Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 26
520
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
við aðstæður í heimahúsi. Þannig mætti veita
meðferð mun fyrr en áður og vinna mikilvægan
tíma.
Það þarf einnig að taka afstöðu til þess
hvaða segaleysandi lyf skuli nota því anístrep-
lasa (Eminaser) sem notað var í GREAT rann-
sókninni, er hægt að gefa í gusu (bolus) í æð á
fimm mínútum en streptókínasi (Streptaser) er
gefinn í dreypi á einni klukkustund. Það yrði
því til mikils hagræðis ef meðferð er veitt þar
sem sjúklings er vitjað en eins og að framan
greinir er kostnaðurinn umtalsvert meiri.
Við teljum mikilvægt að sem flestir íslenskir
heimilislæknar hefji segaleysandi meðferð
strax í héraði. Rannsóknir sýna mikinn ávinn-
ing því fyrr sem meðferð er veitt. Okkar
reynsla er sú að meðferðina sé hægt að veita án
mikils tilkostnaðar og á einfaldan hátt í héraði.
Flestir læknar ættu að vera færir um að greina
kransæðastíflu með hjartalínuriti og hægt er að
senda hjartalínurit í bréfsíma til sérfræðings í
hjartasjúkdómum ef vafi leikur á greiningu.
Mikilvægt er að fylgja fastri meðferðaráætlun
þegar meðferð er gefin til að auðvelda vinnu
sem ekki er töm. Þess ber þó að geta að með-
ferðin er ekki hættulaus og menn verða að vera
í stakk búnir til að bregðast við þeim aukaverk-
unum sem upp geta komið, svo sem blóðþrýst-
ingsfalli, hjartsláttartruflunum, blæðingum og
ofnæmisviðbrögðum.
Þörf er á frekari umræðu og útfærslu af
hendi heilbrigðisyfirvalda, heimilislækna og
hjartasérfræðinga. Tilgangur okkar er að vekja
athygli á þessum möguleika. Telja má að þótt
úrtakið sé lítið og árin fá er reynsla okkar
hvetjandi til áframhalds á segaleysandi með-
ferð í héraði.
HEIMILDIR
1. ISIS-3 (Third International Study of Infarct Survival)
Collaborative Group. ISIS-3: a randomised trial of
streptokinase vs tissue plasminogen activator vs anistro-
plase and of aspirin plus heparin vs aspirin alone among
41 299 cases of suspected acute myocardial infarction.
Lancet1992; 339: 753-70.
2. Gruppo Italiano per lo Studio della Soprawivenza nell-
Infarto Miocardio. GISSI-2: a factorial randomised trial
of alteplase versus streptokinase and heparin versus no
heparin amaong 12 490 patients with acute myocardial
infarction. Lancet 1990; 336: 65-71.
3. GUSTO Investigators. An intemational randomized
trial comparing four thrombolytic strategies for acute
myocardial infarction. N Engl J Med 1993; 329: 673-82.
4. Kristinson Á. Segaleysandi meðferð í dreifbýli. Lækna-
blaðið 1993; 79: 77-9.
5. Pórarinsson S. Framkvæmd segaleysandi meðferðar í
dreifbýli. Læknablaðið/Fréttabréf lækna 1993; 11(11): 16.
6. Óskarsson H. Segaleysandi meðferð við bráði kransæða-
stíflu með streptókínasa. Læknablaðið/Fréttabréf lækna
1993 11(11): 16-8.
7. Kristinson Á. Segaleysandi meðferð í dreifbýli. Lækna-
blaðið/Fréttabréf lækna 1994; 12(2): 12-3.
8. Óskarsson H. Segaleysandi meðferð í héraði (leiðbein-
ingar fyrir lækna). Heilsugæslustöðin Egilsstöðum. 1993
(endurskoðað 1994): 1-7.
9. GREAT Group. Feasibility, safety, and efficacyofdom-
iciliary thrombolysis by general practitioners. BMJ1992;
305: 548-53.
10. EMERAS (Estudio Multicentrio Estreptoquinasa Re-
publicas de America del Sur) Collaborative Group.
Randomised trial of late thrombolysis in patients with
suspected acute myocardial infarction. Lancet 1993; 342:
767-72
11. Fibrinolytic Therapy Trialists (FTT) Coilaborative
Group. Indications for fibrinolytic therapy in suspected
acute-myocardial infarction: collaborative overwiew of
early mortality and major morbity results from all rando-
mised trials of more than 100 patients. Lancet 1994; 343:
311-22.
12. Leizorovich A, Boissel JP, Julian D. Castaigne A,
Haugh MC (The Europian Myocardial Infarction Pro-
ject Group). Prehospital thrombolytic therapy in pa-
tients with suspected acute myocardial infarction. N
Engl J Med 1993; 329: 383-9.
13. Weaver WD, Cerqueira M, Hallstrom AP, Litwin PE,
Martin JS, Kudenchuk PJ, et al for the Myocardial In-
farction Triage and Intervention Project Group. Pre-
hospital-initiatet thrombolytic therapy. JAMA 1993;
270: 1211-6.
14. Anonymous. Lyfjaverðskrá. Reykjavík: Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið, 1995.
15. McAleer B, Ruane B, Burke E, Cathcart M. Costello A.
Dalton G, et al. Prehospital thrombolysis in rural com-
munity: short-and long-term survival. Cardiovasc drugs
Ther 1992; 6(4): 369-72.