert athuganir á
hve vel tilkynningar um krabbamein sem rekja
má til vinnu skila sér og komist að því að ekki
hefur dregið úr vanskráningu á atvinnukrabba-
meini á síðustu árum (5,6). Hér á landi hefur
hingað til engin tilkynning borist um atvinnu-
krabbamein þannig að vandi þessara mála deil-
ist víðar en um ríki Dana.
Hvaða leiðir eru til að fá upplýsingar um
atvinnusjúkdóma? Faraldsfræðin er sú fræði-
grein sem fjallar um útbreiðslu sjúkdóma með-
al fólks og tengsl sjúkleika við ákvarðandi
þætti. Faraldsfræðin hefur aðferðir til að mæla
tíðni sjúkdóma, einnig atvinnusjúkdóma. Með
aðferðum hennar er hægt 1) að finna undir-
hópa í stærri hópum sem eru í sérstakri sjúk-
dóma- og slysahættu, 2) að uppgötva hættulega
mengun og áhrif hennar, 3) að mæla árangur
forvarnaaðgerða á vinnustöðum og 4) að meta
skilvirkni kembileita að atvinnusjúkdómum.
Um atvinnusjúkdómana eru til handhægar
textabækur (7,8) en sá fróðleikur sem þar er
saman dreginn grundvallast einkum, auk al-
mennrar læknisfræðilegrar þekkingar, á far-
aldsfræðilegum og eiturefnafræðilegum athug-
unum. Rannsóknir sem hafa að markmiði að
athuga tengsl vinnu og heilsufars veita því
gleggstar upplýsingar um tíðni og eðli atvinnu-
sjúkdóma.
Vilhjálmur Rafnsson
atvinnusjúkdómadeild
Vinnueftirliti ríkisins
HEIMILDIR
1. Draft code of practice on recording and notification of
occupational accidents and diseases. Geneva: Interna-
tional Labour Organization, 1994.
2. Rafnsson V, Magnússon G, Johnsen S. Skýrsla læknis um
meintan atvinnusjúkdóm. Læknablaðið 1983; 69: 172-4.
3. Anmalda arbetssjukdomar i Norden 1985. Köpenhavn:
Nordisk Ministerrád, 1989.
4. Anmalda arbetssjukdomar i Norden 1990-1992. Köpen-
havn: Nordisk Ministerrád, 1996, (í prentun).
5. Skov T, Mikkelsen S, Svane O, Lynge E. Reporting of
occupational cancer in Denmark. Scand J Work Environ
Health 1990; 16: 401-5.
6. Danö H, Skov T, Lynge E. Underreporting of occupa-
tional cancers in Denmark. Scand J Work Environ Health
1996; 22: 55-7.
7. Ladou J. Occupational Medicine. East Norwalk: Appel-
ton and Lange, 1990.
8. Zenz C. Occupational Medicine. St Louis: Mosby —
Year Book, Inc, 1994.