Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 30
522 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 vefjarannsóknir og krufningar. Fjöldi galla og gerð þeirra voru skráð og reiknað var nýgengi, bæði á einstökum árum og í fimm og 10 ára tímabilum, fyrir og eftir að venjubundin 18-19 vikna ómskoðun þungaðra kvenna hófst. Niðurstöður: Miðtaugakerfisgallar voru mistíðir eftir árum. Greiningar á meðgöngu voru ekki gerðar á fyrsta fimm ára tímabilinu en fjölgaði síðan verulega, einkum eftir til- komu almennrar ómskoðunar í fyrri hluta þungunar eftir 1984. Fjöldi greindra tilvika varð mestur á síðasta fimm ára tímabilinu og fór í 2,2 á 1000 fæðingar. Greining leiddi þá oftast til fóstureyðingar. Tíðni fæddra barna með miðtaugakerfisgalla lækkaði á sama tíma í 0,8 á 1000 fæðingar. Greining annarra galla en klofningsgalla batnaði bæði í meðgöngu og eft- ir fósturlát eða fæðingu. í um 60% tilvika greindust gallarnir með ómun á fyrri hluta meðgöngu, einkum stærri gallar, nema klofinn hryggur sem greindist ekki nema í 40% tilvika. Ályktun: Greining meðfæddra miðtauga- kerfisgalla hefur batnað eftir að venjubundin ómskoðun var hafin hér á landi. Heilaleysi (an- encephalus) sést nú vart við fæðingu. Ekki tókst þó að sjá um þriðjung af þeim göllum sem geta leitt til örkumla, svo sem klofinn hrygg. Nauðsynlegt er því að bæta enn greiningu mið- taugakerfisgalla á fyrri hluta meðgöngu með markvissri þjálfun starfsfólks og notkun staðl- aðs skoðunarmáta, en einnig er skipuleg skim- un með mælingu alfafósturprótíns í sermi þungaðra kvenna æskileg. Inngangur Meðfæddir gallar í miðtaugakerfi leiða oft- ast til alvarlegrar fötlunar eða dauða. Áhersla hefur því verið lögð á það undanfarin ár að finna þessa galla svo snemma á meðgöngu, að fóstureyðingu verði við komið sé þess óskað. Omskoðun á meðgöngu og mæling hækkaðs alfafósturprótíns í sermi eða legvatni eru að- ferðir sem beita má til greiningar. Hér á landi hófust ómskoðanir hjá verðandi mæðrum á ár- inu 1975 en skipulögð skimun ekki fyrr en á árunum 1984-1985. Mælingar alfafósturprótíns í legvatni hófust hér árið 1977 og voru fyrst í stað aðeins notaðar í völdum tilvikum, einkum þar sem fyrri saga benti til hættu á miðtauga- kerfisgalla. Efnið hefur jafnan verið mælt í leg- vatni þegar legvatnsástungur eru gerðar til að leita að litningagöllum. Vægi ómskoðana hefur þó vaxið hratt síðasta áratuginn, enda nær skipulögð ómskoðun nú til nær allra þungaðra kvenna á landinu. Nýgengi miðtaugakerfisgalla hjá nýburum hefur lækkað í vestrænum löndum á síðustu tveimur áratugum, en betri greiningarmögu- leikar í meðgöngu og fjölgun fóstureyðinga vegna fósturgalla skýrir lækkunina þó ekki nema að hluta (1-7). Ekki hefur verið Ijóst hve algengir þessir gallar eru hér á landi, né heldur í hve miklum mæli fósturgreining og fóstureyðingar hafa haft áhrif á nýgengi þeirra við fæðingu. Þessi atriði voru könnuð á tímabili sem tók til fyrstu 20 ára fæðingaskráningar á íslandi. Efniviður og aðferðir Fæðingartilkynningar frá 1. janúar 1972 til 31. desember 1991 voru yfirfarnar og allir með- fæddir miðtaugakerfisgallar skráðir. Sjúkra- skrár kvenna sem misst höfðu fóstur eða eign- ast barn með slíka galla á öllum fæðingastofn- unum landsins voru skoðaðar og upplýsingar landlæknisembættisins um fóstureyðingar á sama tímabili kannaðar. Leitað var upplýsinga um fósturlát eftir 16. viku meðgöngu þar sem þessara galla varð vart og skýrslur Rannsókna- stofu Háskóla íslands í meinafræði kannaðar til staðfestingar á eðli og gerð gallanna. Við- bótarupplýsingar fengust úr sjúkraskrám Barnaspítala Hringsins og úr gagnasafni Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Ekki var alltaf unnt að staðfesta eðli og gerð gall- anna með athugun á niðurstöðum meinafræði- rannsókna fyrstu árin og voru greinargóðar upplýsingar úr sjúkraskrám þá látnar ráða. Skráð var hvers eðlis gallinn var og hvenær hann greindist, aldur móður, meðgöngulengd í heilum vikum, hvort meðgöngu lauk með fæð- ingu, fóstureyðingu eða fósturláti, fjöldi fyrri fæðinga móður, hvort gallinn varð í fyrstu eða síðari þungun og hvort hann var greindur með ómun á meðgöngu eða við skoðun á fóstri eftir fæðingu eða fósturlát. Miðtaugakerfisgöllum var skipt í sex flokka: Heilaleysi (anencephalus), klofinn hrygg með og án vatnshöfuðs (spina bifida), vatnshöfuð (hydrocephalus) án klofins hryggjar, heila- haulun (encephalocele), samhvelun (holopros- encephalus) og aðra galla. Lokaðir minni hátt- ar gallar á hrygg (spina bifida occulta) voru ekki taldir með. Fimm ára tímabil voru borin saman, en einn- ig tímabilin 1972-1983 og 1984-1991, fyrir og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.