Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 533 „Nú er nóg komið, nú er mér nóg boðið, hingað og ekki lengra“ Mig minnir að Ævar Kvaran hafi farið með þessa þulu í kvik- myndinni Lénharður fógeti, sem sýnd var fyrir um 20 árum. Við félagarnir gerðum oft grín að þessari romsu, þar eð okkur fannst óþarfi að segja sama blut- inn með þremur mismunandi blæbrigðum. Mér komu þessi orð aftur í hug þar eð nú er svo komið að það þarf að tyggja sömu hlutina upp aftur og aftur til þess að þeir komist til skila. Pann 15. júní 1995 skrifuðu Tryggingastofnun ríkisins og Læknafélag íslands undir samn- ing um gjaldskrá heilsugæslu- lækna. Fyrir undirskrift bentum við á að Hafnarfjörður, Garða- bœr og Bessastaðahreppur hefðu orðið útundan varðandi neyðarhjálp. Yfirvöld lofuðu að kippa þessu í liðinn, eða að sjá til þess að túlkun samningsins gilti einnigfyrir þetta svæði. Við þetta hefur ekki verið staðið. Síðastliðið ár höfum við hvað eftir annað fengið endursenda reikninga ef við ætlumst til greiðslu við að endurlífga þessa útskúfuðu íbúa. Við höfum endurtekið vakið athygli yfir- valda heilbrigðismála og sveit- arstjórnarmanna á þessu mis- rétti. Ég skora hér með enn einu sinni á sveitarstjórnarmenn að láta þetta misrétti ekki viðgang- ast lengur. Meðfylgjandi pistill á því miður erindi í fjölmiðla til þess að láta íbúa svæðisins vita um ástandið og þann vanda sem við stöndum frammi fyrir gagn- vart þeim. Virðingarfyllst Jóhann Agúst Sigurðsson Vaktir heilsugæslunnar í uppnámi Minni von fyrir sjúklinga, sem fá hjartastopp eða lenda í stórslysum í Hafnarfírði, Garðabæ og Bessa- staðahreppi, en aðra landsmenn. Tryggingastofnun ætlast ekki til að læknar reyni að endurlífga sjúklinga eða sinni slysahjálp á vettvangi á þessu svæði. Um 75 af hundraði klukku- stunda ársins er sinnt utan dagvinnutíma í heilbrigðis- kerfinu, með bráðavöktum, vöktum um kvöld, nætur og helgar. Þess vegna er mjög mikilvægt að þessum þætti heilbrigðisþjónustu sé vel sinnt. Undanfarna mánuði hafa heilsugæslulæknar vakið athygli heilbrigðisyfirvalda á því að vaktsvæðið Hafnar- fjörður, Garðabær og Bessa- staðahreppur, með um 25 þús- und íbúum hefur orðið útund- an í samningum um læknishjálp fyrir bráðaþjón- ustu, en sérákvæði gilda fyrir Reykjavík vegna starfsemi neyðarbílsins þar. Læknar svæðisins hafa endurtekið fengið endursenda reikninga frá Tryggingastofnun ríkisins, þar sem tekið er fram að TR greiði læknum á þessu sviði ekki fyrir endurlífganir eins og annars staðar á landinu. Læknar svæðisins eru nú orðnir langþreyttir á þessum vinnubrögðum yfirvalda og telja að ekki sé hægt að túlka þau á annan veg en þann að vaktlæknar á þessu svæði eigi ekki að sinna bráðatilvikum af þessu tagi (nema af siðfræði- legum ástæðum, það er án greiðslu). Strangt til tekið eru því skilaboð yfirvalda þessi: Samkvæmt gjaldskrá er heilsugæslulæknum ætlað að reyna endurlífgun og sinna stórslösuðum um land allt nema gagnvart Hafnfirðing- um, Garðbæingum og Bessa- staðabúum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.