Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 52
540
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
LANDSPÍTALINN
Barnaspítali Hringsins
Sérfræðingur
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í barnalækningum með hjartasjúkdóma barna
sem undirgrein. I starfinu felst, auk lækninga, þátttaka í kennslu og rannsóknum í samráði
við forstöðulækni Barnaspítala Hringsins. Einnig felst í starfinu greining og meðferð á
hjartasjúkdómum barna, tengdum hjartaaðgerðum.
Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna til forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins,
Ásgeirs Haraldssonar, prófessors, sem veitir og nánari upplýsingar í síma 560 1050.
Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Eyðublöðfást hjá Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu og skrifstofu Ríkisspítalanna.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst næstkomandi.
Sérfræðingur
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í barnalækningum. Sérfræðingurinn skal hafa
víðtæka reynslu í gjörgæslu barna.
í starfinu felst, auk lækninga, þátttaka í rannsóknum og kennslu í samráði við for-
stöðulækni Barnaspítala Hringsins.
Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna til forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins,
Ásgeirs Haraldssonar, prófessors, sem veitir og nánari upplýsingar í síma 560 1050.
Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Eyðublöð fást hjá Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu og skrifstofu Ríkisspítalanna.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst næstkomandi.
Kvennadeild Landspítalans
Aðstoðarlæknar
Aðstoðarlæknar óskast til lengri og skemmri tíma á kvennadeild Landspítalans. Ráðning
felur f sér störf á hinum ýmsu skorum kvennadeildar samkvæmt vinnuskipulagi deildar-
innar og þátttöku í vöktum. Möguleikar eru á vísindastörfum í samráði við prófessor og
forstöðulækni.
Upplýsingar veita Reynir T. Geirsson, prófessor/forstöðulæknir eða Jón Þ. Hallgríms-
son yfirlæknir, kvennadeild Landspítalans.