Læknablaðið - 15.06.1996, Page 10
438
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Table I. Crohn’s disease in Iceland 1980-1989. Number of cases, male/female ratio and mean annual incidence/100.000.
Total M/F lncidence/100.000/year
Years number ratio Men Women Total
1980-1984 32 0.7 2.2 3.3 2.7 *
1985-1989 43 1.2 3.7 3.3 3.5 *
Total 75 0.9 3.0 3.3 3.1
* This increase is not statistically significant.
auk þeirra upplýsinga sem fyrir lágu um með-
ferð og afdrif.
Upplýsingar um mannfjölda voru fengnar
frá Hagstofu íslands. Á tímabilinu jókst mann-
fjöldi á landinu úr 229.000 íbúum árið 1980 í
254.000 árið 1989. Við útreikninga á meðalný-
gengi var notaður meðalmannfjöldi á tímabil-
inu, en við útreikninga á nýgengi í aldurshóp-
um voru notaðar mannfjöldatölur á miðju
tímabilinu, 1. desember 1984. Gert var ráð fyrir
að fjöldi tilfella á hverjum tíma og í hverjum
aldurshópi fylgdi hér um bil Poisson dreifingu.
I samræmi við þetta voru reiknuð 95% öryggis-
mörk.
Niðurstöður
Nýgengi: Á þessu 10 ára tímabili, 1980-1989,
fundust 75 sjúklingar með staðfestanlega svæð-
isgarnabólgu, 36 karlar og 39 konur (kynja-
hlutfall 0,9). í töflu I kemur fram að aukning
hefur orðið á fjölda sjúklinga á þessum árum,
samfara breytingu á kynjahlutfalli, en hvorug
breytingin er þó tölfræðilega marktæk. Taflan
sýnir einnig heildarnýgengi sjúkdómsins, en
það var að meðaltali 3,1 tilfelli á 100.000 íbúa á
ári (95% öryggismörk 2,5-3,99), sem er mark-
tæk aukning frá áratugnum 1970-1979 (3).
Aldursdreifing: Sjúkdómurinn greindist á
öllum aldri, yngsti sjúklingurinn var fjögurra
ára og sá elsti 78 ára. Fram kom tvítoppa ald-
ursdreifing, þannig að fjölmennast var í aldurs-
hópnum 20-29 ára og næst fjölmennast í hópn-
um 60-69 ára. Mynd 1 sýnir nýgengi í 10 ára
aldurshópum til 79 ára. Þar er einnig um tvo
aldurstoppa að ræða. Hæst var nýgengið í ald-
urshópnum 60-69 ára, 8,9 tilfelli á 100.000 fbúa
á ári, en lægst hjá börnum yngri en 10 ára.
Meðalaldur karla var 38,3 ár, en kvenna 42,0
ár.
Búseta: Nýgengi sjúkdómsins í hverju hinna
átta kjördæma landsins var kannað miðað við
skráða búsetu við greiningu. Könnunin leiddi í
ljós, að sjúkdómurinn dreifðist ójafnt um land-
ið en munurinn var ekki tölfræðilega marktæk-
ur. Nýgengi var lægst á Vesturlandi, en hæst á
Norðurlandi vestra. í Reykjavík var það
nokkru hærra en meðalnýgengi á landinu öllu.
Utbreiðsla bólgunnar: Við mat á útbreiðslu
bólgubreytinga í meltingarvegi var stuðst við
niðurstöður úr ristil- eða mjógirnisspeglun,
röntgenmyndatöku af ristli eða mjógirni, að-
gerðarlýsingu skurðlæknis og niðurstöðu úr
vefjarannsókn á brottnumdum garnahluta,
þegar það átti við. Hjá 77,3% sjúklinganna
hafði verið gerð ristilspeglun, hjá 60% teknar
röntgenmyndir af ristli, hjá 61,3% teknar rönt-
genmyndir af mjógirni og hjá 44% voru garna-
hlutar fjarlægðir.
í töflu II sést, að bólgubreytingar í melting-
arvegi voru einskorðaðar við ristil hjá 54,7%
sjúklinganna og við mjógirni hjá 25,3%, en hjá
18,7% þeirra var bólga til staðar bæði í mjó-
girni og ristli. Einn sjúklingur hafði bólgu
bundna við maga. Taflan sýnir ennfremur
dreifingu bólgu í meltingarvegi hjá sjúklingum
í 20 ára aldurshópum. Hjá sjúklingum 60 ára og
eldri var bólgan að miklu leyti einskorðuð við
ristil, eða hjá 80,9%. Hlutfall bólgubreytinga í
ristli fór vaxandi með aldri og sýndi marktæka
línulega leitni (p=0,003).
Meingerð: Vefjasýni voru tekin hjá öllum
Number /100,000 / per year
10-i---------------------
Age groups
Fig. 1. Crohn’s disease in Iceland 1980-1989. Age related
incidence.